Fréttablaðið - 28.05.2010, Page 10
10 28. maí 2010 FÖSTUDAGUR
FRÉTTASKÝRING
Hafa hross sem hafa verið flutt út
borið hestapestina með sér?
Frá því að vart varð við smitandi
hósta í hrossum í byrjun apríl hafa
verið flutt út til Evrópu 59 hross í
þeim mánuði og 57 hross í maí. 5.
maí fóru ellefu hross til Mið-Evr-
ópu, en 8. maí fóru 46 hestar til
Norðurlandanna. Sjö hestar voru
teknir úr þeim hópi við útflutnings-
skoðun vegna gruns um sýkingu.
Þetta segir Gunnar Örn Guðmunds-
son héraðsdýralæknir Gullbringu-
og Kjósarumdæmis.
„Við höfum rætt við útflytjend-
urna eftir að hrossin fóru út og
spurst fyrir um hvort þeir hafi
frétt af veikum hestum, sem farið
höfðu héðan og í ljós hefur komið að
vitað er um eina hryssu sem fór til
Belgíu, er virtist hafa veikst eftir
að hún kom út. Íslenskum hrossum
er oft haldið sér eftir að þau koma
út, vegna smithættu þeirra í nýju
umhverfi, og það hafði verið gert
við þessa hryssu. Hún er á góðum
batavegi og hefur ekki smitað
önnur hross.
Spurður um það sem fram kom í
Fréttablaðinu í fyrradag að útflutt
hross hefði smitað hross á búgarði
í Þýskalandi af hóstanum kveðst
Gunnar Örn hafa kynnt sér málið
í kjölfar fréttarinnar og rætt við
umráðamann hestsins.
„Um var að ræða veturgamalt
trippi sem hefur ekki fengið nein
einkenni veikinnar, en virðist vera
dauft. Við hliðina á því var óbólu-
settur þýskur hestur, sem heyrir til
undantekninga því þeir eru yfirleitt
allir bólusettir við öllum hugsanleg-
um sjúkdómum. Viku eftir að tripp-
ið kom veikist hesturinn af hósta.
Af hverju vita menn ekki, né heldur
hvort það er frá þessu nýinnflutta
trippi komið. Það verður aldrei
sannað. Aðrir hestar á búgarðin-
um hafa ekki veikst.“
Spurður um grunsemdir þess
efnis að folöld séu að fæðast veik,
eins og fram hafa komið í Frétta-
blaðinu, segir Gunnar Örn að þekkt
sé að þegar móðir taki veiki myndi
hún mótefni sem berst yfir til fol-
aldsins. Það eigi því að vera varið
af mótefni móðurinnar í allt að sex
vikur.
„Til öryggis fékk ég að vita hvað-
an folöldin væru sem grunur léki á
að hefðu fæðst veik og hringdi í við-
komandi eigendur. Ég get alls ekki
sagt að þau einkenni sem þessi fol-
öld sýna bendi til þess að þarna sé
um sama sjúkdóm að ræða og við
erum að berjast við, sem betur
fer.“
Spurður um hvort hugsanlegt
sé að hross séu að endursmitast af
hóstanum segir Gunnar Örn að þar
sem bakteríusýking fylgi í kjölfar
veirusýkingarinnar geti hún end-
ursmitað hrossin ef þau verða fyrir
síendurteknu smiti og einnig geti
hrossunum slegið niður ef brúkun
þeirra hefst áður en þau hafa náð
fullum bata.
jss@frettabladid.is
ÚTIVERA Dýralæknar mæla með því að veik hross séu höfð sem mest úti ef veður er
gott og þau eru hitalaus.
Stöðvuðu útflutning á
sjö veikum hrossum
Útflutningur sjö hrossa sem grunuð voru um að vera sýkt af hestapestinni var
stöðvaður fyrr í mánuðinum. Vitað er um eitt hross sem veiktist eftir að það var
komið til Belgíu. Það hefur ekki smitað önnur hross þar ytra.
„Miðað við smitsjúkdómaastöðu
íslenska hestsins, sem hefur ekki
séð nema brot af þeim veirum
sem eru landlægar erlendis, er
líklegasta skýringin sú að sýkillinn
sem herjar nú á hross hér hafi bor-
ist til landsins erlendis frá,“ segir
Vilhjálmur Svansson dýralæknir og
veirufræðingur á Keldum.
Mikil vinna hefur verið í gangi og
er enn til að reyna að finna orsakir
hestapestarinnar. Sýni hafa verið
rannsökuð vikum saman á Keldum, í Svíþjóð og Þýska-
landi. Búið er að prófa fyrir nær öllum veirum, sextán
að tölu, sem þekktar eru og valda sýkingum í öndunar-
færum hrossa. Allar niðurstöður hafa reynst neikvæðar.
Þrjár tegundir herpesveiru eru í íslenska hrossastofn-
inum sem valda öndunarfærasýkingum, aðallega í ung-
viði. Spurður um tilgátur þess efnis að þær hafi getað
breytt sér og hleypt pestinni af stað segir Vilhjálmur:
„Ég held að við fengjum aldrei slíkan faraldur eins
og nú er í gangi, því allir fullorðnir hestar eru sýktir
með þessum veirum og hafa uppi varnir gegn þeim.
Mér finnst þetta svolítið langsótt. Auk þess hafa engar
vísbendingar komið fram í okkar rannsóknum um að
það sé raunin. Ef smitefnið er veira getur það hæglega
verið áður óþekkt veira eins og hitasóttarveiran sem
smitaði hross hér 1998. Hana tókst ekki að rækta né
búa til greiningarpróf fyrir hana.“
Kemur líklegast að utan
VILHJÁLMUR
SVANSSON
FRAKKLAND Mótmælaganga í Mars-
eilles í Suður-Frakklandi í gær. Landið
var plagað af verkföllum og mótmæl-
um vegna fyrirætlana stjórnvalda um
að hækka eftirlaunaaldur sem nú er
60 ár. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
„Við höfum ræktað ákveðna tegund streptokokka
í þeim hrossum sem við höfum rannsakað,“ segir
Eggert Gunnarsson dýralæknir og bakteríufræðingur á
Keldum. „Við höfum ræktað hann í öllum sýnum sem
við höfum tekið úr hrossum með
hósta og graftarkenndan hor. En við
höfum ekki fundið hann í miklum
mæli í hestum sem einungis hafa
verið með glært nefrennsli eða eru
heilbrigðir.
Þessi streptokokkur er til staðar í
hrossum, en getur oft valdið sýking-
um í kjölfar einhverra veirusýkinga.“
Eggert segir að streptokokkurinn
sé algeng orsök í öndunarfærasýk-
ingum hrossa erlendis en menn
segi að oftast sé einhver veirusýk-
ing frumorsökin. Svo komi hann í kjölfarið. Einnig geti
óheppilegar yrti aðstæður, streita, lélegt hreinlæti og
léleg loftræsting lagt honum lið.
„Við höldum enn að hér sé frumorsökin einhver
veirusýking sem við höfum ekki fundið, en strepto-
kokkurinn sé ábyrgur fyrir hóstanum og graftarkenndu
horinu sem við erum að sjá.“ Bakterían er bráðsmitandi
þegar hún nær að magnast upp í hesthúsunum og
þess vegna er æskilegt að minnka smitálagið með því
að koma hestunum sem fyrst í sumarhaga.
Eggert segir þessa bakteríu næma fyrir pensilíni en
best sé að hesturinn vinni á henni án þess.
Bráðsmitandi streptokokkur
EGGERT
GUNNARSSON
Líf
í borgina
Vi
ns
tri
hr
ey
fin
gi
n
- g
ræ
nt
fr
am
bo
ð
vil
l b
ei
ta
sé
r f
yr
ir
ró
ttæ
ku
m
þ
jó
ðf
él
ag
su
m
bó
tu
m
a
lm
en
ni
ng
i t
il
ha
gs
bó
ta
, h
ef
ja
v
er
nd
n
át
tú
ru
o
g
um
hv
er
fis
ti
l v
eg
s á Íslandi og treysta byggð um allt land. Hreyfingin er samstarfsvettvangur og baráttutæki þeirra
, sem
vilja útrým
a kynjam
isrétti og tryggja jafnrétti, kvenfrelsi og aukinn jöfnuð í sam
félaginu. Vinstrihreyfingin - ... // sjá m
eira á w
w
w
.vg.is/stefna/
„Mér þykir vænt um Reykjavík.
Reykjavík á að vera borg þar sem lífsgæði
eru á heimsmælikvarða. Þess vegna býð
ég mig fram – við þurfum breytingar.“
Líf Magneudóttir
3. sæti á framboðslista
VG í Reykjavík
A
T
A
R
N
A
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
129.900
Þvottavél - WM 14E261DN
Tilboðsverð:
kr. stgr.
(Verð áður: 159.900 kr.)
tilboðsverði
Þvottavélar &
þurrkarar nú á
129.900
Þurrkari - WT 44E103DN
Tilboðsverð:
kr. stgr.
(Verð áður: 156.900 kr.)
KÓREA, AP Norður-Kórea rifti í gær
samkomulagi við Suður-Kóreu sem
koma átti í veg fyrir átök á sjó. Norð-
ur-Kóreumenn sögðust jafnframt ætla
að ráðast á öll þau skip sem kæmu inn
fyrir lögsögu landsins, sem er umdeild.
Yfirmaður bandaríska hersins í
Suður-Kóreu gagnrýndi Norður-Kóreu-
menn opinberlega í gær fyrir að sökkva
suður-kóresku varðskipi í lok mars.
Hann sagði Bandaríkin, Suður-Kóreu
og önnur lönd innan Sameinuðu þjóð-
anna skora á Norður-Kóreu að hætta
öllum ögrandi aðgerðum og standa við
fyrra samkomulag.
Suður-Kóreumenn hófu heræfing-
ar við vesturströnd landsins í gær. Tíu
herskip voru við æfingarnar og æfðu
þau meðal annars kafbátaleit og skutu
æfingaskotum og slepptu sprengjum í
hafið. Þá ætlar Suður-Kórea að skipu-
leggja tvær stórar heræfingar í sam-
starfi við Bandaríkin í júlí, í þeim
tilgangi að draga úr Norður-Kóreu-
mönnum.
Fjölmiðlar í Suður-Kóreu greindu
frá því í gær að viðbúnaðarstig hersins
hefði verið hækkað, en yfirvöld hersins
vildu ekki staðfesta það. Ef satt reyn-
ist er það í fyrsta sinn sem viðbúnaðar-
stigi er breytt síðan Norður-Kórea
gerði kjarnorkutilraunir fyrir ári. - þeb
Heræfingar eru hafnar í Suður-Kóreu eftir hótanir um árásir á skip:
Norður-Kórea riftir friðarsamkomulagi
HERSKIP Á ÆFINGU Þessi herskip voru á meðal þeirra sem æfðu við
vesturströnd Suður-Kóreu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP