Fréttablaðið - 04.09.2010, Side 46

Fréttablaðið - 04.09.2010, Side 46
 4. 2 Sölubásar eru til leigu í göngugötunni í Mjódd fyrir þá sem vilja koma einhverju í verð. Leiga í einn dag kostar 4.000 krónur. Nánari upplýsingar er hægt að fá í síma 587 0230. Þjónustumiðstöð Breiðholts er til húsa að Álfabakka 12. Þjónustumiðstöðin er alhliða upplýsingamiðlun um þjónustu borgarinnar og þar er hægt að sækja um ýmiss konar þjónustu svo sem leikskólapláss, fjárhagsaðstoð, húsaleigubætur og heimaþjónustu. Í þjónustumiðstöðinni er veitt félagsleg ráðgjöf, sálfræði- og kennsluráðgjöf vegna leik- og grunnskólabarna, ýmis konar frítímaþjónusta og fleira. www.reykjavik.is Ný sending af brúðarkjólum er komin í Brúðarkjólaleigu Katrínar í Mjódd fyrir brúðkaup ársins 2010. Í Brúðarkjólaleigu Katrínar í Mjódd er mikið úrval fatnaðar fyrir öll tilefni og alla aldurshópa, bæði til sölu og leigu. Ný sending kom af brúðarkjólum fyrir árið 2010 og um að gera að kynna sér úrvalið. Á síðunni brudhjon.is má sjá myndir af þeim samkvæmiskjólum, herrafatnaði, undirfötum, skóm og fylgihlutum sem til eru auk fjölda mynda af fallegum brúðarkjólum. - eö Nýir brúðarkjólar Mikið úrval af alls konar brúðarkjólum er í Brúðarkjólaleigu Katrínar. „Ég held að lykill að vinsældum matsölunnar sé fyrst og fremst gott hráefni, góður matur og gott verð, en verðið skiptir verulegu máli, ekki síst nú í kreppunni. Þá eru margir hrifnir af góðu and- svari heimilismatar við ham- borgara og pitsum, og mikið af fjölskyldufólki sem kemur til að kippa með sér gómsætum heimilis- mat að kvöldi dags,“ segir Halldór Þórhallsson matreiðslumeistari sem við góðan orðstír hefur rekið matsölustaðinn Hjá Dóra matsala síðustu fjórtán ár í horninu hjá Nettó. „Ég starfaði áður sem kokkur í Perlunni en varð þreyttur á nætur- vinnunni sem því fylgdi og lang- aði í rólegra starf. Því veðjaði ég á búðarmat, sem reyndist svo ekkert rólegra heldur hefur stöðugt undið upp á sig og er búið að vera mjög gott allan tímann,“ segir Dóri og hlær yfir pottunum. Á boðstólum er almennur heim- ilismatur, bæði í hvunndags- og helgarstíl. „Við bjóðum átta fasta rétti á hverjum degi, þar á meðal lambalæri, svínarifjasteik, kjúkl- inga, djúpsteikta ýsu og kjötbollur og tvo breytilega rétti sem þó eru fastir eftir dögum. Því gengur fólk að því vísu að sami matur sé í boði þessa föstu daga, en upphaflega ætlaði ég að leika mér með þessa tvo rétti. Það var fljótt flautað af því þá sagði fólk: „Þetta er ekki hægt, Dóri! Við sem erum komnir um langan veg í hakkabuffið!“ Dóri hefur opið í hádeginu og aftur á kvöldin frá 17 til 19. „Stór hluti þeirra sem borða hér í hádeginu eru fastagestir sem koma í vinnuhléi sínu. Á kvöldin er svo fjölskyldufólk í meirihluta, og góður viðskiptahópur eru eldri borgarar sem búa í nágrenninu,“ segir Dóri sem selur matarskammta eftir vigt. „Þannig þarf gamla konan sem borð- ar lítið að borga lítið, meðan sá sem borðar meira borgar aðeins meira,“ segir Dóri sem líkir matsölunni oft við Bæjarins bestu. „Það hefur skapast góð hefð fyrir þessum stað og hér gengur fólk að sama góða matnum vísum eins og pulsunum á Bæjarins bestu, þar sem engar líkur eru á kínarúllu einn daginn í staðinn.“ thordis@frettabladid.is Erum voða heimilislegir Notalegt andrúmsloft, skemmtilegur erill og heimilislega lokkandi matarilmur sameina aðdráttarafl og töfra matsölunnar hans Dóra sem dregið hefur svanga sælkeramaga í Mjóddina í hálfan áratug. Hér mótar Halldór Þórhallsson matreiðslumeistari vel útilátin og girnileg hakkabuff í eldhúsi matsölu sinnar í Mjódd þar sem ljúffengur heimilismatur og heimilislegt viðmót ráða ríkjum. Í pottinum hrærir kokkurinn Björn Þór Jóhannsson. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Gáski sjúkraþjálfun hefur nú verið 2 ár í Mjóddinni og fagnar nýjum sjúkraþjálfara. Ágústa Sigurjónsdóttir er kærkomin viðbót við hóp 20 sjúkraþjálfara sem vinna í Gáska í Mjódd og Bolholti gaski@gaski.is 568 9009 fyrir fallegar konur. Flott föt Sími 557 2010 www.vefta.is Viltu bæta við þekkingu þína ? Við bjóðum grunnnám í íslensku, ensku og stærðfræði á haustönn 2010 Upplýsingar í síma 411 7040 Kennsla fer fram hjá Námsflokkum Reykjavíkur, Þönglabakka 4, efri hæð. Íslenska er kennd kl. 13.00 - 15.00 á þriðjudögum og fimmtudögum Enska er kennd mánudögum og miðvikudögum kl. 15.15 - 17.15 Stærðfræði er kennd kl. 13.00 - 15.00 á mánudögum og miðvikudögum eða kl. 17.20 - 19.20 á þriðjudögum. Verð einnar námsgreinar er 16.000 kr. Verð tveggja námsgreina er 21.000 kr. Verð þriggja námsgreina er 26.000 kr. Innritunargjald er 5.000 kr.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.