Fréttablaðið - 01.10.2010, Qupperneq 12
12 1. október 2010 FÖSTUDAGUR
EVRÓPUMÁL Norsk samtök, sem berj-
ast með og á móti inngöngu Noregs
í Evrópusambandið, styðja systur-
samtök sín á Íslandi á ýmsan hátt
og stendur meðal annars yfir fjár-
söfnun fyrir Heimssýn, íslensku
nei-samtökin.
Á heimasíðu hins norska „Nei við
ESB“ er fjallað um hugsanlega inn-
göngu Íslands. Þar segir að norsku
samtökin miðli af þekkingu sinni og
reynslu til Íslendinganna. Ferðalög
og þýðingar kosti sitt:
„Styðjið íslensku nei-hliðina með
framlagi inn á samstöðureikning
Nei við ESB,“ segir þar og númer
bankareiknings fylgir.
Á heimasíðu norsku Evrópuhreyf-
ingarinnar er einnig fjallað um
aðildarviðræður Íslands. Hreyfing-
in muni fylgjast vel með ferlinu og
styðja við íslensku já-hliðina, ásamt
Fjölþjóðlegu Evrópuhreyfingunni.
Ekki er að heyra á Páli Vilhjálms-
syni, starfsmanni Heimssýnar, að
söfnunin hafi skilað miklu. Félag-
ið hafi fengið „sama og ekkert“ í
aurum talið frá norsku samtökun-
um.
Þó fór hópur frá Heimssýn á
landsfund hjá norska nei-inu í fyrra
og greiddu Norðmenn ferð og uppi-
hald. Eins komu Norðmennirnir
hingað með litla sendinefnd og
greiddu sjálfir fyrir.
„Þar kynntumst við því hvern-
ig þeir skipulögðu baráttuna gegn
ESB-samningnum 1994 og það var
Norðmenn takast á
um ESB-aðild Íslands
Norskar hreyfingar með og á móti ESB-aðild landsins styðja íslensku systur-
samtökin Heimssýn og Sterkara Ísland á ýmsan hátt. „Innganga Íslands skiptir
miklu máli fyrir Noreg“ segir á einni heimasíðu og reikningsnúmer er birt.
HVAÐA ÁHRIF HEFÐI INNGANGA ÍSLANDS? Lesa má um
áhuga Norðmanna á aðildarumsókn Íslendinga á www.
neitileu.no og á www.jasiden.no. FRÉTTABLAÐIÐ/KLEMENS
BRYNDÍS ÍSFOLD
HLÖÐVERSDÓTTIR
PÁLL
VILHJÁLMSSON
LITLA-HRAUN Fíkniefnahundur merkti á
manninn í heimsóknarálmunni.
DÓMSMÁL Karlmaður á þrítugs-
aldri hefur verið dæmdur í Hér-
aðsdómi Suðurlands í 120 þús-
unda króna sekt fyrir að reyna
fyrr á árinu að smygla fíkniefn-
um inn á Litla-Hraun.
Maðurinn var með rúmlega
gramm af amfetamíni og tæpt
gramm af maríjúana sem hann
faldi í nærfötum sínum. Fíkni-
efnahundur merkti á hann í
heimsóknarálmu fangelsisins.
Maðurinn mætti ekki fyrir dóm-
inn. - jss
Dæmdur til að greiða sekt:
Með fíkniefni í
nærfötunum
DÓMSMÁL Kona á fertugsaldri
hefur verið ákærð fyrir að ráðast
á karlmann.
Konunni er gefið að sök að hafa
í sumar ráðist á mann, sér litlu
eldri, utan dyra á Selfossi. Hún
lamdi hann í bakið, reif í hár
hans og beit hann í síðuna yfir
mjaðmarkambi.
Maðurinn hlaut eymsli yfir
hálsi, niður brjósthrygg og í
hársverði, ásamt bitfari á síðu.
Konan játaði við þingfestingu
að hafa bitið hann. -jss
Ákærð fyrir líkamsárás:
Kona beit mann
í hægri síðuna
UTANRÍKISMÁL Jóhanna Sigurðar-
dóttir forsætisráðherra hefur
boðið Barack
Obama, forseta
Bandaríkj-
anna, að heim-
sækja Ísland.
Er þetta gert
með formleg-
um hætti til
þess að efla
enn frekar
samskipti land-
anna.
Jóhanna hitti Obama í síðustu
viku í tengslum við allsherjar-
þing Sameinuðu þjóðanna. Þar
áréttaði hún boð sitt við Banda-
ríkjaforseta, sem var síðast
boðið til landsins af Össuri
Skarphéðinssyni í apríl 2009.
Ronald Reagan, fyrrverandi
Bandaríkjaforseti, sótti Ísland
heim árið 1986. - sv
Bandaríkjaforseti fær boð:
Obama boðið í
Íslandsheimsókn
BARACK OBAMA
ÞÚSUND ÁRA AFMÆLI Stjórnvöld í
Víetnam hafa skreytt götur höfuðborg-
arinnar Hanoi til að búa landsmenn
undir þúsund ára afmæli Víetnams.
Margir íbúanna hafa þó látið sér fátt
um finnast. NORDICPHOTOS/AFP
heilmikið á því að græða,“ segir
Páll. Minna samstarf hafi verið
við sænska og danska nei-ið, en frá
dönsku samtökunum hafi þó Evr-
ópuþingmaður, neikvæður í garð
ESB, heimsótt Heimssýn á kostnað
Evrópuþingsins.
Bryndís Ísfold Hlöðversdótt-
ir, framkvæmdastjóri Sterkara
Íslands, segir samtökin enga pen-
inga hafa fengið frá Norðmönnum.
„Nei. Við vorum í samstarfi við
norsku samtökin um fyrirlestur
Joe Borg. Þau borguðu hluta kostn-
aðarins á móti okkur,“ segir hún en
veit ekki nákvæmlega hvernig því
var skipt.
„Um leið funduðum við með
stjórn norsku samtakanna um helg-
ina, sem var mjög gagnlegt,“ segir
hún. Einnig sé félagið í samstarfi
við Fjölþjóðlegu Evrópuhreyfing-
una í gegnum íslensku Evrópusam-
tökin.
Engin söfnun standi yfir hjá
norsku já-hliðinni eins og hjá nei-
hliðinni gagnvart Heimssýn.
klemens@frettabladid.is