Fréttablaðið - 07.10.2010, Blaðsíða 47
FIMMTUDAGUR 7. október 2010 9
„Mér fannst stórlega vanta smart
föt á stelpur sem eru svolítið
stærri um sig, því Ísland er fullt af
glæsilegum konum í mýkri kant-
inum sem einnig vilja vera flottar
til fara. Flestar tískuverslanir eru
uppfullar af fatnaði fyrir grannar
stelpur, en hér fæst nýjasta tíska
fyrir allar konur, sama hvernig
þær eru í laginu,“ segir Gunnar
Már Levísson kaupmaður í tísku-
versluninni Mind í Firðinum, þar
sem Gunnar hefur einnig rekið þá
margfrægu tískuverslun Herra
Hafnarfjörð um árabil.
Gunnar sér sjálfur um innkaup
hins fagra kvenfatnaðar í Lund-
únum og Kaupmannahöfn og seg-
ist engum valkvíða haldinn þótt
úrvalið sé bæði stórkostlegt og
mikið.
„Jájá, ég hef ekki síður gott
auga fyrir kvenfólkinu,“ segir
hann hlæjandi, en ferðir utan til
innkaupa eru tíðar. „Nýjar vörur
koma í Mind í hverri viku og alltaf
samkvæmt því sem er hæstmóðins
hverju sinni, en í Mind fær konan
allt sem hún þarfnast í flottan fata-
skáp, utan undirfata,“ segir Gunn-
ar, sem kaupir inn kjóla, skokka,
pils, buxur, boli, peysur, blússur,
skó og kápur, sem og töskur, skó,
belti, skartgripi og fleiri fylgi-
hluti.
Og viðtökurnar hafa ekki látið á
sér standa hjá smekkvísum skvís-
um þessa lands.
„Verslunin hefur gengið fram-
ar björtustu vonum og það er allt-
af brjálað að gera. Því væri tilval-
ið að færa út kvíarnar, því öruggt
er að þörfin og eftirspurnin er
mikil, og aldrei að vita nema ég
opni Mind annars staðar ef ég fæ
gott verslunarpláss,“ segir Gunn-
ar, sem selur fatnað í stærðunum
small til 56 í Mind.
„Galdurinn við búðina felst ekki
bara í smart fatnaði úr vönduðum
efnum og miklum gæðum, heldur
einnig góðu verði, því hér sést ekki
uppsprengt verð eins og finnst í
verslunum sem bjóða kvenfatnað
í stærri stærðum. Álagning er því
sanngjörn og í takti við góða díla í
innkaupum,“ segir Gunnar.
Dagmar Halldórsdóttir verslun-
arstjóri tekur undir skoðun Gunn-
ars að þéttholda konur þurfi ekki
lengur að vera lummó til fara.
„Vitaskuld vilja þær líka klæð-
ast töff tískufatnaði og reyndar
eru fötin í Mind svo flott að konur
fara með sjö, átta flíkur í mátun-
arklefann en geta svo ekki gert
upp á milli hvað skal svo kaupa
því fötin eru öll svo klæðileg. Þá
kemur hingað kvenfólk úr öllum
landsfjórðungum því orðsporið
breiðist út og margar sem komu
úr brúðkaupsveislum sumars-
ins þar sem þær höfuð spurt vel
klæddar, mjúkar konur hvar þær
fengu flottu fötin. Svarið lét ekki
á sér standa: „Nú, auðvitað í Mind
í Firðinum“.“
thordis@frettabladid.is
Þykkar eru líka skvísur
Fagurt orðspor tískuverslunarinnar Mind í Firðinum hefur breiðst hratt út, enda ávallt full búð af nýupp-
teknum tískufatnaði fyrir konur af öllum stærðum sem endurspeglar alltaf það allra heitasta í dag.
Skvísuleg klæði samkvæmt nýjustu tísku
fást fyrir konur í öllum stærðum í Mind,
Firðinum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Gunnari Má Levíssyni kaupmanni í
Herra Hafnarfirði fannst vanta í flóruna
tískuverslun með flottan fatnað fyrir
mjúkholda kvenfólk og ákvað að opna
Mind í Firðinum, þar sem hvaða kona
sem er finnur töff fatnað sem gerir hana
bæði skvísulega og sæta.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
A
LL
I
Tax Free dagar
fimmtudag til laugardags
Dalakofinn
Firði Hafnarfirði • S: 555 4295
Nýjar
vörur
Gjöfina færðu hjá okkur
20% afsláttur af úrum og
klukkum á vsk lausum dögum í
Firði 7 – 9. október
A
ug
lý
si
ng
as
ím
i