Fréttablaðið - 04.09.2010, Síða 80

Fréttablaðið - 04.09.2010, Síða 80
 4. september 2010 LAUGARDAGUR48 Minnisvarði um Guðmund Bergþórs- son rímnaskáld (1657-1705) verður afhjúpaður að Stöpum á Vatnsnesi í dag en hann er talinn fæddur á þeim bæ. Athöfnin er hluti af árlegri haust- ferð Kvæðamannafélagsins Iðunnar, sem er ætíð farin fyrsta laugardaginn í septembermánuði. Af því tilefni mun Þórarinn Eldjárn rithöfundur minn- ast Guðmundar með nokkrum orðum en hann ritaði sögulega skáldsögu um Guðmund undir titlinum Kyrr kjör. Bókin kom út árið 1983 og er jafnframt fyrsta skáldsaga Þórarins sem kveðst hafa heillast af hæfileikum og dugnaði skáldsins. „Satt best að segja varð ég fyrst var við Guðmund fyrir hálfgerða tilviljun, þegar ég rakst á bækur um íslenskar rímur á háskólabókasafninu í Stokk- hólmi þar sem ég sat löngum við skrift- ir. Fram að því hafði ég aldrei rekist á hann í íslenska skólakerfinu og fannst stórmerkilegt að uppgötva að þessi maður skyldi ná svona langt þrátt fyrir mikla fötlun, sem lýsti sér í því að hann var frá fjögurra ára aldri lam- aður að mestu leyti neðan við háls og mjög krepptur. Engu að síður orti hann fjölda rímna, þar á meðal þær lengstu sem vitað er um, Olgeirs rímur danska, sem Rímnafélagið gaf út í tveimur þykkum bindum árið 1947.“ Þessir andans sigrar urðu kveikj- an að ritun fyrrnefndu skáldsögunnar Kyrra kjara, þar sem Þórarinn studd- ist við fjölda heimilda, meðal annars ýmsa sagnaþætti og þjóðsögur sem til eru um Guðmund. „Til dæmis eru til þjóðsögur sem sýna að Guðmundur var ekki bara gáfaður heldur kænn. Þannig spilaði hann inn á trúgirni manna og nýtti sér þá staðreynd að af honum fóru þær sögur að hann væri krafta- skáld auk þess sem varasamt væri að styggja hann þar sem hann gæti unnið mönnum mein með galdrabrögðum. Á þeim tíma hefur sjálfsagt komið sér vel fyrir fatlaðan einstakling að hafa slíkt orðspor,“ segir Þórarinn og bætir við að hefði Guðmundur verið heilbrigður hefði hann sjálfsagt lent í erfiðisvinnu eins og aðrir alþýðumenn og því hugs- anlega aldrei orðið skáld, að minnsta kosti ekki eins afkastamikið og raun ber vitni. Þau ógrynni rímna sem eftir Guð- mund liggja þykja Þórarni tvímæla- laust hafa aukið menningarverðmæti þjóðarinnar. „Guðmundur var klárlega okkar albesta og mikilvirkasta ríman- skáld eins og rímurnar eru til vitn- is um, en þær sýna að hann var fróð- ur og vel að sér í kveðskaparlistinni, verseraður í kenningum og skáldskap- arfræðum. Til frekari marks um gæðin má svo benda á að í mansöngvum rímna Guðmundar bregður fyrir per- sónulegum tón sem oft er nú ekki til staðar hjá rímnaskáldum.“ Þórarinn bendir á að sjálfsagt sé Guðmundur eins lítt þekktur og raun ber vitni þar sem rímur séu formsins vegna almennt langar og því „ekki við hæfi allra nútímamanna. „Sum kvæða hans eru þó mjög þekkt meðal lands- manna, svo sem Fuglskvæðið sem hefst á línunni Einsetumaður einu sinni, sem oft má heyra flutt meðal ann- ars af Þursaflokknum,“ tekur Þórar- inn sem dæmi og getur þess að þannig hafi listamenn í seinni tíð haldið nafni Guðmundar á lofti. Minnisvarðinn um Guðmund er reistur af þremur kvæða- mannafélögum, Gefjunni á Akureyri, Iðunni í Reykjavík og Vatnsnesingi á Vatnsnesi og með honum er minnst þeirra alþýðuskálda sem með rímna- kveðskap sínum stuðluðu drjúgt að áhuga almennings á skáldskap og fróð- leik. Páll Guðmundsson á Húsafelli hjó í steininn, sem tekinn er úr fjörunni fyrir neðan Stapa. Þjóðhátíðarsjóður, Menningarráð Norðurlands vestra og Öryrkjabandalag Íslands styrkja verk- ið. Lagt verður af stað í ferðina frá BSÍ klukkan 8 í dag og er áætlað að koma að Stöpum um klukkan 17 eftir hring- ferð um Vatnsnesið. roald@frettabladid.is KVÆÐAMANNAFÉLAGIÐ IÐUNN: AFHJÚPAR MINNISVARÐA UM GUÐMUND BERGÞÓRSSON SKÁLD Dugnaðarforkur og gott skáld MIKILVIRKT RÍMNASKÁLD Þórarinn Eldjárn með söguna Kyrr kjör sem hann skrifaði um alþýðu- skáldið Guðmund Bergþórsson. Minnisvarði um Guðmund verður afhjúpaður að Stöpum á Vatnsnesi í dag og af því tilefni ætlar Þórarinn að minnast skáldsins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA STEVE IRWIN ævintýramaður lést þennan dag árið 2006. „Ekki skiptir máli hvar þú ert eða hvert þú ferð í Bandaríkjunum, ef þú kveikir á sjónvarpinu mætir þér ofbeldi.“ Á þessum degi árið 1969 var Björgvin Hall- dórsson, 18 ára, kosinn poppstjarna ársins á popphátíð í Laugardalshöll í Reykjavík. Björgvin hóf tónlistarferilinn í hljómsveitinni Bendix með vinum sínum í Flensborg. Þaðan fór hann yfir í Flowers þar sem hann tók við af Jónasi R. Jónssyni sem söngvari. Eftir það stofnaði hann hljómsveitina Ævintýri árið 1968 ásamt félögum sínum Sigurjóni Sighvatssyni og Arnari Sigurbjörnssyni. Hljómsveitin spilaði á popphátíðinni í Laugar- dalshöllinni 1969 fyrir fimm þúsund manns. Lögin sem þeir spiluðu voru flest rokklög, mörg úr smiðju Rolling Stones og féllu vel í kramið. Á þeirri hátíð var Björgvin kosinn poppstjarna ársins og Ævintýri vinsælasta hljómsveitin. ÞETTA GERÐIST: 4. SEPTEMBER 1969 Björgvin kosinn poppstjarna ársins timamot@frettabladid.is Bróðir okkar Jónas Þórhallsson bóndi Stóra Hamri Eyjafjarðarsveit, verður jarðsunginn frá Munkaþverárkirkju þriðjudaginn 7. september kl. 14.00. Fyrir hönd vandamanna, systkinin. erf idr yk kjur G R A N D Hlýlegt og gott viðmót á Grand hótel. Fjölbreyttar veitingar lagaðar á staðnum. Næg bílastæði og gott aðgengi. Grand Hótel Reykjavík Sigtún 38, 105 Rvk. Sími: 514 8000 www. grand.is erfidrykkjur@grand.is Verið velkomin á Grand hótel Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við and- lát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, tengdasonar og afa, Ævars Heiðars Jónssonar múrarameistara, Lönguhlíð 14, Akureyri. Helga Jóhannsdóttir Jóhann Valur Ævarsson Jóna Ragúels Gunnarsdóttir Halla Sif Ævarsdóttir Sverrir Guðmundsson Valrós Árnadóttir Helga, Atli Fannar, Elva Hrund, Arnar, Sindri og Sölvi. Ástkær eiginmaður minn, Gunnlaugur Jóhannesson Grænlandsleið 37, lést 1. september. Jarðsungið verður frá Guðríðarkirkju miðvikudaginn 8. september kl. 13.00. Sigríður Ólafsdóttir Hanna K. Daníelsdóttir Valur Gunnarsson Gunnar Gunnlaugsson Styrgerður H. Jóhannesdóttir Ólafur Á. Gunnlaugsson Benedikta Theodórs Arnbjörg Gunnlaugsdóttir Reynir Gunnlaugsson Kristín G. Guðbrandsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu vegna andláts og útfarar elskulegrar móður okkar, tengdamóður, systur, ömmu og langömmu, Sigríðar Jónu Kristinsdóttur Kirkjuvegi 59, Vestmannaeyjum. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja fyrir góða umönnun. Kristinn Agnar Hermansen Guðfinna Edda Eggertsdóttir Jóhanna Hermansen Ágúst Birgisson Gísli Kristinsson Guðni Agnar Kristinsson Sólveig Lára Sigurðardóttir Jóna Guðrún Kristinsdóttir Elva Björk Ágústsdóttir Ágúst Ingi Arason Ari Birgir Ágústsson Guðni Agnar Ágústsson Sigríður Margrét Ágústsdóttir Brynjar Ingi Ágústsson Elskulegur frændi minn, bróðursonur, systursonur og mágur, Gylfi Þröstur Friðriksson frá Ísafirði, Skúlagötu 76, Reykjavík, er látinn. Útför hans fer fram frá Neskirkju við Hagatorg fimmtudaginn 9. september kl. 15. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarstofnanir. Örn Bárður Jónsson Salóme Guðmundsdóttir Magnúsína Ólafsdóttir Eiríkur Þóroddsson
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.