Fréttablaðið - 01.10.2010, Blaðsíða 68

Fréttablaðið - 01.10.2010, Blaðsíða 68
48 1. október 2010 FÖSTUDAGUR Vefsíðufyrirtækið Davíð & Golíat skaut mörgum bandarískum vefsíðugerðar- fyrirtækjum ref fyrir rass þegar þurfti að smíða vef- síðu fyrir góðgerðarsamtök- in The Golden Hat Found- ation. Eins og Fréttablaðið greindi frá fyrir skömmu hefur Óskarsverð- launaleikkonan Kate Winslet, í samstarfi við Margréti Dagmar Ericsdóttur, sett á fót góðgerðar- stofnunina The Golden Hat Found- ation. Winslet talaði inn á ensku útgáfuna af Sólskinsdrengnum eftir Friðrik Þór Friðriksson og hreifst mjög af óþrjótandi baráttu Mar- grétar og Kela, einhverfa stráksins hennar. Þegar búið var að ákveða að stofna góðgerðarstofnunina þurfti að gera vefsíðu og eftir nokkra leit og tilboð hrepptu íslensku fyrirtæk- in Davíð og Golíat og Hvíta húsið hnossið. „Þetta var allt unnið með henni og hennar hægri hönd og þá sérstaklega í sambandi við hönnunina. Við erum nátt- úrulega enn að vinna í vefnum en þetta er að miklu leyti byggt á hugmyndum hennar og aðstoðarfólksins,“ segir Yngvi Tómasson hjá Davíð & Golíat. Það er Vala Þóra Sig- urðardóttir hjá Hvíta húsinu sem á heiðurinn af hönnun vefsins en Davíð & Golíat sáu síðan um tækni- legar útfærslur og smíði hans auk þes sem fyrirtækið hýsir vefinn. „Við vorum í mjög nánu sambandi við Winslet og Mar- gréti líka. Nei, það kom mér ekkert á óvart að Winslet skyldi hafa svona sterkar skoðanir á öllu. Það eru gerðar mikl- ar kröfur um að allt frá henni sé í hæsta gæðaflokki,“ útskýrir Yngvi og bætir því við að Winslet hafi verið feykilega sátt með vefsíð- una og hönnun Völu. Undirbúningurinn fyrir vefsíðugerðina sjálfa tók heil- an mánuð en ferlið í kring- um þetta var mikið lengra. „Við unnum með Margréti að gerð vefsíðunnar fyrir Sólskinsdrenginn. Við vissum því að þetta stæði mögulega til og það var Margrét sem gaf okkur möguleika á því að gera tilboð í verkefnið. Þetta er góður gluggi fyrir okkur því það er mikil umferð um vefinn, sér- staklega frá Bandaríkj- unum, og gefur okkur og Hvíta húsinu tækifæri til að sækja á ný mið.“ freyrgigja@frettabladid.is Gerðu vefsíðu fyrir Winslet FÓLKIÐ Á BAK VIÐ VEFINN Vala Þóra Sigurðardóttir hannaði vefinn fyrir Kate Winslet en Yngvi Tómasson og félagar hjá Davíð & Golíat sáu um að smíða hann. Fyrirtækið hýsir vefinn einnig en mikil umferð hefur verið um hann. Lógóið birtist einnig á vefsíðu Virgin-fyrirtækisins sem er í eigu Richards Branson. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Ástralska söngkonan Kylie Minogue hefur keypt sér í hús London þar sem hún ætlar að búa með kærasta sínum, spænsku fyrirsætunni Andr- es Velencoso Segura. Þau hafa verið saman í tvö ár. Fyrr á árinu var talið að þau væru að hætta saman en Minogue neitaði því alfarið. „Ég er virkilega hamingjusöm. Mér finnst þetta vera ný byrjun á lífi mínu. Mig hefur langað að flytja, mjög lengi, og ég var búin að leita úti um allt án þess að finna neitt,“ sagði söngkonan. „Þetta er staður þar sem mamma og pabbi geta verið tíðir gestir. Ég á líka loks- ins minn eigin garð og ég hlakka til að reyna fyrir mér í garðyrkjustörf- unum.“ Kylie kaupir sér hús KYLIE MINOGUE Söngkonan er flutt inn í nýtt hús með kærasta sínum, Andres Segura. Gísli Örn Garðarsson og Víking- ur Kristjánsson ætla að fljúga frá London til Reykjavíkur og bjarga þannig frumsýningu íslensku kvik- myndarinnar Brims eftir Árna Ólaf Ásgeirsson en hún verður lokamynd alþjóðlegu kvikmynda- hátíðarinnar í Reykjavík á laugar- dagskvöld. Lengi vel var allt útlit fyrir að það yrðu ansi fáir leikarar á frumsýningunni. Stærstur hluti leikhópsins Vesturports frumsýn- ir Faust í Young Vic-leikhkúsinu í London í kvöld og svo eru þeir Ingvar E. Sigurðsson og Ólaf- ur Egill Egilsson að leika í Íslandsklukku Þjóð- leikhússins á sjálfu frumsýningarkvöld- inu en þeir leika báðir stór hlutverk í myndinni. Gísli er auðvitað „bara“ leikstjóri Faust og hans verður því ekki saknað af sviðinu í Young Vic. Víkingur hefur aftur á móti verið skrifaður út úr verk- inu vegna anna á heimavígsstöðv- unum; konan hans, Halldóra Rut Bjarnadóttir, er komin í leiklist- arnám við Listaháskóla Íslands en þau eignuðust barn fyrir þrem- ur mánuðum. „Hans hlutverki var bara dreift á aðra leikara,“ segir Gísli Örn í samtali við Fréttablað- ið. Tvö og hálft ár er liðið frá því að tökur á Brimi hófust en kvik- myndin er byggð á samnefndu verki Jóns Atla Jónassonar. „Ég held að ég hafi leik- ið í heilli Holly- wood-mynd á milli þess sem tökum lauk og myndin er frumsýnd,“ grínast Gísli með og bætir því við að þetta hljóti að vera besta dæmið um það hversu vand- virkir þeir hafi verið við eftirvinnslu myndarinn- ar. - fgg Gísli Örn bjargar frumsýningu Brims LONDON-REYKJAVIK-LOND- ON Gísli Örn Garðarsson frumsýnir Faust í kvöld í London. Hann flýgur svo heim til að vera viðstadd- ur frumsýn- ingu Brims. Víkingur Kristjánsson verður með honum í för. Námskeiðið er kennt á þriðjudögum og fi mmtudögum klukkan 20:00 – 21:00 í fjórar vikur í senn. Þátttekendur geta mætt í alla opna tíma á meðan á námskeiðinu stendur. Eftir námskeiðið fá þátttakendur eina fría viku auk 15% afslátt af kortum. Upplýsingar og skráning í síma 695-8464 Drífa og 772-1025 Ágústa. Eða á jogastudio.is Byrjendanámskeið í Hot jóga Nýtt 4 vikna byrjendanámskeið í Hot jóga hefst þriðjudaginn 5. október Seljavegur 2 - 101 Reykjavík www.jogastudio.is - jogastudio@hotmail.com
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.