Fréttablaðið - 25.03.2010, Blaðsíða 61
FIMMTUDAGUR 25. mars 2010 45
Kvikmyndir ★
Daybreakers
Leikstjórar: Michael Spierig og
Peter Spierig
Aðalhlutverk: Ethan Hawke, Sam
Neill, Willem Dafoe
Vampírur eru ódrepandi. Þær hafa
lifað góðu lífi í þjóðsögum í gegn-
um aldirnar og hafa haldið vin-
sældum sínum í poppkúltúrnum frá
því Bram Stoker kynnti Dracula til
leiks árið 1897. Blóðugurnar eru á
enn einu blómaskeiðinu þessi miss-
erin með gríðarlegum vinsældum
Twilight-bókanna og bíómyndum
gerðum eftir þeim og bókunum um
Sookie Stackhouse og sjónvarps-
þáttunum True Blood sem byggja
á þeim bókum.
Í Daybreakers hafa vampírurn-
ar lagt heiminn undir sig en þessi
mynd er þó blóðsugum að öðru
leyti til lítils sóma. Tíu árum eftir
að vampírisminn varð að heimsfar-
aldri standa blóðsugurnar frammi
fyrir næringarskorti. Þær eru nán-
ast búnar að drekka úr öllu fólki á
jörðinni og þær fáu manneskjur
sem eftir eru eru eltar uppi og blóð-
inu tappað af þeim í einhvers konar
mjólkurbúi sem rekið er af vondri
vampíru sem Sam Neill leikur.
Ethan Hawke er hins vegar góð
blóðsuga sem er ósátt við eðli sitt
og starfar hjá Neill við að búa til
gerviblóð til þess að leysa hungur-
sneyðina.
Hawke kemst svo óvænt í
kynni við lítinn andspyrnuhóp
sem telur sig hafa fundið lækn-
ingu við vampírismanum. Willem
Dafoe fer fyrir þessu liði og hann
er ekki lengi að fá vampíruna til
liðs við sig en Sam Neill og félagar
ætla aldeilis ekki að leyfa þeim að
lækna vampírismann enda er sala
og dreifing blóðs góður bisness.
Grunnhugmyndin að myndinni er
ekki algalin en úrvinnslan er frek-
ar dapurleg. Vampírurnar eru hér
sviptar öllum þeim sjarma sem ein-
kennir fyrirbærið, aðallega vegna
þess að það fer vampírum ákaflega
illa að vera í meirihluta. Þær eiga
að vera svolítið einar og einmana í
myrkrinu. Það er svo rómó.
Myndin er líka ansi lengi í gang
og er eiginlega hvorki spennu- né
hryllingsmynd og maður þarf eig-
inlega að berjast við svefninn fram
að hléi. Maðurinn sem sat fyrir
aftan mig tapaði þeirri baráttu og
hraut hátt.
Willem Dafoe og Sam Neill
eru fínir í hlutverkum sínum
að vanda enda toppmenn. Þeir
eru hins vegar aldrei trygging
fyrir gæðum bíómynda þar sem
þeir hafa löngum verið ófeimn-
ir við að taka að sér hlutverk í
alls konar rusli. Ethan Hawke er
svo jafn blæbrigðalaus og flat-
ur og venjulega þannig að þessi
blóðlitla vampírumynd á aldrei
sjéns.
Þórarinn Þórarinsson
Niðurstaða: Máttlaus blóðsugumynd
sem nær hvorki upp almennilegri
spennu né hrolli en tekst ágætlega
að svipta vampírurnar öllum sínum
sjarma sem hefur tryggt þeim enda-
lausar vinsældir í bíó og bókum.
Bitlausar blóðsugur
„Án þess að við séum einhver
lúxusdýr var þægilegt að láta
fara vel um sig í smástund,“
segir Eyþór Gunnarsson, hljóm-
borðsleikari Mezzoforte.
Eyþór og félagar hans, Óskar
Guðjónsson og Jóhann Ásmunds-
son, duttu í lukkupottinn á Kast-
rup-flugvelli í Kaup-
mannahöfn á leið sinni
til Ungverjalands þar
sem þeir héldu tónleika síðasta
föstudag. Sænskur starfsmað-
ur á flugvellinum varð uppnum-
inn er hann sá þá félaga og hik-
aði ekki við að koma þeim fyrir
á Business Class þeim að kostn-
aðarlausu. „Hann var á horfa
á DVD-diskinn með okkur um
morguninn. Kollegi hans sagð-
ist reyndar eiga DVD-disk með
okkur líka,“ segir Eyþór og
brosir að þessu öllu saman. „Við
vorum ekkert að falast eftir
þessu en þeir færðu okkur upp
alveg óumbeðnir. Þetta voru
þægilegri sæti en þetta var svo
sem bara einn og hálfur tími
þetta flug.“ Í þakkarskyni fengu
aðdáendurnir eiginhandaráritan-
ir frá Mezzoforte-þremenningun-
um á brottfararspjöldin þeirra.
Tónleikarnir í Ungverja-
landi gengu mjög vel þar sem
Mezzoforte spilaði fyrir troð-
fullu 750 manna húsi. Næst spil-
ar sveitin í Berlín á mánudag-
inn og því næst er
ferðinni heitið til
Suður-Afríku.
Þar spilar sveitin
á tvennum tónleikum
á stórri djasshátíð, eins
og Fréttablaðið hefur
áður greint frá. Meðfram tón-
leikahaldi er Mezzoforte að und-
irbúa sína næstu plötu sem er
væntanleg í haust og stóðu upp-
tökur yfir í Köln í Þýskalandi
fyrir skömmu með þarlendum
gítarleikara. Tónleikar í Vladi-
vostok í Rússlandi hafa meðal
annars verið bókaðir til að fylgja
henni eftir.
Eyþór viðurkennir að uppákom-
an á Kastrup flugvelli hafi verið
óvænt ánægja. Hann segir þá ekki
lenda oft í því núorðið að aðdá-
endur spjalli við þá á erlendum
flugvöllum. „En við eigum mjög
trygga aðdáendur víða um heim.
Það ætlar einn að koma til Berl-
ínar frá Englandi og einhverjir
ætla að keyra 1.100 kílómetra frá
Ítalíu. Við eigum aðdáendur af
ýmsu tagi sem eru tilbúnir til að
leggja ýmislegt á sig.“ - fb
Dekrað við Mezzo-
fortemenn á Kastrup
MEZZOFORTE Þrír meðlimir Mezzoforte
fengu góðar móttökur á Kastrup-flug-
velli í Kaupmannahöfn.
airgreenland.com
Fetaðu í fótspor Eiríks rauða á Grænlandi
Uppgötvaðu Grænland. Skelltu þér í rannsóknarleiðangur um rústir Hvalseyjarkirkju, Bröttuhlíðar og Garða á hinu stórbrotna
og fallega Suður Grænlandi. Þú getur siglt milli bæja um fagra firði þar sem ísjakar fljóta um. Þú hefur val um að búa á hóteli í
bænum eða feta fjallastíga og gista í heimagistingu fjárhirða.
FLUG FRÁ KEFLAVÍK TIL NARSARSUAQ, ÖNNUR LEIÐIN FRÁ AÐEINS 22.844,- ISK*
Skattar og gjöld innifalin.
*955 DKK. Miðað við VISA kortagengi 16.03.10: 23.92 ISK = 1 DKK, með fyrirvara um breytingar á gengi ISK.