Fréttablaðið - 04.09.2010, Side 16
16 4. september 2010 LAUGARDAGUR
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is
HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is
ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
greinar@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
Fyrr í sumar var því haldið fram á þessum vettvangi að ódýrara yrði fyrir þjóð-ina að fá Ögmund Jónasson
í ríkisstjórn heldur en að láta laus-
beislaðan vinstri væng VG þvinga
fram þjóðnýtingu HS-orku. Nú er
spurning hvort kenningin stenst.
Svo virðist vera að forsætis-
ráðherrann hafi ekki notað upp-
stokkunina á ríkisstjórninni til
að styrkja málefnastöðuna sem
vinstri vængur VG hefur smám
saman verið að brjóta niður. Þvert
á móti hefur vinstri vængurinn
styrkt málefnastöðu sína. Sam-
fylkingin hefur veikst að sama
skapi.
Með öðrum orðum: Vinstri
vængurinn sýnist hafa fengið
stóraukin áhrif um leið og hann
heldur að mestu
óbreyttri þeirri
málefnalegu
klemmu sem
gert hefur ríkis-
stjórnina óstarf-
hæfa. Fyrirfram
var erfitt að sjá
að forsætisráð-
herra myndi
leika þannig af
sér frá málefna-
legum sjónarhóli.
Frá sjónarhóli valdanna getur
tvennt leitt til þess að stjórnin
styrkist í kjölfar þessara breyt-
inga:
Annað er að vinstri vængur VG
mun draga úr opinberum atlög-
um að formanni flokksins. Staða
hans batnar að því leyti þó að mál-
efnaleg forysta hans veikist. Ríkis-
stjórnin í heild mun hafa hag af
minni óróleika á yfirborðinu. Hitt
er að með komu Ögmundar Jónas-
sonar verða fjórir af tíu ráðherr-
um með raunverulegt áhrifavald
ráðherra í stað þriggja af tólf.
Þetta gefur stjórninni sterkara
yfirbragð.
Breytingin lengir líf stjórnar-
innar. Þeir sem gert hafa sér vonir
um stjórnarmyndun á grundvelli
Heimssýnarbandalagsins sjá nú
á eftir þeim möguleika. Þá ræður
persónuleg afstaða miklu um að
Samfylkingin og Sjálfstæðis-
flokkurinn geta ekki unnið saman.
Málefnalega hefur þó sjaldan
verið betra lag til að reka fleyg
í stjórnarsamstarfið frá miðju
stjórnmálanna.
SPOTTIÐ
ÞORSTEINN
PÁLSSON
AF KÖGUNARHÓLI ÞORSTEINS PÁLSSONAR
Vinstri vængurinn styrkist
Ögmundur Jónasson hafði forystu um að vinstri vængurinn gerði bandalag við Sjálfstæðisflokkinn,
Framsóknarflokkinn og Hreyfing-
una gegn samningi ríkisstjórnarinn-
ar um Icesave. Ætla verður að hann
hafi keypt ráðherradóminn með lof-
orði um að rjúfa þetta bandalag.
Það merkir að ríkisstjórnin þarf
að ljúka málinu með eigin þingstyrk
og án aðstoðar stjórnarandstöðunn-
ar. Ekkert mál hefur veikt stjórnina
meir en þetta. Samt vék forsætisráð-
herra ekki einu orði að stöðu þess í
tengslum við breytingarnar. Það er
veikleikamerki.
Ef þetta er hins vegar ekki með
í kaupunum eins og Ögmundur
Jónasson lét í veðri vaka er breyt-
ingin út í hött fyrir formennina.
Stjórnarflokkarnir sammæltust í
byrjun um að hrinda í framkvæmd
þeim áformum í stjóriðjumálum
sem sátt var um í fyrri ríkisstjórn
og endurreisnaráætlun Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins gerir ráð fyrir.
Samfylkingin hefur mátt þola að VG
stöðvaði framgang þessara mála.
Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar
kemur fram að vinstri vængur VG
hefur fengið því framgengt að samið
verður upp á nýtt um þessi mark-
mið. Þetta sýnir verulega aukinn
styrk vinstri vængsins í samstarf-
inu og veikari málefnastöðu Sam-
fylkingarinnar.
Þá gaf fjármálaráðherra út yfir-
lýsingu um að frekari ráðstafanir
yrðu ekki gerðar til að jafna ríkis-
sjóðshallann 2012. Þetta er til marks
um aukin áhrif vinstri vængsins og
forystuleysi Samfylkingarinnar um
hvað á að taka við þegar AGS fer að
ári.
Samfylkingin veikist
Á fyrstu klukkustundum í embætti á nýju verksviði innanríkisráðherra kom Ögmundur Jónasson með
tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu
um NATO. Í þessu felast þau skila-
boð að vinstri vængurinn ætlar að
auka áhrif sín á sviði utanríkismála.
Utanríkisráðherrann á að skilja að
enginn er annars bróðir í leik.
Það sýnir veikleika Samfylking-
arinnar að ekki er minnst á Evrópu-
sambandsumsóknina í nýju stefnu-
yfirlýsingunni. Viðmælendurnir
vita til hvers refirnir eru skornir.
Samningsstaða Íslands veikist í
samræmi við það. Eftir breyting-
una er þó ólíklegra að tillaga um
að afturkalla umsóknina verði sam-
þykkt, jafnvel þó að henni verði
breytt í ályktun um þjóðaratkvæða-
greiðslu.
Hitt er að vinstri vængurinn
hefur búið til það álit að ákvörðun
Alþingis hafi alls ekki falið í sér
heimild til að sækja um aðild heldur
aðeins að kanna möguleika á tilboð-
um frá Evrópusambandinu. Hann
hefur náð þeim tökum á flokknum
að gamla forystan virðist taka undir
þessa skilgreiningu.
Þetta þýðir að sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra verður ekki
einn um að vinna á vettvangi stjórn-
sýslunnar gegn því að umsóknar-
ferlið gangi eðlilega fram. Mögu-
leikarnir á því að þetta mikilvæga
mál verði leitt til lykta á starfstíma
þessarar stjórnar hafa því dvínað.
Reynist það rétt mat eru ráðherra-
breytingarnar niðurlæging fyrir
Samfylkinguna.
Þó að þjóðin græði það á umskipt-
unum að fjármunir fara ekki frá vel-
ferðarþjónustunni til að þjóðnýta
HS Orku munu þau ekki bæta stöðu
þjóðarbúsins. Aukheldur stuðla þau
að frekari einangrun Íslands.
Ríkari einangrunarhyggja
SKOÐUN
Óli Kristján
Ármansson
olikr@frettabladid.is
Í
slenska krónan er veik, hvað sem líður smástyrkingu síðustu
daga. Sumir myndu jafnvel ganga svo langt að segja að hún
lægi banaleguna, eða væri í það minnsta á gjörgæsludeild.
Og á meðan krónan er veik blæðir almenningi og fyrirtækj-
um, öðrum en þeim sem reiða sig á útflutning.
Forsenda þess að krónunni verði komið af gjörgæsludeildinni
er að fyrir liggi sýn á framtíð hennar. Eftir stendur þá spurningin
um hvort hún geti nokkurn tím-
ann verið stöðug. Sérfræðingar
efnahagsmála telja fæstir að
svo geti orðið nema þá að gjald-
eyrishöftum verði viðhaldið. Ef
hins vegar stefnan er tekin á að
skipta út krónunni fyrir evru
með stuðningi Seðlabanka Evr-
ópu og sýnt fram á hvernig það
muni gert, er líklegt að krónan
nái einhverri heilsu og fái jafnvel að verða aflögð með sæmd, í
stað þess að þurfa að þola einhvern harmkvæladauðdaga.
Forsætisráðherra benti á það á Alþingi í gær að hér hafi þróun
efnahagsmála verið um margt betri en búist hafi verið við eftir
hrun. Gylfi Zoëga hagfræðiprófessor, sem sæti á í peningastefnu-
nefnd Seðlabanka Íslands, hafði líka orð á þessu í grein sem hann
skrifaði nýverið í efnahagsritið Vísbendingu um hagstjórn og
efnahagsbata í kjölfar fjármálakreppu. Gengi krónunnar sé
stöðugra, vextir hafi lækkað og atvinnuleysi sé minna en búist
hafi verið við.
Um leið bendir Gylfi þó á að þeir sem telji að leiðin út úr
kreppunni felist í aukinni innlendri eftirspurn geri sér ekki
grein fyrir áhrifum gjaldeyriskreppunnar og mikilvægi þess að
fá aftur aðgang að erlendum fjármálamörkuðum og fjárfestingu.
Hann segir markmið hagstjórnar til skamms tíma eiga að vera
að „tryggja lágt en stöðugt“ gengi krónunnar þannig að afgangur
sé í viðskiptum við útlönd og erlend skuldastaða fara batnandi,
lága vexti, aðgengi að erlendu fjármagni og aðhald í ríkisrekstri.
„Reynslan mun leiða í ljós hvaða atvinnugreinar munu eflast við
þessar aðstæður,“ segir hann.
Ekki þarf hagfræðimenntun til að sjá að við lágt gengi krónu
eflast útflutningsatvinnuvegir og um leið halda áfram vandræði
þeirra sem skulda, bæði þeirra sem skulda í erlendri mynt og
hinna sem búa við hækkandi afborganir í aukinni verðbólgu.
Sterkara gengi krónu myndi til dæmis vinna hratt á skuldum
Orkuveitu Reykjavíkur og fjölda sveitarfélaga og þar með draga
úr þörfinni fyrir hækkandi álögur. Veik króna þýðir hærra verð
á innfluttum vörum.
Staða gjaldmiðilsins eftir hrun frá því í ársbyrjun 2008 er
óásættanleg þrátt fyrir smábata þann sem náðst hefur fram í
gjaldeyrishöftum síðustu mánuði. Vonandi er skilningur stjórn-
valda og þeirra sem ráða stefnunni í Seðlabankanum sá að lágt
gengi krónu megi ekki vera nema mjög tímabundið ástand.
Svara þarf spurningunni um hvernig eigi að efla gjaldmiðilinn
og tryggja stöðugleika hans í gildi sem ekki rýrir öll lífskjör í
landinu. Hvaða stöðugleiki er það sem stefnt er að? Vísast hugnast
fáum að við stillum okkur upp með láglaunaþjóðum heims og
fögnum stöðugum rýrum lífskjörum.
Ekki er sama hver stöðugleikinn er.
Veik króna áfram?
Karlakórinn Stefnir
fagnar nýjum söngmönnum - í allar raddir.
Þetta er áskorun!
Láttu sjá þig í Krikaskóla í Mosfellsbæ,
þriðjudaginn 7. september n.k. kl. 19:30.
Upplýsingar í síma:
863 4104 Guðmundur og 696 5446 Valur Páll
í Mosfellsbæ
Sími: 863 4104
E-mail: stefnir@stefnir.is
http://stefnir.is
K a r l a k ór i n n S t e f n i r