Fréttablaðið - 12.06.2010, Page 83

Fréttablaðið - 12.06.2010, Page 83
LAUGARDAGUR 12. júní 2010 51 Brett Michaels, söngvari rokk- sveitarinnar Poison, hefur áhuga á að setjast í dómarasætið í Amer- ican Idol-þáttunum í stað Simons Cowell, sem ætlar að snúa sér að X-Factor. Michaels, sem er að jafna sig eftir heila- blóðfall, hefur verið nefndur sem möguleg- ur eftirmaður Cowells og er greinilega til í að spreyta sig á þessu vandasama verkefni. „Það yrði mikill heiður. Ég er mjög góður í að gefa tónlistar- mönnum ráð. Simon stóð sig ótrúlega vel. Hann var mjög hreinskilinn,“ sagði hann. „Mín nálgun yrði ekki eins grimm og ég myndi leggja meiri áherslu á að gefa góð ráð. Ég myndi segja að þetta hefði ekki verið rétta lagið og spyrja hvort aðilinn hefði það sem til þurfti.“ Michaels hefur mikla reynslu úr tónlistarbransan- um og getur því miðlað vel af henni. „Allir halda að um leið og þú færð plötusamn- ing sértu búinn að slá í gegn. Það er akkúrat öfugt. Þú ert alveg við þrösk- uldinn en þarft að standa þig næstu tuttugu árin.“ Brett vill stól Cowells BRETT MICHAELS Söngvari Poison vill feta í fótspor Simons Cowell sem dómari í American Idol. Leikkonan Courteney Cox hefur litla trú á að kvikmynd byggð á sjónvarpsþáttunum Friends verði gerð. Hin 45 ára Cox, sem lék Mon- icu Geller í tíu þáttaröðum, er til í leika í slíkri mynd en efast um að hún verði að veruleika. „Það þarf margt að ganga upp til að hún fari af stað. En við höfum látið okkur dreyma um hana,“ sagði Cox. Þættirnir Sex and the City hafa verið færðir yfir á hvíta tjaldið við góðar undirtektir. Sögusvið Friends er aftur á móti mun tak- markaðra. „Ég vildi óska að við gætum gert þetta með Friends. Málið er að persónurnar í Sex and the City flökkuðu um alla Manhatt- an. Í Friends vorum við alltaf föst í íbúðinni eða á kaffihúsinu.“ Efast um Vinamynd COURTENEY COX Courtney hefur litla trú á að Vinirnir færi sig yfir á hvíta tjaldið.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.