Fréttablaðið - 28.05.2010, Page 38
Kiddi, gítarleikari í Hjálmum
og upptökustjóri, er mikill
græjukarl enda þarf hann
á öllum mögulegum tækj-
um og tólum að halda til að
komast í gegnum daginn.
Poppið kíkti í heimsókn til
hans og fékk sögurnar á bak
við græjurnar beint í æð.
Kiddi hefur á ferli sínum ekki einungis
spilað með Hjálmum, heldur er hann einnig
meðlimur í Baggalúti og er duglegur við
að taka upp efni með hinum ýmsu tón-
listarmönnum í hljóðverinu sínu. Síðasta
plata Hjálma, IV, kom út fyrir síðustu jól
við mjög góðar undirtektir og nýlega
tók sveitin upp lagið Húsið og ég ásamt
Helga Björnssyni. Það verður að finna á
nýrri safnplötu sem kemur í verslanir á
þjóðhátíðardaginn sjálfan, 17. júní.
„Ég hef þetta safnaraeðli í mér. Ég hef
verið að safna græjum svolítið síðan ég
byrjaði að kaupa mér hljóðfæri,“ segir
Kiddi. „Einhverjir gítarar sluppu reyndar
frá manni í bernsku vegna klaufaskapar
en maður reynir að halda betur í þetta
núna.“
Hann er með töluvert magn af gömlum
græjum í hljóðverinu og þar skiptir hljóm-
urinn auðvitað mestu máli. „Þær mega
alveg vera nýjar ef þær gera svipaða hluti
og þær gömlu. En ótrúlega mikið af því
sem er búið til í dag er gert úr lélegum
hlutum sem hafa ekki sömu þykkt í sánd-
inu. Ef þú vilt nýjar svoleiðis græjur kosta
þær ógeðslega mikinn pening.“
freyr@frettabladid.is
POPPGÚRÚIÐ: KIDDI Í HJÁLMUM ER UMVAFINN ALLS KONAR GRÆJUM
RÚGBRAUÐSVÍNYL-
SPILARINN ER FLOTTUR
INNNAN UM GRÆJURNAR Kiddi í Hjálmum er mikill græjunörd og er að sjálfsögðu umvafinn alls kyns tækjum og tólum í hljóðverinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
1. „Ég safna litlum bókum í stúdíóinu því stúdíóið er svo mikið
hangs, sem er ekkert sérlega gaman. Ég er með bókina Rec-
ording The Beatles, sem er nokkurra kílóa doðrantur og svo
hefur Hugleiks-safnið vakið mikla lukku. Bókin How To Make
Your Own Sex Toys er líka vinsæl.“
2. „Ég er með þrjú tape-delay-tæki í stúdíóinu. Það eru græj-
urnar sem búa til reggísándið. Ég fékk eina í Tónastöðinni en
hinar tvær á eBay. Þetta eru eldgömul tæki og það þarf að
halda við þau til að skipta um tape.“
3. „Volkswagen rúgbrauðs-vínylspilarinn. Hann gengur fyrir
batteríi og snýst hring eftir hring á plötunni. Hann er mjög
flottur en það væri betra ef hann myndi snúast á jöfnum
hraða. Svo er sándið ekki mjög gott. Þegar við gerðum Oft
spurði ég mömmu [með Sigurði Guðmundssyni] áttirðu að
geta keypt plötuna með plötuspilara á 7.000 kall. Útgefand-
anum leist ekki á þetta og fannst þetta aðeins of glannalegt.
Hann var ekki til í að taka áhættuna.“
4. „Shure SM 58-míkrafónn frá árinu 1982. Þegar við tókum
upp fyrstu tvær Megasarplöturnar lét ég Megas syngja í hann
svona „guide“ söng til að leiða hljóðfæraleikarana áfram. Svo
stillti ég Megasi upp fyrir framan dýru og fínu míkrafónana og
þá kom „perfomansinn“ ekki. Þetta er míkrafónninn sem hann
söng í fyrir báðar plöturnar.“
5. „Gibson Les Paul-gítarinn keypti ég af Erlingi Björnssyni
sem var rythmagítarleikari í Hljómum. Þetta er gítarinn sem
ég fer alltaf með úti um allt. Ég náði að véla þennan gítar af
Erlingi þegar ég tók upp fyrir þá plötuna Hljómar 2004. Þessir
gítarar eru alltaf mjög þungir en þessi er mjög léttur ein-
hverra hluta vegna, sem er mjög gott.“
6. „JMI Buzzaround er safnara „overdrive“ sem ég var að fá.
Hann er númer 41 af 50. Gaurinn sem smíðaði þennan pedal
smíðaði sams konar pedala fyrir Jimi Hendrix, Jeff Back,
George Harrison og Eric Clapton. Þetta voru „legendary“
pedalar á sínum tíma. Leifur í Tónastöðinni náði að panta af
honum nokkur eintök.“
1
2
3 4
5
6
nýtt í Tónastö
ðinni
Fullt af vöru
m frá Vestax
djay vinnur hnökralaust með iTunes og
breytir Makkanum þínum í fullbúið DJ kerfi.
búðu til tónlist á makkann þinn
hugbúnaðarpakkinn
fylgir með Spin
ÞEKKIR ÞÚ
POPPGÚRÚ?
LÁTTU OKKUR VITA
POPP@
FRETTABLADID.IS
EÐA SÍMI 696 6766