Fréttablaðið - 07.10.2010, Side 1
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sími: 512 5000
Fimmtudagur
skoðun 22
7. október 2010 FIMMTUDAGUR
1
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
Svíinn Mikael Lind segir fatastíl sinn einfaldan.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Fylgi ákveðnum
reglum
É g spái ekki mikið í tísku en hef minn stíl.“ segir Mikael Lind, háskólanemi, tónlistarmaður og starfsmaður hjá Eymundsson á Skólavörðustíg. Stílnum lýsir hann sem hversdagslegum og einföldum, en smart. „Ég vil engin merki framan á bolum eða peysum.“Þegar Fréttablaðið hitti á Mikael var hann klæddur í uppáhalds peysuna sína og jakka, en bæði keypti hann á útsölu. „Skórnir eru Bobby Burns, keyptir á útsölu í 17, en galla-buxurnar fékk ég í arf eftir vin minn þegar hann flutti til útlanda. Samsö Samsö jakkinn er vatnsheldur, með hettu og er frekar dýr en ég fékk hann á 70 prósenta afslætti í Fató.“Mikael er frá Södertälje í Svíþjóð. Hann stundar nám í málvísindum við HÍ, vinnur í Eymundsson á Skólavörðustíg og er þessa dagana að búa til plötu. „Hún kemur von-andi út í byrjun næsta árs. Ég spila raftón-list, stundum með klassísku ívafi og nýju plötunni vinn ég með fiðluleikara og fleiri klassískum hljóðfærum,“ útskýrir hann. Mikael er því önnum kafinn en gefur sér þó tíma til að velja saman föt á morgn-ana. „Ég á ákveðið „combo“ sem ég fer til dæmis í í vinnuna og sumt má ekki fara saman með öðru. Það eru ákveðnar reglur í kringum þetta, en þó ekkert um of.“
heida@frettabladid.is
Klæðskerameistarinn Kolbrún E. Júlíusdóttir heldur regluleg sauma-
námskeið þar sem hægt er að læra að sauma flíkur að eigin vali. Sam-
kvæmt könnun á síðunni hennar, saumahonnun.123.is, er mestur áhugi
fyrir því að sauma kjóla. Á síðunni eru allar nánari upplýsingar.
F Á K A F E N I 9 - - S í m i : 5 5 3 7 0 6 0
O p i ð m á n u d - f ö s t u d . 1 1 - 1 8 & l a u g a r d . 1 1 - 1 6
Skór & töskur í miklu úrvaliwww.gabor.is
Sérverslun með
Ný sending af leðurskóm og stígvélum
Nú fást einnig stígvél með
extra vídd yfir kálfa!
Rúm
FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 2010
Kynning
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Rúm
veðrið í dag
7. október 2010
235. tölublað 10. árgangur
NÁTTÚRUVERND „Maður heyrir að
fólki finnist að sérstaklega núna
í kreppunni höfum við ekki efni
á að hlífa náttúrunni,“ segir
Björk Guðmundsdóttir tónlistar-
maður í aðsendri grein í Frétta-
blaðinu í dag.
„En ef við seljum aðgang að
auðlindunum og afsölum okkur
ábyrgð á náttúrunni erum við
um leið að horfa framhjá þeirri
leið sem langflestir ráðgjafar
hafa ráðlagt okkur að fara: að
halda auðlindunum okkar sjálf,
að vernda náttúruauðlindir
okkar og vera ábyrg í nýtingu
þeirra.“
Í greininni hvetur Björk fólk
til að fjölmenna á málþing í
Háskóla Íslands í dag þar sem
Magma-málið verður til með-
ferðar. - pg / sjá bls. 26
Björk gagnrýnir Magma-málið:
Vill ekki einka-
væða auðlindir
Vintage-föt á hverju strái
Verslunum sem selja notaðan
gamlan tískufatnað hefur
snarfjölgað síðustu árin.
allt 6
VIÐ ERUM Á KLETTHÁLSI 11
NÚ LÁTUM VIÐ HJÓLIN SNÚAST!
Dæmi um
ÓTRÚLEGA
GOTT VERÐ
á okkar bílum
Range Rover SPORT
Ek. 56 þús. Nýskr. 07/06. Ssk.
Verð áður: 6.490 þús. kr.
OUTLETVERÐ
5.390 þús. kr.
FJÓRAR NÝJAR
HERRAMANNABÆKUR!
www.forlagid.is
Á hraðri uppleið
Fimmta plata Kings of Leon
gæti skotið sveitinni í hæstu
hæðir vinsældapoppsins.
tónlist 40
Geðheilbrigði eflt
Tónleikar til styrktar
sjóðnum Þú getur! verða
haldnir í kvöld.
tímamót 28
LÉTTIR TIL norðan- og austan-
lands en sunnan- og vestantil má
búast við skúrum. Vindur verður
fremur hægur og hiti á bilinu 4 til
12 stig.
VEÐUR 4
9
6 9
9
10
RÓIÐ Í RJÓMABLÍÐU Halla Hreggviðsdóttir og Össur Imsland, félagar í Kajakklúbbnum, nutu
veðurblíðu gærdagsins á sjókajak við Geldinganes. „Kajakklúbburinn er mjög virkur klúbbur, við róum alltaf
saman á laugardögum klukkan tíu en þegar veður leyfir eins og í rjómablíðunni í gær er kjörið að bæta við ferð,“
segir Össur. „Ég reyni að fara að lágmarki einu sinni í viku en helst tvisvar til þrisvar.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
VIÐSKIPTI Malcolm Walker, stofn-
andi og forstjóri bresku lágvöru-
verðskeðjunnar Iceland Foods,
gerði tilboð í fyrirtækið fyrir
fjórum mánuðum upp á einn millj-
arð breskra punda, jafnvirði um
tvö hundruð milljarða íslenskra
króna. Skilanefnd Landsbank-
ans, sem fer með tæplega sjötíu
prósenta hlut í Iceland Foods, leit
ekki við því, samkvæmt staðfest-
um heimildum Fréttablaðsins.
Walker og stjórnendur Iceland
Foods eiga 21 prósent í fyrirtæk-
inu en skilanefnd Glitnis tíu pró-
sent. Ekki liggur fyrir hvort um
formlegt eða óformlegt tilboð var
að ræða.
Páll Benediktsson, upplýsinga-
fulltrúi skilanefndar Landsbank-
ans, kannast ekki við að tilboð
hafi borist frá Walker. „Þetta er
sterkt og gott félag og eðlilegt
að menn sýni því áhuga,“ segir
hann. Skilanefndin stefni á að
selja fyrir tækið þegar forsendur
eru til þess og viðunandi tilboð
berist.
Malcolm Walker stofnaði Ice-
land Foods árið 1970. Fyrirtækið
var fært undir móðurfélagið Big
Food Group um síðustu aldamót
og var Walker látinn taka pok-
ann sinn. Baugur Group og Fons
keyptu félagið árið 2005 ásamt
öðrum fjárfestum og gömlu bönk-
unum. Samstæðunni var skipt
upp og Walker ráðinn til Iceland
á ný.
Viðsnúningur Walkers á rekstri
verslunarinnar þykir með ein-
dæmum enda hefur hún malað
gull í efnahagsþrengingunum í
Bretlandi. Rekstrarhagnaður nam
135,4 milljónum punda, jafnvirði
25,6 milljarða króna, í fyrra og
hefur aldrei verið meiri. Þá námu
arðgreiðslur til fyrri eigenda 39
milljörðum króna fyrir þremur
árum og var það stærsta arð-
greiðsla Íslandssögunnar. Arður
var ekki greiddur í fyrra. Þess
í stað voru áhvílandi skuldir
greiddar upp. Walker sagði, í
samtali við breska fjölmiðla fyrr
á árinu, verslunina líklega verð-
mætustu eign Íslendinga.
Viðmælendur Fréttablaðsins
eru tvíbentir í afstöðu sinni til
tilboðsins. Erfitt sé að verðmeta
bresk fyrirtæki nú um stundir
og því óvíst hvort einn milljarð-
ur punda sé viðunandi fyrir gull-
námu á borð við Iceland Foods.
Þá kunni eignaverð í Bretlandi
að hækka í kringum Ólympíuleik-
ana sem haldnir verða í Lundún-
um eftir tvö ár. Á móti geti verið
hagstætt fyrir skilanefndnina að
losa sem fyrst um stórar eignir
á borð við Iceland Foods, styrkja
lausafjárstöðuna og greiða upp í
kröfur, svo sem Icesave-skuldina.
jonab@frettabladid.is
200 milljarða tilboði hafnað
Stofnandi matvörukeðjunnar Iceland lagði fram tvö hundruð milljarða króna tilboð í fyrirtækið fyrir fjórum
mánuðum. Landsbankinn tók því ekki. Verðmæti allra eigna gamla Landsbankans er áætlað 1.177 milljarðar.
Í lok júní var áætlað verðmæti allra eigna gamla Landsbankans 1.177
milljarðar króna. Þar af var virði dótturfélaga bankans, sem Iceland Foods
fellur undir, metið á 83 milljarða króna. Þetta þykir afar varfærið mat, ekki
síst með tilliti til tilboðs Malcolms Walker. Skilanefndin kynnir nýtt verðmat í
byrjun desember. Eftir því sem næst verður komist gæti eignastaðan batnað
verulega, ekki síst þar sem við bætist krafa skilanefndar á hendur þrotabúi
Landsbankans í Lúxemborg. Verðmiði fékkst á kröfuna í kjölfar samkomu-
lags við evrópska seðlabankann í Lúxemborg í júlí. Skilanefndin hefur fram
til þessa gert ráð fyrir að geta greitt 89 prósent af forgangskröfum. Ekki er
þó útilokað að bankinn geti greitt þær svo til að fullu.
Eignir gamla Landsbankans lágt metnar
ALÞINGI Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðis-
flokksins, segist ekki taka þátt í samstarfi við
ríkis stjórn á meðan hún stefni í ranga átt í efna-
hagsmálum.
Ríkisstjórnin hefur boðað fulltrúa stjórnar-
andstöðuflokka aftur til fundar í dag til að ræða
skuldastöðu heimilanna, en sjálfstæðismenn
munu ekki mæta þar.
Í tilkynningu frá Bjarna segir hann að þau mál
séu komin í óefni sökum mistaka ríkisstjórnar-
innar, sem nú vilji að stjórnarandstaðan hlaupi
undir bagga.
Sjálfstæðisflokkurinn muni ekki taka þátt í þess
háttar samstarfi, heldur vinna að hagsmunagæslu
fyrir heimilin á vettvangi þingsins.
Hann bætir því við að þjóðin þurfi nýja ríkis-
stjórn, „sem starfar á grundvelli endurreisnar-
stefnu“.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður
Framsóknarflokksins, sagði í samtali við Frétta-
blaðið að framsóknarmenn myndu senda fulltrúa
á fundinn, en sagðist hóflega bjartsýnn á fram-
hald samstarfsins. „Við erum enn tilbúnir að
styðja öll góð mál frá stjórninni.“
Þór Saari sagði Hreyfinguna myndu senda full-
trúa. „En sporin hræða, því að ríkisstjórnin seg-
ist vera búin að ræða þessi mál í eitt og hálft ár
og það hefur ekkert komið út úr því enn. En við
förum á þennan fund og gefum þessu einn séns
enn.“ - þj
Framsókn og Hreyfingin ætla að sækja samráðsfund með ríkisstjórninni í dag:
Sjálfstæðismenn hunsa fundinn
Guðjón á Vestfirði
Guðjón Þórðarson er nýr
þjálfari 1. deildarliðs BÍ/
Bolungarvíkur.
sport 48