Fréttablaðið - 12.06.2010, Blaðsíða 6
6 12. júní 2010 LAUGARDAGUR
Umhverfis landið
AKUREYRI Leikskólinn
Pálmholt á Akureyri fagnaði
60 ára afmæli í gær og var
efnt til veislu á staðnum
fyrir bæjarbúa. Sett var
upp minjasýning í anddyri
Amtsbókasafnsins og Hér-
aðsskjalasafns af starfsfólki
Pálmholts þar sem skoða
má sögu leikskólans. Mynd-
ir ljósmyndarans Eðvalds
Sigurgeirssonar eru einnig til sýnis, en þær eru frá árinu
1952 og þykja ómetanleg viðbót við sögu Pálmholts, sem er
elsti starfandi leikskólinn utan höfuðborgarsvæðisins.
Kvenfélagið Hlíf stofnaði Pálmholt á sínum tíma sem
sumardvalarheimili með það að markmiði að gefa börnum
á Akureyri kost á því að dvelja utan bæjarmarkanna og njóta
náttúrunnar. Nú, 60 árum síðar, er Pálmholt svo sannarlega
innan bæjarmarka, en þó á sama stað.
Leikskólinn Pálmholt
fagnar stórafmæli
EGILSSTAÐIR Rithöfundurinn og
kvikmyndagerðarmaðurinn Ásgeir
hvítaskáld er um þessar mundir
að ljúka við kvikmyndina Sól skín
á drullupoll. Ásgeir hefur unnið að
myndinni í samvinnu við Leikfélag
Fljótsdalshéraðs undangengin
þrjú ár.
Ásgeir er ánægður með útkom-
una og segir myndina fjalla um
ógæfusamt fólk sem leiðist út í
illindi. „Þetta er ekki beint falleg
mynd, en titillinn vísar til þess
að sólin skíni þrátt fyrir allt á alla
– réttláta og óréttláta, góða og
slæma.“
Áformað er að frumsýna
myndina á Egilsstöðum í haust en
staðarvalið er sérstakt að því leyti
að þar er ekkert kvikmyndahús.
„Við ætlum bara að búa til okkar
eigið bíó,“ segir Ásgeir.
Ásgeir hvítaskáld
lýkur við kvikmynd
VESTMANNAEYJAR Hið vinsæla mót í kvenna-
knattspyrnu, Pæjumótinu, sem byrjaði 10. júní,
lýkur í dag, 12. júní. Um 600 stúlkur tóku þátt í
mótinu en talið er að um eitt þúsund manns hafi
lagt leið sína til Vestmannaeyja um helgina. Veðrið
hefur leikið við gesti sem hafa skemmt sér vel og
hefur allt farið vel fram.
Pæjumótið hófst með setningarhátíð þar sem
Jónsi í Svörtum fötum spilaði við góðar undirtektir,
en hann sat einnig í dómnefnd í hæfileikakeppni
sem var háð á milli keppnisliðanna. Sýndu stelp-
urnar þar fram á að þær hafa margt annað fram að
færa heldur en að spila flottan fótbolta.
Pæjumót í fullum gangi
SÚÐAVÍK Melrakkasetur Íslands verður opnað
formlega í dag, í Eyrardalsbænum í Súðavík. Sýnd
verða atriði úr leikritinu Gaggað í grjótinu og setrið
opnað formlega að því loknu.
Melrakkasetrið er fræðasetur með áherslu á mel-
rakkann, eina upprunalega landspendýrið á Íslandi
og einkennisdýr Vestfjarða. Í setrinu verður sýning
um refi í náttúrunni, refaveiðar og refaveiðimenn.
Einnig verður þar starfrækt kaffihús og leikhúsloft.
Húsið sjálft er eitt af elstu húsum bæjarins og á sér
mikla og langa sögu. Er það í eigu Súðavíkurhrepps
sem hefur séð um uppbyggingu þess frá árinu
2005.
Fræðimannasetur um
melrakkann opnað
STOKKSEYRI Vinna við nýbyggingu
skólans á Stokkseyri er nú í fullum gangi
og bendir allt til þess að framkvæmdum
muni ljúka á áætluðum tíma, 20. júlí.
Skólinn verður 1.810 fermetrar og rúmar 9
kennslustofur.
Margir verktakar koma að byggingunni og
virðist sem bruninn á verkstæði Selóss fyrr í
vikunni muni ekki hafa áhrif á uppsetningu
innréttinga í skólanum. Byggingin verður
formlega tekin í notkun á næsta skólaári.
Nýbygging á áætlun
DJÚPIVOGUR Hönnuðurinn Ágústa Arnardóttir
stendur fyrir opnun svokallaðrar Hagleikssmiðju á
Djúpavogi, sem er blanda af verslun, vinnustofu og
fræðasafni. Ágústa
framleiðir föt og
fylgihluti úr skinni og
roði íslenskra dýra
og segir starfsemina
ganga vonum framar.
„Viðbrögðin hafa
verið alveg ótrúleg,“
segir hún. „Fólki
finnst þetta spenn-
andi vegna þess að fötin hafa sérstöðu og segja
svo mikið um náttúru og sögu Íslands.“ Viðskipta-
vinir Hagleikssmiðjunnar geta keypt vörur og fræðst
um hönnunar- og framleiðsluferlið um leið.
Vörumerki Ágústu ber heitið Arfleið sem hún
segir standa fyrir þá íslensku hefð sem ríkir svo
sterk í okkur öllum. Hagleikssmiðjan opnar um
næstu mánaðamót.
Fatahönnuður opnar
hagleikssmiðju
Ármúla 13a | Borgartúni 26 | 540 3200 | www.mp.is
Varfærni, einfalt þjónustuframboð og örugg
vinnubrögð skipta öllu máli fyrir fólk og fyrirtæki.
Þannig á banki að vera.
Netgreiðsluþjónusta
Gjaldeyrisreikningar
Sparnaðarreikningar
Yfirdráttur
Debetkort
Launareikningur
Kreditkort
Netbanki
Yfir 70% viðskiptavina okkar mæla
með MP banka við ættingja sína
og vini. Það eru ánægjuleg meðmæli.
Svanhvít Sverrisdóttir
viðskiptastjóri Ármúla
*skv. þjónustukönnun MP banka febrúar 2010
*
STJÓRNSÝSLA „Það hefði mátt kom-
ast af með ódýrari bíl en þetta
var nú gert og nú hef ég ákveð-
ið að endurskoða það og geri ráð
fyrir að þessi Benz bíll verði seld-
ur,“ sagði Hjörleifur B. Kvaran,
forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur
(OR), þegar Fréttablaðið náði tali
af honum í gær. Vísar hann þar
til Benz bifreiðar sem nýlega var
keypt til afnota fyrir fjármála-
stjóra OR, Önnu Skúladóttur, á sjö
milljónir króna.
„Til skamms tíma voru ellefu
starfsmenn OR með þessi réttindi
en það er þegar búið að fækka
þeim niður í sex. Nú er næsta mál
á dagskrá að breyta ráðningar-
kjörum þeirra sex sem eftir
eru,“ sagði Hjörleifur enn
fremur. Í frétt Fréttablaðsins
á miðvikudag var sagt frá því
að fjórir starfsmenn OR nytu
bílafríðinda og voru þær upp-
lýsingar hafðar eftir Guðlaugi
G. Sverrissyni stjórn-
arformanni OR. Í
samtali við Hjör-
leif kom fram að
starfsmennirnir
væru sex en ekki
fjórir. Er þar um
að ræða Hjörleif forstjóra, þrjá
framkvæmdastjóra fyrirtæk-
isins auk tveggja almennra
starfsmanna.
Hjörleifur hitti Jón
Gnarr og Dag B. Egg-
ertsson, oddvita verðandi
meirihluta í borgarstjórn,
á fimmtudag og gerði þeim
ljóst að hlunnindin
yrðu endurskoðuð.
- mþl
Bifreiðahlunnindi starfsmanna Orkuveitu Reykjavíkur verða endurskoðuð:
Benz-bíllinn sennilega seldur
HJÖRLEIFUR
KVARAN
STJÓRNMÁL Fulltrúar Sjálfstæðis-
flokks og Vinstri grænna í Borg-
arbyggð skrifuðu undir samning
um meirihlutasamstarf á kjör-
tímabilinu á miðvikudag.
Björn Bjarki Þorsteinsson, odd-
viti sjálfstæðismanna, verður
formaður byggðarráðs og Ragnar
Frank Kristjánsson, oddviti VG,
verður forseti sveitarstjórnar.
Páll S. Brynjarsson hefur verið
endurráðinn sveitarstjóri,
Skrifað var undir samninginn
í gömlu Skemmunni á Hvanneyri
en hún þjónar nú hlutverki Safn-
aðarheimils, að því er fram
kemur í fréttatilkynningu frá
framboðunum. - mþl
Nýr meirihluti í Borgarbyggð:
Sjálfstæðis-
flokkur og VG í
samstarf
VIÐ UNDIRRITUNINA Aðal- og varamenn
framboðanna í sveitarstjórninni.
Á fjármálastjóri Orkuveitunnar
að fá lúxusbíl frá fyrirtækinu?
JÁ 6,7%
NEI 93,3%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Er eðlilegt að prestar þjóð-
kirkjunnar geti neitað að gefa
samkynhneigð pör saman?
Segðu skoðun þína á Vísi.
BOSNÍA, AP Sérfræðingar telja
vörubílstjóra hafa rambað á
fjöldagröf frá því í Balkanskaga-
stríðinu í austurhluta Bosníu-
Hersegóvínu á dögunum.
Vörubílstórinn var að keyra
möl á byggingalóð í grennd við
bæinn Bratunac í maí, þegar
hann tók eftir mannabeinum í
hrúgunni. Hann tilkynnti fund-
inn til yfirvalda sem hófu rann-
sókn á málinu. Réttarmeinafræð-
ingar hafa þegar fundið fimm lík.
- bs
Vörubílstjóri í Bosníu:
Fann fjöldagröf
úr borgarastríði
DÓMSMÁL Karlmaður á sextugs-
aldri hefur verið ákærður fyrir
að skalla annan mann á bar.
Manninum er gefið að sök að
hafa á síðasta ári, á veitinga-
og skemmtistaðnum Paddy´s í
Reykjanesbæ, skallað annan
mann í andlitið þar sem þeir
stóðu við barinn á veitinga-
staðnum. Maðurinn sem fyrir
árásinni varð nefbrotnaði.
Maðurinn sem ráðist var á
krefur leggur fram fyrir dómi
skaðabótakröfu upp á rúmlega
400 þúsund krónur. -jss
Nefbrotinn krefst bóta:
Maður skallað-
ur við barinn
KJÖRKASSINN