Fréttablaðið - 12.06.2010, Qupperneq 40
SUNDFÖT
Það er auðvelt að falla í freistni þegar barnasundföt eru ann-
ars vegar enda eru þau með eindæmum litrík og skemmtileg.
Úrvalið spillir heldur ekki fyrir og eru sundföt með símunstri,
fígúrum og í öllum regnbogans litum á hverju strái.
Það er um að gera að nota tækifærið og velja sem skraut-
legast fyrstu árin enda fátt eins sætt og litlir rennandi blautir
munsturkroppar. vera@frettabladid.is
Litlar
litasprengjur
Litríkir buslandi munsturkroppar fylla sundlaugar og strendur lands-
ins um þessar mundir enda ekki hægt að kvarta undan sundfata-
úrvalinu fyrir börnin.
Bikiní. Til í
fleiri litum. Zara,
3.595 krónur.
Hello Kitty-sund-
bolur. Zara, 3.995
krónur
Spiderman-sundskýla. Líka
til í svörtu. Zara, 2.595
krónur.
Zara,
3.595
krónur.
Speedo-
sundbolur
með
neðansjáv-
armyndum.
Útilíf, 3.990
krónur.
Speedo-sundskýla
með neðansjávar-
myndum. Útilíf, 2.990
krónur.
Arena-sund-
skýla. Útilíf,
4.490 krónur.
Það er um að gera að velja litrík og skrautleg sundföt á börnin.
Brasilíska baðfatamerkið Agua
de Coco hefur í nokkur ár staðið
í fremstu röð baðfataframleið-
enda í Suður-Ameríku.
Fyrirtækið Agua de Coco, sem
byrjaði með aðeins eina sauma-
vél, státar af einni flottustu bað-
fatalínu í heiminum í dag.
Tískuvikan í Sao Paulo í Brasil-
íu er nýafstaðin og þar var hulunni
svipt af nýrri línu Agua de Coco.
Baðfötin eru klassísk og djörf í
senn og er merkið í eftirlæti hjá
mörgum stjörnum vestanhafs.
Liana Thomaz er heilinn á bak við
baðfötin og hún segir að þrátt fyrir
baðföt sem standast ströngustu
tískuviðmið, sé markmið hennar
í hönnun sinni fyrst og fremst að
útbúa baðföt sem séu þægileg.
- jma
Brasilísk
kvenlegheit
SUNDBOLIR sem eru aðeins rykktir yfir magann henta þeim sem
ekki eru með alveg sléttan maga mjög vel. Það er ótrúlegt hvað fell-
ingarnar á sundbolnum geta falið mikið af því sem ekki á að sjást.
Baðfötin frá Agua de Coco þykja vera
undir áhrifum frá 6. og 7. áratugnum.
VAXTARVÖRUR EHF. • HELLUHRAUN 14 • 220 HAFNARFJÖRÐUR • SÍMI: 565 9595
Allur sundfatnaður
á 20% afslætti
Mikið úrval af sundfötum á börn og fullorðna
Tilboðsbolir
í stærðum
36-44
3.500 kr
Fóðraður
sundbolur
með púðum
Verð áður 17.490 kr
Nú 13.992 kr
www.vaxtarvorur.is
Nýjar sendingar
af sundbolum og tankini
frá TYR og Triumph fyrir
konur á öllum aldri.
Einnig sundskýlur, boxers
og hnésíðar skýlur.
Kíkið við á vefsíðu okkar
www.aquasport.is