Fréttablaðið - 12.06.2010, Síða 62
6 FERÐALÖG
BOLTI Á BARNUM
UM VÍÐA VERÖLD
Heimsmeistaramótið í fótbolta hófst í gær. Víða um heim kemur fólk saman á
börum og fylgist með leikjunum sem standa yfi r. Hér eru hugmyndir að stöðum
erlendis þar sem hægt er að koma saman og horfa á boltann á ferðalaginu.
Fylgst með Á Sidewalk-kaffihúsinu við hina frægu Venice-strönd í Los Angeles er hægt að
fylgjast með heimsmeistaramótinu á tíu sjónvarpsskjáum. Í hálfleik má fá sér drykk úti á
veröndinni og fylgjast með fólki enda er staðurinn þekktur fyrir að vera góður til þess.
Til Japans Hægt verður að fylgjast með HM
á tveimur stórum skjáum á Mogambo-barn-
um í miðbæ Tókýó. Völdum leikjum verður
lýst. Mogambo býður gleðistundarverð á
drykkjum meðan sumir leikjanna standa,
frá því að blásið er til leiks og þar til fyrsta
markið er skorað.
NORDICPHOTOS/GETTY
Fjölbreytileiki Barir heimsins eru mismunandi að gerð. Í borginni Kumasi í Gana, sem er
höfuðborg héraðsins Ashanti, safnast fólk saman á einum af sportbörum svæðisins undir
bárujárni við fléttaða veggi.
Skreyttir veggir Tilvalið er að tylla sér inn
á El Banderin-barinn í Búenos Aíres sem
var stofnaður árið 1923. Veggir barsins eru
skreyttir með yfir fjögur hundruð veifum og
myndum frá ýmsum fótboltafélögum.
Horft með þýskum Á risastórum skjáum á Bierkoenig-barnum við Palmaströndina á Majorka
er hægt að fylgjast með heimsmeistaramótinu í fótbolta ásamt æstum þýskum stuðnings-
mönnum, enda er Majorka vinsæll áfangastaður þýskra ferðamanna.
Vel fagnað Á hinum ýmsu börum um heim
allan verður líkast til mikið um tilfinningar,
nokkur gleðitár verða trúlega felld þegar
rétta liðið sigrar en þó mun örugglega
eitthvað verða um grát og gnístran tanna
þegar það tapar.
NORDICPHOTOS/GETTY
Göngufrí vinsæl Fjallendið er fyrir ofan Costa blanca-ströndina og um fimmtíu kílómetra
frá Benidorm.
LYFJABÚR EVRÓPU Göngufrí verða sífellt
vinsælli enda gefa þau ferðamönnum færi á að
kynnast landi og þjóð með öðruvísi hætti en hefð-
bundnar túristaferðir auk þess sem heilsuefling
fylgir í kaupbæti.
Þau Ingibjörg Þórhallsdóttir og Rúnar Karlsson
bjóða upp á slík frí á Spáni. „Við bjóðum Íslending-
um sem hafa áhuga á að verja fríi sínu til göngu-
eða skoðunarferða eða til annarra heilseflandi
athafna upp á hagkvæma valkosti og skemmtilega
afþreyingu í austurhluta Spánar,“ segir á heima-
síðu þeirra gongufri.is. Gengið er um fjallahéruð
upp af Costa Blanca-ströndinni á Spáni. „Þrátt
fyrir nálægð við mannmarga ferðamannastaði á
ströndinni er náttúran ósnortin,“ segir á síðunni.
Á miðöldum var oft talað um svæðið sem lyfjabúr
Evrópu vegna fjölda lækninga- og kryddjurta sem
þar vaxa. Fjölbreytileiki náttúrunnar er sagður með
eindæmum enda klettavegir, þröng gil, dalir og
heiðar allt um kring.
Ferðirnar eru hugsaðar fyrir 6-16 manna hópa en
frekari upplýsingar er að finna á www.gongufri.is.
- ve