Fréttablaðið - 12.06.2010, Page 8
8 12. júní 2010 LAUGARDAGUR
NÁTTÚRUVERND „Við höfnum þessu
öllu saman á þeim grunni sem það
er sett fram á,“ segir Jón Loftsson,
skógræktarstjóri Skógræktar rík-
isins, um fram komnar tillögur um
eyðingu og heftingu á útbreiðslu
lúpínu.
Forráðamenn Skógræktarinnar
óskuðu eftir fundi með Svandísi
Svavarsdóttur umhverfisráðherra
eftir að hún hafði kynnt skýrslu
með tillögum frá Landgræðslu
ríkisins og Náttúrufræðistofnun-
ar Íslands. Þær gera meðal annars
ráð fyrir að gerð verði lagabreyt-
ing þannig að ræktun lúpínu verði
algerlega bönnuð í yfir 400 metra
hæð yfir sjó í stað 500 metra áður.
Þá er lagt til að dreifingu alaska-
lúpínu verði hætt nema á þeim
svæðum þar sem Landgræðsla
ríkisins gerir tillögur um að megi
nota hana við uppgræðslu og til
að undirbúa rýrt land undir rækt-
un. Skipa á sérstaka aðgerðastjórn
vegna baráttunnar við lúpínuna.
Tiltæk ráð til að uppræta hana eru
helst nefnd beit, sláttur og úðun
eiturefna.
Umhverfisráðherra óskaði eftir
greinargerð frá Skógræktinni um
skýrsluna. Þeirri greinargerð var
skilað fyrr í þessum mánuði. Jón
kveðst vænta þess að hún verði
kynnt á sama veg og ofangreindar
tillögur Landgræðslunnar og NÍ.
„Grunnurinn að þessum tillögur
er sá að líffræðilegri fjölbreytni
stafi hætta af lúpínunni,“ segir Jón.
„Við teljum það alrangt. Við teljum
að gera þurfi miklu ítarlegri úttekt
og rannsóknir á lúpínunni, áður en
menn fara af stað í einhverja her-
ferð, ég tala nú ekki um einhvern
eiturefnahernað, gegn henni. Full-
yrt er að hún vaði yfir gróið land.
Hvar gerir hún það? Það eru ekki
til neinar rannsóknir, sem byggja
má á hvort og þá hvar hún er að
gera skaða.“
Jón bendir á að fyrir fimmt-
án árum hafi verið gert kort yfir
útbreiðslu lúpínu í kringum Heið-
mörk. Hægast væri að gera sam-
anburðarrannsókn á stöðunni nú.
Út frá því væri sannanlega hægt
að sjá hvort hún væri búin að kæfa
annan gróður eða sýna aðra ógn-
vænlega tilburði.
„Með því að banna lúpínu á
hálendinu, þar sem hún nær ekki
að þroska fræ, hvað þá annað, er
verið að koma í veg fyrir að eyði-
merkurlandið Ísland breytist í eitt-
hvert frjósamara land. Sagt er að
hún vaði yfir lyng. Það má vera.
En lyngið, sem er útbreiddasta
gróðurtegund í dag, er síðasta stig
hnignunar gróðurfars. Þar eru oft
komin rotsvæði, sem lúpínan gerir
frjósamari en þau voru áður.“
jss@frettabladid.is
ÁHRIF LÚPÍNU Á UMHVERFIÐ Skiptar skoðanir eru á því hvaða áhrif lúpína hafi á
umhverfið og hvort og þá hvernig bregðast skuli við. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Hafna herferð
gegn lúpínu
Skógrækt ríkisins hafnar alfarið tillögum um eyð-
ingu og heftingu á útbreiðslu lúpínu. Skógræktar-
stjóri vill ítarlegar rannsóknir á atferli hennar fyrst.
Sumarlokun síðdegisvaktar
Borgartúni 29 / 105 Reykjavík / Sími: 585 6500 / www.audur.is
Hefur þú áhuga á að starfa við öflun nýrra viðskiptavina, sinna
verðbréfaráðgjöf og þjónustu við viðskiptavini?
Við leitum að einstaklingi með háskólapróf í verðbréfaviðskiptum,
mikla reynslu af verðbréfaráðgjöf og samskiptum við viðskiptavini í
eignastýringu, ríka þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
Ef þú hefur áhuga og metnað til að starfa við öflun nýrra viðskiptavina
og ráðgjöf um sparnað og lífeyrismál gæti þetta verið draumastarfið
fyrir þig.
Við leitum að einstaklingi með mikla reynslu í sparnaðar- og
lífeyrisráðgjöf, drifkraft, metnað og lífsgleði.
Ert þú hæfileikarík(ur), með góða þjónustulund og getur sýnt frumkvæði
og sjálfstæði í starfi? Þá gæti þetta starf, sem felur í sér ýmiskonar innri
þjónustu, verið starfið fyrir þig.
Við leitum að vel ritfærum einstaklingi með góða máltilfinningu bæði
á íslensku og ensku, gott tölvulæsi og góða hæfni til að leysa einföld
tæknivandamál. Reynsla af ferðaskipulagningu og verkefnastjórnun,
sem og færni í myndvinnslu og umbrotsforritum eru ótvíræðir kostir.
Viðkomandi þarf að vera hörkuduglegur, hafa ríka ábyrgðartilfinningu,
sýna vandvirkni í vinnubrögðum og geta unnið sveigjanlegan vinnutíma.
Viðskiptastjóri
– Eignastýring
Sparnaðar og
lífeyrisráðgjafi
– Séreignarsparnaður
Verkefnastjóri
– Innri þjónusta
Vinsamlegast sendu ferilskrá á starf@audur.is og segðu okkur
í örstuttu máli hvers vegna þú telur þig rétta aðilann í starfið.
Umsóknarfrestur er til 22. júní.
Nánari upplýsingar um störfin gefur Þóranna Jónsdóttir í síma 585 6500.
Við leitum að fleiri framúrskarandi einstaklingum í liðið okkar. Starfsmenn Auðar eru
færir á sínu sviði, leggja áherslu á gagnsæi, hreinskiptni og áhættumeðvitund í sínum
störfum og hafa trú á framtíðinni. Menntun og reynsla skipta miklu – en við leitum
ekki síður að heilbrigðu hugarfari og fólki sem býr yfir krafti, eldmóði og ábyrgð.
VIÐ LEITUM AÐ
KRAFTI, ELDMÓÐI OG ÁBYRGÐ
Auglýsingasími
Allt sem þú þarft…
BRETLAND Nokkrir fyrrverandi
breskir hermenn verða vænt-
anlega dregnir fyrir dómara á
Norður-Írlandi vegna atburðanna
í borginni Londonderry sunnudag-
inn 30. janúar árið 1972. Þann dag
beittu breskir hermenn skotvopn-
um á hóp kaþólskra mótmælenda
með þeim afleiðingum að þrettán
manns létu lífið.
Rannsóknarnefnd breska þings-
ins hefur undanfarin tólf ár rann-
sakað þessa atburði og sendir frá
sér skýrslu um niðurstöður sínar
á þriðjudaginn.
Breska dagblaðið Guardian
segist hafa heimildir fyrir því að
nefndin líti svo á að sum þessara
dauðsfalla verði að teljast ólög-
leg manndráp, sem hermennirn-
ir hafi enga réttlætingu haft fyrir
að fremja. Þar með eykst mjög
þrýstingur á saksóknara á Norð-
ur-Írlandi að draga þessa bresku
hermenn fyrir rétt.
Atburðirnir þennan dag, sem
síðan hefur verið kallaður „blóð-
ugi sunnudagurinn“, efldu mjög
baráttu norður-írskra aðskilnað-
arsinna gegn bresku stjórninni
svo aukin harka færðist í átökin.
- gb
Bresk rannsóknarnefnd að ljúka tólf ára rannsókn á blóðbaði á Norður-Írlandi:
Breskir hermenn brutu lög
BLÓÐUGI SUNNUDAGURINN Breskur
hermaður þrífur í kaþólskan mótmæl-
anda 30. janúar 1972 á Norður-Írlandi
þegar breskir hermenn drápu þrettán
kaþólska mótmælendur. NORDICPHOTOS/AFP
1 Heimsmeistaramótið í
fótbolta hófst í gær. Hvaða lið
mættust í opnunarleiknum?
2 Hvaða útvarpsmaður fer á
flakk með Ómari Ragnarssyni
í sumar?
3 Á hvaða íþróttaviðburð ætlar
Þorgeir Ástvaldsson að mæta á
sunnudag?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 62
FRAMKVÆMDIR Alþingi hefur sam-
þykkt samþykkt stofnun nýs opin-
bers hlutafélags vegna bygging-
ar nýs Landspítala. Félagið hefur
rekstur 1. júlí og er hlutafélaginu
ætlað að standa að undirbúningi
og útboði á byggingu spítalans.
Reiknað er með að heildar-
kostnaður við verkið verði 51
milljarður, þar af fara um 33
milljarðar til nýbygginga og 11
milljarðar í endurbætur. Gert er
ráð fyrir að ríkið taki bygginguna
á langtímaleigu þegar verktakinn
hefur lokið umsömdu verki. - kóp
Nýtt opinbert hlutafélag:
Bygging Land-
spítala í félag
VEISTU SVARIÐ?