Fréttablaðið - 01.10.2010, Blaðsíða 16
16 1. október 2010 FÖSTUDAGUR
Ragnar vonast til þess að þegar
orkumál leysist verði um tvö ár
þar til framleiðsla geti hafist í
fyrsta áfanga álvers, en segir ekki
hægt að slá neinu föstu. „Það eru
allar efnahagslegar forsendur til
að fara af stað fljótlega og ég bind
vonir við að samræmingarverk-
efni iðnaðarráðherra muni verða
til þess að koma málinu af stað.“
Enn virðist töluvert vera í land
varðandi álverið og óvissuþætt-
irnir margir. Orkuöflun er þar
efst á blaði, en aðgangur að fjár-
magni til virkjunarframkvæmda
gæti einnig sett strik í reikning-
inn.
Þá eru sem fyrr harðar deilur í
samfélaginu um það hvort stóriðja
sé svarið til að koma hjólum efna-
hagslífsins í gang á ný, eða hvort
svarið leynist á öðrum sviðum.
Enn er ekki búið að taka af öll tví-
mæli um framgang álversins og
þar til orkuöflun er trygg munu
þaksperrurnar í Helguvík standa
berar enn um sinn.
FRÉTTASKÝRING: Hvar stendur Helguvíkurálverið?
Tafir á álversframkvæmd-
um í Helguvík má helst
rekja til vandræða við
orkuöflun. HS Orka bíður
virkjunarleyfis á Reykja-
nesi og OR hefur enn ekki
lokið fjármögnun í Hvera-
hlíð. Forstjóri Norðuráls
gagnrýnir seinagang um-
hverfisráðherra.
Framkvæmdir við fyrirhugað
álver Norðuráls í Helguvík hafa
verið í biðstöðu um nokkra hríð
þar sem lítið virðist þokast.
Málið má rekja aftur til árs-
ins 2005 þegar Norðurál, Hita-
veita Suðurnesja og Reykjanes-
bær undirrituðu viljayfirlýsingu
um að skoða möguleikana á álveri
í Helguvík. Fyrsta skóflustungan
var tekin árið 2008, en nú stendur í
Helguvík stálgrind kerskála og eru
framkvæmdir þar í algjöru lág-
marki. Norðurál stefnir þó ótrautt
að álveri með 360.000 tonna fram-
leiðslugetu sem muni rísa í fjórum
90.000 tonna áföngum.
Hver bendir á annan
Talsmenn álvers hafa lagt áherslu
á þýðingu stóriðju og framkvæmda
fyrir Suðurnes, sem býr nú, sem
lengi fyrr, við mesta atvinnuleysi
á landinu.
Þeir hafa mætt einarðri and-
stöðu umhverfisverndarsinna og
annarra sem hafa efasemdir um
stóriðju auk þess sem misvísandi
skilaboð berast frá aðstandendum
verkefnisins þar sem enginn vill
meina að ferlið strandi hjá sér.
Ríkisstjórninni hefur verið legið
á hálsi að hafa ekki lagst með full-
um krafti á árarnar, en hét því þó
í stöðugleikasáttmála við aðila
vinnumarkaðarins að: „greiða götu
þegar ákveðinna stórframkvæmda
sbr. þjóðhagsáætlun, s.s. fram-
kvæmda vegna álvera í Helguvík
og Straumsvík.“
Þá var undirritaður fjárfesting-
arsamningur milli Norðuráls og
ríkisins í ágúst 2009.
Ráðherra kallaði einnig til fund-
ar fyrir um mánuði þar sem allir
hagsmunaaðilar, Norðurál, orku-
fyrirtækin, stofnanir og sveitar-
félög, hittust til að reyna að eyða
óvissu um verkefnið.
Óvissan snýst fyrst og fremst
um raforku þar sem áætlanir Hita-
veitu Suðurnesja, síðar HS Orku,
og Orkuveitu Reykjavíkur (OR) um
orkuöflun hafa ekki staðist.
Orkuöflun og skipulagsmál
Orkumálið er margslungið enda er
orkuöflun tímafrekt ferli sem er
háð opinberum leyfum, skipulags-
málum sveitarfélaga, fjármögn-
un virkjana og ekki síst því að vel
gangi að finna orku og flytja hana
til Helguvíkur.
Fyrirhugaðar línulagnir mættu
mikilli andstöðu, en samkomulag
hefur nú tekist milli Landsnets og
sveitarfélaga um leguna.
OR er þegar komið með rann-
sóknarleyfi í Hverahlíð, þar sem
hún áformar að sækja 100Mw fyrir
Norðurál. Sveitarfélagið Ölfus
hefur gefið leyfi til að bora þar,
en OR á enn eftir að fá fyrirhuguð
mannvirki inn í deiliskipulag.
Einnig á eftir að ljúka fjármögn-
un fyrir þær framkvæmdir, en
gangi það allt upp miðar OR við að
geta afgreitt raforku eftir tvö ár.
Stækkun Reykjanesvirkjunar
þar sem til stendur að fá 80Mw
bíður enn virkjanaleyfis frá Orku-
stofnun, en það mál er í eðlilegu
ferli, samkvæmt upplýsingum frá
Orkustofnun. Vísindamenn grein-
ir á um hvort jarðhitasvæðið á
Reykjanesi standi undir stækkun
virkjunar og er það meðal annars
til skoðunar.
Þá hefur HS Orka fengið leyfi
Hafnarfjarðarbæjar til tilrauna-
borana í Krýsuvík, en bíður þess
enn að Grindavíkurbær afgreiði
skipulagsmál í Eldvörpum þar sem
einnig var fyrirhugað að sækja
orku til verkefnisins.
Júlíus Jónsson, forstjóri HS
Orku, segir í samtali við Frétta-
blaðið að gangi allt upp gæti fyr-
irtækið skilað tilætlaðri orku eftir
um fjögur ár.
„Reykjanes gæti skilað 50Mw
eftir tö ár og 30Mw allt að ári
seinna. Hitt veltur á því hvernig
gengur með boranir, en gæti orðið
árið á eftir ef allt gengur upp og
ferlið verður ekki of tafsamt.“
Norðurál: Ekkert að vanbúnaði
Ragnar Guðmundsson, forstjóri
Norðuráls, segir fyrirtækið hafa
gengið frá öllum sínum málum.
„Við höfum klárað allt sem snýr
að álverinu, öll leyfi og slíkt. Okkur
er því ekkert að vanbúnaði með að
fara af stað. Við bíðum eftir stað-
festingu frá orkufyrirtækjunum,
sérstaklega HS Orku um orkuaf-
hendingu.“
Ragnar segir OR hafa uppfyllt
sína samninga varðandi fyrsta
áfanga og vinna sé í fullum gangi
fyrir næstu skref. HS Orka hafi
ekki getað klárað sitt, m.a. vegna
leyfa og breytinga á eignarhaldi
fyrirtækisins.
„Það hafa verið tafir á leyfis-
ferlum í tengslum við verkefnið,
bæði hvað varðar skipulagsmál og
annað, líkt og virkjanaleyfi út af
stækkun á Reykjanesvirkjun. Þá
má nefna rammaáætlun sem hefur
verið föst í þinginu í marga mán-
uði en niðurstaða hvað það varðar
auðveldar alla umræðu.“
Þá segir Ragnar líka að
umhverfisráðuneytið hafi ítrek-
að farið langt fram úr eðlilegum
tímamörkum við afgreiðslu mála.
Hann tekur sem dæmi afgreiðslu
á skipulagstillögum í Ölfusi sem
tengist áætlunum OR. Það mál hafi
borist ráðuneytinu í byrjun apríl
og hefði átt að vera lokið í byrjun
júlí. „Nú, þremur mánuðum eftir
að ráðuneytið átti að klára málið,
er ráðherra allt í einu vanhæfur.
Það hefði mátt sjá strax í apríl en
núna veit enginn hvenær þessu
máli lýkur enda mörg brýn verk-
efni sem hvíla á nýjum velferðar-
ráðherra.“
Orkuöflun til Helguvíkur enn óleyst
Í HELGUVÍK Þaksperrur fyrirhugaðs kerskála álversins eru komnar upp en líklega verður enn bið á framkvæmdum þar til orkumál eru útkljáð. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Þorgils
Jónsson
thorgils@frettabladid.is
Í samningum Norðuráls við HS og OR frá
árinu 2007 er gert ráð fyrir að HS afhendi
allt að 150Mw og OR 100Mw fyrir fyrsta
áfanga versins árið 2010.
Heildarorkuþörf fyrir 360.000 tonna álver
er 625Mw.
Orkuþörf álvers
2005
maí
2006
apríl
2007
apríl
2008
mars
júní
september
2009
júní
ágúst
2010
ágúst
Álver í Helguvík: Frá ári til árs
15. maí 2005: Century Aluminum, Reykjanesbær og Hitaveita Suður-
nesja hefja könnun á möguleikum á álveri Norðuráls í Helguvík. Þetta eru
fyrstu staðfestu fregnirnar um væntanlegt álver.
27. apríl 2006 Lóðarsamningur
undirritaður milli Norðuráls og
Reykjanesbæjar. Með því tryggir
Norðurál sér lóð, ásamt því að
semja um gjöld til Reykjanesbæjar.
23. apríl 2007 Samningar um
orkusölu milli Hitaveitu Suðurnesja
og Norðuráls. Þessi samningur var
undirritaður í kjölfar viljayfirlýsingar
milli Norðuráls, HS og Orkuveitu
Reykjavíkur, sem undirritaði orku-
sölusamning nokkrum vikum síðar.12. mars 2008 Reykjanes-
bær og Sveitarfélagið Garður
veita Norðuráli byggingarleyfi
fyrir álveri. Tveimur dögum
síðar hófust undirbúnings-
framkvæmdir í Helguvík.
6. júní 2008 Fyrsta skóflustunga
tekin að álveri í Helguvík. Ráðherrar,
bæjarstjórar og þingmenn svæðisins
tóku þátt í athöfninni þar sem
andstæðingar álversins mótmæltu
harðlega.
10. september 2008 Norðurál
fær starfsleyfi frá Umhverfis-
stofnun.
25. júní 2009 Stöðugleikasátt-
málinn undirritaður. Þar kveður
á um að Helguvíkurálveri verði
unnið brautargengi .
7. ágúst 2009 Iðnaðarráðherra og forsvarsmenn Norðuráls undirrita
fjárfestingarsamning .
30. ágúst 2010 Iðnaðarráðherra stendur fyrir samstarfsfundi með Norð-
uráli, orkufyrirtækjunum, sveitarfélögum og stofnunum, til að ræða stöðu
mála og eyða óvissu varðandi framhaldið.