Fréttablaðið - 12.06.2010, Side 51
LAUGARDAGUR 12. júní 2010 11
Ungmennadeild (URKÍ-R)
auglýsir eftir forstöðumanni
Um er að ræða afl eysingu í eitt ár. Starfshlutfall er
100 % og felst m.a. í:
• Störf með og fyrir stjórn URKÍ-R.
• Umsjón með námskeiðum, fræðslu- og útgáfustarfi á
vegum deildarinnar
• Þátttaka í ýmsum samráðs- og vinnuhópum á vegum
Rauða krossins
• Umsjón með sjálfboðaverkefnum deildarinnar
• Umsjón með unglingastarfi
• Umsjón með fjárreiðum deildarinnar og fjárhag
sáætlun
Háskólapróf sem nýtist í starfi er æskilegt. Jákvæðni,
frumkvæði og færni í mannlegum samskiptum er
skilyrði. Nánari upplýsingar veita Katla Þorsteinsdóttir,
framkvæmdastjóri og Marín Þórsdóttir, forstöðumaður
URKÍ-R í síma 545-0400.
Umsækjandi þarf að geta hafi ð störf 1. ágúst nk.
Umsóknum skal skilað fyrir 25. júní nk. á skrifstofu
Reykjavíkurdeildar Rauða kross Íslands, Laugavegi 120,
4. hæð eða með tölvupósti eða á netfangið
katla@redcross.is
ÁBYRGÐ OG VERKEFNI
Markaðsstjóri Pfizer ber ábyrgð á daglegri stjórnun og rekstri markaðs-
deildar Pfizer innan Icepharma, en gert er ráð fyrir að við deildina starfi
u.þ.b. 5 starfsmenn. Markaðsstjóri sinnir markaðsgreiningu og stefnu-
mótunarvinnu, annast framkvæmd markaðs- og söluáætlana í samvinnu
við skrifstofu Pfizer í Kaupmannahöfn og tekur þátt í markaðssetningu
og kynningu á lyfjum fyrir lækna og annað heilbrigðisstarfsfólk, ásamt
fundum og ráðstefnum heima og erlendis. Ennfremur sinnir markaðsstjóri
margs konar samskiptum fyrir hönd Pfizer, svo sem við íslensk
heilbrigðisyfirvöld og hagsmunasamtök í lyfjaiðnaði.
Starfið heyrir undir framkvæmdastjóra Lyfjasviðs Icepharma.
MENNTUN OG HÆFNI
Markaðsstjóri Pfizer þarf að hafa sýnt af sér leiðtogahæfileika og mikla
færni í starfsmannastjórnun og mannlegum samskiptum. Gerð er krafa
um frumkvæði, fagmennsku, jákvæðni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Markaðsstjóri þarf að hafa háskólamenntun, helst á sviði viðskipta- og
heilbrigðisvísinda, reynslu af störfum á lyfjamarkaði og gott vald á ensku
og einu Norðurlandamáli í ræðu og riti.
STARFSUMHVERFI
Starf markaðsstjóra Pfizer er fjölbreytt, faglegt og spennandi starf í krefjandi
umhverfi á einhverjum mestu breytingartímum íslenska heilbrigðiskerfisins. Í boði
er fagleg og persónuleg þjálfun, bæði heima og erlendis, auk góðra möguleika til
að vaxa í starfi.
Icepharma leggur áherslu á gott og hvetjandi starfsumhverfi. Flestir birgjar okkar
eru leiðandi á sínu sviði í heiminum, sem skipar Icepharma í fremstu röð fyrirtækja
í heilbrigðisgeiranum á Íslandi. Þekking þeirra og reynsla er okkar styrkur.
Pfizer er stærsta lyfjafyrirtæki í heimi, stofnað árið 1849, og er leiðandi í rannsóknum og þróun lyfja. Starfsmenn fyrirtækisins um allan heim eru yfir 110.000.
Markmið fyrirtækisins er að veita sjúklingum bestu meðferð sem kostur er á, í samvinnu við heilbrigðiskerfið, og tryggja þeim lengra og betra líf. Pfizer hefur
markaðsleyfi fyrir u.þ.b. 80 mismunandi lyf á Íslandi og er hlutdeild fyrirtækisins í íslenskum lyfjamarkaði 9%.
Icepharma er eitt af stærstu fyrirtækjum landsins í sölu- og markaðssetningu á lyfjum, heilbrigðisvörum og lækningatækjum. Hjá fyrirtækinu starfa 75 manns
með víðtæka menntun og þekkingu á heilbrigðisgeiranum. Icepharma er fyrirmyndarvinnustaður og við leggjum áherslu á jafnrétti og fjölskylduvænt umhverfi.
Frá 1. desember nk. mun Icepharma annast alla sölu- og markaðsstarfsemi Pfizer á Íslandi.
Þess vegna leitum við að markaðsstjóra fyrir Pfizer.
Markaðsstjóra fyrir
Icepharma leitar að
UMSÓKNARFRESTUR ER TIL 28. JÚNÍ 2010.
Umsóknir skal senda á netfangið bessi@icepharma.is.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Bessi H. Jóhannesson,
framkvæmdastjóri Lyfjasviðs, á framangreindu netfangi.