Fréttablaðið - 01.10.2010, Qupperneq 72
1. október 2010 FÖSTUDAGUR52
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Brynjar Björn Gunnarsson
verður frá vegna meiðsla næstu 6-
8 vikurnar og verður því ekki með
íslenska landsliðinu þegar það
mætir Portúgal í undankeppni EM
2012 þann 12. október næstkom-
andi. Þetta staðfesti hann í samtali
við Fréttablaðið í gær.
Þetta er mikið áfall fyrir Ólaf
Jóhannesson landsliðsþjálfara sem
hefur þegar misst sjö leikmenn í U-
21 landsliðið.
„Þetta var reyndar ekki eins
slæmt og læknar töldu í byrjun.
Engu að síður verð ég frá í 6-8
vikur,“ sagði Brynjar Björn sem er
með tognaðan vöðva í framanverðu
lærinu.
Hann segir að fyrstu niðurstöður
rannsókna hafi gefið til
kynna að hann yrði jafn-
vel lengur frá. „Lækn-
irinn sagði að meiðslin
væru ekki jafn
slæm og þau
litu út fyrir að
vera á mynd-
unum. Ég var
því sæmilega
sáttur við
þessa niður-
stöðu.“
Brynj-
ar Björn er
á mála hjá
Reading í Eng- landi
en hann missti einnig af
síðasta landsliðsverk-
efni. Hann var valinn í hópinn sem
mætti Noregi og Damörku í upphafi
mánaðarins en var í stúkunni í fyrri
leiknum og dró sig úr hópnum fyrir
þann síðari.
„Ég jafnaði mig á þeim meiðsl-
um fljótlega eftir síðustu lands-
leiki en meiddist svo aftur á
æfingu í síðustu viku,“ sagði hann
en ekki er um meiðsli á sama stað
að ræða.
Stjórn KSÍ ákvað að U-21 lands-
liðið hefði forgang á leikmenn
fyrir leiki sína gegn Skotum sem
fara fram um svipað leyti og leik-
ur A-landsliðsins gegn Portúgal.
Af þeim sjö leikmönnum sem
Ólafur missir í U-21 landsliðið eru
fimm miðvallarleikmenn, rétt eins
og Brynjar Björn er.
„Þetta er vissulega mjög slæmt
fyrir okkur enda veitir ekki af
okkar besta liði í jafn erfiðum leik
og þessum,“ sagði Brynjar. - esá
Áfall fyrir Ólaf Jóhannesson landsliðsþjálfara fyrir landsleikinn gegn Portúgal þann 12. október:
Brynjar Björn ekki með gegn Portúgal
MEIDDUR
Brynjar Björn
hefur ekki
náð að spila
landsleik á árinu
en hann spilaði síðast í
æfingaleik gegn Lúxemborg í
nóvember í fyrra.
NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Hólmfríður Magnúsdótt-
ir spilaði um síðustu helgi úrslita-
leikinn um bandaríska meistaratit-
ilinn fyrst Íslendinga. Hólmfríður
og félagar hennar í Philadelphia
Independence töpuðu þá 4-0 á móti
deildarmeisturum FC Gold Pride
en Philadelphia náði öðru sætinu á
sínu fyrsta ári í deildinni.
Það er óhætt að segja það að
liðin hafi ekki setið við sama borð
í leiknum, Independence var búið
að spila tvo framlengda leiki á
einni viku auk þess að ferðast
þvert yfir Bandaríkin en FC Gold
Pride var búið að hvíla í fimmt-
án daga.
„Við spiluðum tvo framlengda
leiki á fjórum dögum, fórum
síðan í sjö tíma flug og spiluðum
síðan úrslitaleikinn daginn eftir
um hádegið í 33 stiga hita á gervi-
grasi. Ég er ekkert að segja að við
hefðum unnið leikinn en það hefði
munað miklu ef við hefðum fengið
fjóra aukadaga því þær höfðu ekki
spilað síðan 11. september,“ segir
Hólmfríður.
Hin brasilíska Marta fór mikinn
með FC Gold Pride í úrslitaleikn-
um, lagði upp fyrstu þrjú mörkin
og skoraði síðan það fjórða sjálf.
„Hún er alltaf góð og er nokkrum
hæðum fyrir ofan alla aðra leik-
menn sem ég hef spilað á móti og
ég er að spila á móti öllum bestu
leikmönnunum í þessari deild,“
segir Hólmfríður.
Hólmfríður spilaði allar 90 mín-
úturnar í úrslitaleiknum og lék
alls 298 af 330 mínútum í úrslita-
keppninni þrátt fyrir að vera það
meidd að hún gat ekkert æft með
liðinu.
Erfiðasta tímabilið á ferlinum
„Ég var svartsýn um að ég myndi
ná þessum leikjum en ég náði þessu
öllu saman. Ég þurfti að biðja um
skiptingu í framlengingunni í Bos-
ton-leiknum. Ég var alveg draghölt
eftir leikinn og hélt að ég myndi
ekki spila úrslitaleikinn. Ég var
bara á verkjatöflum og bólgueyð-
andi. Ég skil ekki af hverju hann
tók mig ekki út af í úrslitaleikn-
um því ég gat ekki orðið hlaupið í
lokin,“ segir Hólmfríður.
„Þetta er búið að vera erfiðasta
tímabilið mitt líkamlega síðan að
ég byrjaði í fótbolta. Við erum eina
liðið sem æfði tvisvar á dag allt
undirbúningstímabilið. Það voru
geðveikar æfingar og ég held að
við leikmennirnir hefðum aldrei
komist í gegnum þetta nema af
því að við vorum búnar að æfa svo
ógeðslega vel. Það er ekkert eðli-
legt að spila 240 mínútur í tveimur
leikjum á fjórum dögum og spila
síðan úrslitaleik tveimur dögum
seinna,“ segir Hólmfríður en hún
vonast til að fyrirkomulaginu verði
breytt fyrir næsta tíma-
bil.
Hólmfríður blómstraði
í nýrri stöðu sem vinstri
bakvörður og var fasta-
maður í liðinu allt tíma-
bilið, líka þegar hún kom
meidd út eftir landsleik-
inn á móti Frökkum og
gat ekkert æft síðustu
vikur tímabilsins.
„Við erum með þrusu-
gott lið. Það eru sterk-
ir leikmenn í hverri ein-
ustu stöðu og þetta er
langbesta liðið sem ég
hef verið í, fullt af lands-
liðsmönnum frá sterkum
löndum. Ég er í einu af
bestu liðunum í heimin-
um,“ segir Hólmfríður
sem er stolt af tímabil-
inu sínu.
Má ekki gera neitt í átta vikur
„Ég er að flytja heima um næstu
helgi og síðan þarf ég ekki að
mæta út fyrr en um miðjan febrú-
ar á næsta ári. Í fyrra þá var ég hjá
einkaþjálfara á hverjum einasta
morgni og svo fór ég á fótboltaæf-
ingu seinni partinn en
ég fékk að æfa með Val.
Eins og staðan er núna
þá á ég að hvíla í tvo og
hálfan mánuð og má ekki
gera neitt. Ég held að ég
megi ekki gera neitt í
átta vikur og ég má ekki
hlaupa í tvo og hálfan
mánuð. Ég má kannski
hjóla aðeins en annars á
ég bara að hvíla,“ segir
Hólmfríður.
„Ég kom öllu liðinu á
óvart með því að ná að
spila alla þrjá leikina í
úrslitakeppninni því að
ég æfði aldrei neitt en
spilaði bara leikina. Það
skildi enginn hvernig
ég gat spilað leikina því
ég mætti ekki á æfingu
í tvær og hálfa viku og
mátti ekki hlaupa eða neitt á milli
leikjanna,“ segir Hólmfríður. Hún
segir að það gæti reynst henni erf-
itt að hvíla í svona langan tíma.
„Ég vil ná mér pottþétt góðri því
ég vil vera tilbúin í næsta tímabil
þegar ég kem hingað í febrúar. Ég
býst ekki við að byrja að hlaupa
fyrr en um miðjan desember,“
segir Hólmfríður sem ætlar engu
að síður að gefa kost á sér í verk-
efni landsliðsins í byrjun næsta
árs.
Elskar að vera úti í Bandaríkjunum
Hólmfríður lék alls 19 leiki á tíma-
bilinu þar af 18 í byrjunarliði. Hún
skoraði 3 mörk úr vinstri bakvarð-
arstöðunni þar af eitt beint úr
aukaspyrnu.
„Ég var mjög ánægð með þetta
tímabil. Ég endaði á bekknum
hjá Kristianstad í fyrra en komst
núna í úrslitaleikinn í bestu deild
í heimi. Þetta getur varla verið
betra. Ég býst alveg við því að
vera áfram því þeir hafa talað um
það að þeir ætli að bjóða mér nýjan
samning. Ég vil halda áfram að
spila hérna. Mér finnst leiðinlegt
að þetta sé að enda og ég er strax
orðin spennt fyrir því að fara út
aftur á næsta ári því þetta er svo
gaman. Ég elska að vera hérna,“
segir Hólmfríður að lokum.
ooj@frettabladid.is
Kom öllum á óvart með því að spila
Hólmfríður Magnúsdóttir þarf að hvíla í tvo og hálfan mánuð eftir tímabilið í Bandaríkjunum. Hún píndi
sig og spilaði alla úrslitakeppnina meidd og segist aldrei hafa verið jafnþreytt og eftir að hún hafði lokið
því spila úrslitaleikinn sem var þriðji leikur Philadelphia Independence liðsins á aðeins sjö dögum.
FLOTT ÁR HJÁ HÓLMFRÍÐI Hólmfríður Magnúsdóttir stóð sig vel á þessu ári, varð markahæsti leikmaður A-landsliðs kvenna og
komst alla leið í úrslitaleikinn um bandaríska meistaratitilinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ÞORVALDUR ÖRLYGSSON hefur framlengt samning sinn við Fram og mun þjálfa liðið áfram til ársins 2013. Þorvald-
ur tók við Framliðinu fyrir tímabilið 2008 og undir hans stjórn hefur liðið endað í 3. sæti (2008), 4. sæti (2009) og 5. sæti
(2010) undanfarin þrjú tímabil. Nú á aðeins ÍBV eftir að ganga frá þjálfaramálum sínum fyrir næsta sumar.
HANDBOLTI Rebekka Rut Skúla-
dóttir fékk slæmt höfuðhögg í
leik Vals og Fram í Meistara-
keppni HSÍ í fyrrakvöld og þurfti
að fara af velli. Hún lenti í sam-
stuði við Sigurbjörgu Jóhanns-
dóttur, leikmann Fram, og við
það losnuðu framtennur hennar.
„Þær fóru aftur en ég komst
til tannlæknis strax í gærkvöldi
og er búið að rétta þær af. Þetta
leit ekki vel út til að byrja með og
var nokkuð sársaukafullt,“ segir
Rebekka og bætir við að hún hafi
verið nokkuð skelkuð.
„Ég hef aldrei lent í svona lög-
uðu áður en þetta reyndist sem
betur fer ekki alvarlegt. Ég á að
taka því rólega næstu daga en
verð með um helgina.“ - esá
Rebekka Rut Skúladóttir:
Framtennurnar
losnuðu
HANDBOLTI Þorgerður Anna Atla-
dóttir er á leið aftur heim til
Íslands eftir stutt stopp í Dan-
mörku. Hún ætlaði að spila með
FIF í Kaupmannahöfn í vetur en
ekkert verður af því vegna fjár-
hagserfiðleika félagsins.
„Þetta er hundleiðinlegt enda
búin að koma mér vel fyrir í frá-
bærri borg. En það væri of mikil
áhætta fyrir mig að vera áfram
fyrst svona er komið fyrir lið-
inu,“ segir Þorgerður sem hefur
helst verið orðuð við Stjörnuna,
sitt gamla félag, og Val.
„Ég hef ekki sagt já eða nei við
neinu enda vil ég ekki taka svona
ákvörðun í síma. Ég mun setj-
ast niður með báðum liðum en
hugur minn liggur ekki frekar til
annars liðsins en hins eins og er.
Þetta verður erfið ákvörðun.“ - esá
Þorgerður Anna á leið heim:
Ræðir við Val
og Stjörnuna
ÞORGERÐUR ANNA Hér í leik með
Stjörnunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Það skildi
enginn
hvernig ég gat
spilað leikina
því ég mætti
ekki á æfingu
í tvær og hálfa
viku og mátti
ekki hlaupa
eða neitt á
milli leikjanna.
HÓLMFRÍÐUR
MAGNÚSDÓTTIR
GOLF Ryder-bikarinn hefst í dag
á Celtic Manor golfvellinum í
Wales en þetta er í 38. sinn sem
Ameríka og Evrópa keppa í þess-
ari frægustu liðakeppni í golfi.
Bandaríkjamenn hafa ekki
sigrað í Evrópu síðan 1993 en
þeir eru handhafar Ryder-bikars-
ins eftir 16,5-11,5 sigur á Evrópu
í síðustu keppni sem fór fram í
Bandaríkjunum fyrir tveimnur
árum. Fyrir þann tíma hafði Evr-
ópa unnið þrisvar í röð og í fimm
skipti af síðustu sex. - óój
38. Ryder-bikarinn í golfi:
Veislan í Wales
hefst í dag
FYRIRLIÐARNIR Corey Pavin og Colin
Montgomerie með bikarinn. MYND/AP