Fréttablaðið - 25.03.2010, Blaðsíða 54
38 25. mars 2010 FIMMTUDAGUR
tonlist@frettabladid.is
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
Í ár eru 30 ár liðin frá því að íslenska pönkið kom upp á yfirborðið með
tónlistarsprengjunni sem oft er kennd við Rokk í Reykjavík. Hljóm-
sveitir eins og Fræbbblarnir og Snillingarnir höfðu verið starfandi í
einhvern tíma, en það var ekki fyrr en vorið 1980 sem þessi nýja rokk-
bylgja fór að vekja athygli að ráði.
Tónleikarnir Heilbrigð æska sem
haldnir voru í Kópavogsbíói 12.
apríl 1980, þar sem Fræbbblarnir,
Utangarðsmenn, Colossus og Dor-
dinglar spiluðu, mörkuðu tímamót
og á næstu misserum spruttu nýjar
hljómsveitir upp eins og gorkúlur.
Næsta laugardag verða haldnir
tónleikar á Amsterdam þar sem
margir af tónlistarmönnum 1980-
senunnar koma saman og spila
lög frá þessum tíma. Þarna verða
meðal annars meðlimir úr Fræbb-
blunum, Snillingunum, Taugadeild-
inni, Tappa Tíkarrassi og Von-
brigðum og á dagskránni verða lög
eftir hljómsveitir eins og Sex Pistols, Clash, Jam, Buzzcocks, Under-
tones, Stranglers, Stiff Little Fingers, Television, Sham 69, Blondie,
Ruts og Magazine. Þetta er þriðja árið í röð sem pönk-hátíð af þessu
tagi er haldin í Reykjavík, en síðustu tvö ár fór gleðin fram á Grand
rokk og tókst í bæði skiptin mjög vel.
Uppbyggingin á Punk 2010 verður svipuð og áður, en lögin verða
fleiri, einhverjir tónlistarmenn hafa bæst í hópinn og svo verða nokk-
ur íslensk lög frá þessum tíma líka flutt. Þessi árlegi viðburður hefur
þróast í að verða eins konar árshátíð pönksenunnar og meirihluti tón-
leikagesta er kunnugleg andlit frá tónleikum í Kópavogsbíói, Borginni
og Hafnarbíói. Nýársböll 68-kynslóðarinnar nutu mikilla vinsælda
fyrir nokkrum árum. Nú er röðin komin að pönk-kynslóðinni. Svona
líður tíminn. Áður en maður veit af verður krútt-kynslóðin farin að
hittast árlega til að telja í gömlu smellina á einhverri búllunni …
Árshátíð pönksenunnar
PUNK 2010 Meðlimir úr Fræbbblunum,
Snillingunum (á mynd) og Tappa Tíkar-
rassi verða á meðal þeirra sem troða
upp á laugardaginn.
> Plata vikunnar
Jón Tryggvi – Silkimjúk er
syndin
★★★
„Vel heppnuð frumraun
hjá Jóni Tryggva. Þægilegt
kassagítarpopp með ágætum
íslenskum textum.“ FB
> Í SPILARANUM
Plants And Animals - La La Land
Stafrænn Hákon - Sanitas
Ellie Goulding - Lights
Kasper Björke - Standing On Top Of Utopia
Goldfrapp - Head First
PLANTS AND ANIMALS GOLDFRAPP
„Þessi árgangur er ágætur. Þetta er fjölbreytt í
ár og meira af „ekki-rokk-böndum“ en vanalega.
Maður finnur að það er að koma inn þessi breska
folk-bylgja í anda The XX, sem sló í gegn í fyrra,“
segir Kristján Kristjánsson, Kiddi Rokk hjá Smekk-
leysu, sem er í dómnefnd Músíktilrauna í sautjánda
skipti í ár.
Ellefu hljómsveitir eru komnar í úrslit og munu
keppa á laugardaginn. Þetta eru hljómsveitirnar
Husband (sýrutengt draumrokkpoppdjass frá Hafn-
arfirði), Vulgate (rokkband frá Kópavogi), Hydrop-
hobic Starfish (rokkpopp frá Kefla- og Reykjavík),
Snjólugt (poppað síðrokk frá Álftanesi), Feeling
Blue (rafrokk frá tölvu- og gítardúett), The Assass-
in of a beautiful brunette (rokkband frá Selfossi),
Fimbulþul (proggmetall frá Akureyri), Of monsters
and men (draumkennt þjóðlagapopp frá Keflavík og
Garðabæ), Dólgarnir (ungir rokkstrákar frá Vest-
mannaeyjum), Lucky Bob (nýstofnað indírokkband í
ljúfari kantinum) og GÁVA (melódískt rokk með 15
ára fólki úr Háteigsskóla).
Sveitirnar munu berjast til úrslita með tvö frum-
samin lög hver á úrslitakvöldinu, sem verður haldið
í Hafnarhúsinu á laugardaginn. Stuðið hefst kl. 17
og það kostar þúsund krónur inn. - drg
Ellefu bönd í úrslit Músíktilrauna
HLJÓMSVEITIN GÁVA Ein þeirra ellefu sem eru komnar í úrslit
Músiktilrauna.
Bandaríska rokksveitin
Kings of Leon heldur
áfram að gera það gott
í Bretlandi. Strákarnir
frá Nashville hafa löng-
um notið mikilla vinsælda
þar í landi og það sést vel
á nýbirtum tölum yfir raf-
ræna plötusölu. Only By
the Night, fjórða plata
sveitarinnar sem kom út í
september árið 2008, hefur
selst í 250 þúsund eintök-
um á Netinu í Bretlandi.
Það gerir hana að sölu-
hæstu plötunni á rafrænu
formi frá upphafi.
Lady GaGa er önnur í
röðinni en hún hefur ekki
enn rofið 200 þúsund ein-
taka múrinn. Florence and
the Machine er í þriðja
sæti með plötuna Lungs.
Þrátt fyrir að vera sölu-
hæsta sveitin á Netinu í
Bretlandi hefur bróður-
partur platna Kings of
Leon selst upp á gamla
mátann. 2,4 milljónir ein-
taka hafa selst af Only By
the Night þar í landi. Það
er ríflega þriðjungur af
heildarsölu plötunnar um
allan heim.
Kóngar á alnetinu
KINGS OF LEON Nashville-strákarnir sem
Bretarnir dá.
Dúettinn MGMT sló í gegn
árið 2007 með plötunni
Oracular Spectacular.
Þar var sleginn ferskur
og poppaður tónn sem nú
er tekinn og afmyndaður
á nýrri plötu, Congratula -
tions. Platan er sett á
útgáfudag 13. apríl, en má
þegar heyra víða á Netinu.
Það voru popplög eins og Kids og
Time to pretend á Oracular Spect-
acular, sem vöktu athygli á bandinu
og urðu til þess að það sló í gegn.
Nú virðast sem MGMT-meðlim-
irnir Andrew Van Wyngarden og
Ben Goldwasser hafi snúið baki við
poppsmellagerð. Þess í stað hvetja
þeir útvarpsfólk og almenna hlust-
endur til að spila þau lög sem æpa
hæst á þá á plötunni.
Speisuð sýra
Congratulations er mikið ævintýra-
land þar sem uppskriftinni „erindi,
millikafli, viðlag“ er hent og gríðar-
legt frjálsræði tekið upp í staðinn.
Í einu og sama laginu eru margir
kaflar sem líða áfram í beit. Platan
inniheldur níu lög þar sem áhrif frá
gamalli sækadelíu og útúrspeisuðu
geimrokki eru greinileg. Enda ekki
nema von því Peter Kember, Sonic
Boom úr sýrurokkbandinu Spacem-
en 3, er titlaður gúrú og pródúser
plötunnar. Það er greinlegt að músík
frá sjöunda og áttunda áratugnum
með sveitum eins og Pink Floyd,
The Zombies, T. Rex, The Kinks og
fleirum hefur áhrif. Að auki segja
meðlimir MGMT að platan sé undir
áhrifum frá surf-tónlist.
Þeir syngja óð til Brians Eno,
annan til Dans Treacy úr ensku
pönkhljómsveitinni Television
Personalities og svo er þarna hið
ósungna lag Lady Dada‘s Nightmare,
sem er óður til kynlífs með Lady
Gaga.
Verandi frægir fyrir hnyttna
poppsmelli er það vitaskuld djarfur
leikur að svissa alveg yfir í tyrfið
og sýrt gáfumannarokk. Þessi plata
mun áreiðanlega ekki auka vinsæld-
ir bandsins, en poppnördar fá mikið
fyrir sinn snúð. Lengsta lagið, Siber-
ian break, er meira en 12 mínútur,
byrjar sem mjúkrokklumma frá
áttunda áratugnum, en endar sem
hljóðspor við tímaferðalag.
Eins og ringulreið
Það má jafnvel ganga svo langt
að segja að bandið geri í því að
tapa vinsældum sínum. „Platan
er svar við frægðinni og framan-
um,“ sagði Andrew Van Wyngar-
den nýlega í viðtali við MTV. „Hún
er afrakstur þess hugarfars sem
var ríkjandi á meðan við túruðum
í átján mánuði. Þessi tími var eins
og hvirfilbylur, við vissum eigin-
lega ekkert hvað var í gangi, svo
lögin sem við sömdum bera þess
merki. Þau fara um víðan völl, eru
eins og ringulreið. Platan fjallar
um það að missa vitið, að vera
alveg útkeyrður og það þegar allt
er að detta í sundur.“
Hann bætir við að viðtökurnar
við plötunni séu mjög blendnar,
annaðhvort elski fólk plötuna eða
hati. „Við héldum bara áfram að
púsla henni saman. Við vorum
paranojaðir á löngum tímabilum. Í
þessum bransa er mikið um jáfólk,
sem segir þér að allt sem þú gerir
sé frábært. Ég held að þess vegna
geri margir svona lélegar plötur,
út af öllu þessu jáfólki. Við vitum
eiginlega ekki sjálfir hvort þessi
plata sé góð eða vond!“
drgunni@frettabladid.ist
UPPGJÖR VIÐ FRÆGÐINA
MGMT – ANDREW OG BEN Gera í því að tapa vinsældum með nýju plötunni.