Fréttablaðið - 07.10.2010, Blaðsíða 78

Fréttablaðið - 07.10.2010, Blaðsíða 78
58 7. október 2010 FIMMTUDAGUR BESTI BITINN Í BÆNUM „Þessi bók er eins einlæg og djúp og hægt er. Ég kemst ekki nær mér og sker mig inn að beini,“ segir hand- boltakappinn Logi Geirsson. Logi sendir frá sér bókina 10 10 10 - atvinnumannssaga Loga Geirsson- ar á sunnudaginn, en þá fagnar hann einnig 28 ára afmæli sínu. Í einum af athyglisverðari köflum bókarinn- ar fjallar Logi um æskuár sín á afar hispurslausan hátt, en hann var sein- þroska sem hafði mikil áhrif á hann. Logi viðurkennir að það hafi farið um hann þegar hann las umrædd- an kafla, enda verður hann bráðum öllum aðgengilegur í bókinni. „Jú, jú, auðvitað er það erfitt,“ segir hann. „Þetta er það sem ég var að keppa við alla mína æsku. En ég er ekkert að fela þetta, enda kominn með skel utan um mig eins og full- orðinn maður. Þetta var stórt mál fyrir mig. Mig langaði að sýna fólki að ég er ekki bara maðurinn sem það sér í fjölmiðlum. Undir niðri eru allir viðkvæmar sálir.“ Logi telur að margir eigi eftir að finna sig í bókinni og að með henni sé hann að sýna gott fordæmi. „Það er gaman fyrir þá sem eru ekki bestir í yngri flokkunum að vita að maður á ekki að hætta, heldur fara sínar eigin leiðir,“ segir hann. „Mér fannst vanta svona bók. Það er stundum sagt að ef það er ekki til bók sem mann langar hrikalega að lesa sjálfur, þá skrifi maður hana bara sjálfur.“ Logi ítrekar að bókin sé ekki ævi- saga heldur fjalli hún um atvinnu- mennskuna og allt sem tengist henni. „Ég tala miklu meira um erf- iðleikana og tilfinninguna að vera atvinnumaður heldur en að fara yfir hvernig mér gekk í einstaka leikj- um,“ segir hann. „Ég er ekki að tala um hvað ég skoraði mörg mörk, þó ég hrósi mér á einstaka stað í bók- inni – það er bara eins og ég er.“ Þú telur ekki upp hvenær þú varst maður leiksins? „Nei, þetta eru skuggahliðarnar og það sem fólk sér ekki þegar það horfir á sjónvarpið og sér persónuna Loga Geirsson spila. Mig langar að sýna hvað er þarna á bak við. Allur undirbúningur, í hverju maður er að lenda rétt fyrir leiki.“ atlifannar@frettabladid.is LOGI GEIRSSON: UNDIR NIÐRI ERU ALLIR VIÐKVÆMAR SÁLIR Ég sker mig inn að beini Þeir voru allir orðnir 20 sentimetr- um hærri en ég og komnir með hár á punginn − ég var nauðasköllóttur að neðan. Það var mjög erfitt að horfa upp á alla verða kynþroska langt á undan mér. […] Ég treysti mér til að mynda ekki til þess að fara í sturtu með hinum, hvort sem það var eftir æfingar eða í leikfimi í skólanum og tókst að komast hjá því öll unglingsárin, sem er líklega met. […] Þegar ég var orðinn 17 ára og kominn upp í meistaraflokk var ég enn að forðast sturtuna. Feimnin var svo yfirgengileg. Það var ekki fyrr en ég var orðinn 21 árs og kominn til Lemgo sem ég ákvað að kýla á það og fara í sturtu eins og allir hinir. Úr bókinni 10 10 10 - atvinnu- mannssaga Loga Geirssonar. TREYSTI SÉR EKKI Í STURTU MEÐ HINUM EINLÆGUR Logi Geirsson leggur spilin á borðið í bók sem kemur út á sunnudaginn. Stuðmaðurinn Jakob Frímann Magnússon verður spyrill í spurningakeppninni Drekktu betur á Bar 46 við Hverfisgötu á föstudaginn en um helgina verður blásið til sérstakrar Lista- og ölhátíðar á staðnum. Þar ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi, svo sem tónleika, frumsýningu heimildarmyndar um efnahagshrunið eftir Þorfinn Guðnason og nýtt leikrit eftir leikhópinn Peðið. Þá munu blaðamaður og Breiðavíkurdrengur bjóða gestum upp á kreppusúpu. En vafalítið verður mesta spennan í kring- um spurningakeppni Jakobs sem hyggst með henni kveða niður átta ára gamlan draug. „Þetta gæti verið leið mín til að ná jafnvægi og einhverri sætri hefnd á þessari opinberu niðurlægingu fyrir átta árum,“ segir Jakob í samtali við Fréttablaðið, augljóslega ekki búinn að gleyma óförunum gegn Jónsa og félögum Í svörtum fötum í Popppunkti. „Þeir einir sem hafa þurft að lúta í gras geta risið upp aftur og horfst í augu við umheiminn með þeirri auðmýkt og mennsku sem er eitt af okkar meginverkefnum í lífinu.“ Jakob er þegar farinn að undirbúa sig en vildi ekki gefa of mikið upp um spurningarnar. „Það verður djúpt kafað og hátt reitt til höggs þannig að þeir sem eru milli himinskauta og iðra djúpanna munu ramba á rétt svör,“ segir Jakob og lofar því að sumir muni sitja eftir með stórt spurningarmerki á enninu. „Það er hreinlega spurning hvort nokkur treysti sér, hvort einhver mæti hreinlega.“ - fgg Jakob Frímann nær loks fram hefndum Eins og Fréttablaðið greindi frá fyrir skemmstu mun Anita Briem leika stórt hlutverk í bandarísku kvikmyndinni Elevator. Anita hefur í nægu að snúast því verkefnin hafa smám saman verið að hrannast upp og ekki má gleyma því að hún gekk í það heilaga fyrr í sumar. Á sömu grísku eyjunni og Mamma Mía! var tekin upp. Fréttablaðið náði tali af Anitu þegar hún var nýkomin heim af tökustað. „Við hófum tökur fyrir rúmri viku og ég er í skýjunum. Því að vera í kringum svona hæfi- leikaríkt og reynslumikið fólk eins og Shirley [Knight] og John [Getz] er svo gott fyrir sálina,“ útskýrir Anita en Shirley þessi hefur í tví- gang verið tilnefnd til Óskarsverð- launa og hlotið ótal aðrar viður- kenningar á sínum ferli. John Getz hefur unnið með leikstjórum á borð við David Fincher og Coen-bræður og veit því alveg hvernig heimurinn snýst. „Ég hef aðeins verið að heyra ofan í hann um hvernig þeir vinna,“ segir Anita. Elevator fjallar um níu mann- eskjur sem lokast saman í lyftu og vita að einn þeirra er með sprengju. „Það veltur því allt á því hvernig við leikararnir vinnum saman og hvern- ig samböndin og sögurnar sem við sköpum á milli okkar þróast. Við erum að vinna langa daga undir stundum erfiðum kringumstæðum en ég kem heim brosandi.“ - fgg Anita nýtur lífsins á tökustað NJÓSNAR UM COEN-BRÆÐUR Anita Briem njósnar um það hjá meðleikara sínum John Getz hvernig stórleikstjórinn David Fincher og Coen-bræður vinna. Hún segir tökudaga á Elevator vera langa en hún komi brosandi heim. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN ÞUNGAR SPURNINGAR Jakob Frímann er ekki búinn að gleyma þeirri opinberu niðurlæginu þegar Stuð- menn voru rassskelltir af Í svörtum fötum í fyrsta þætti Popppunkts fyrir átta árum. Hann hyggst láta gáfumennin svitna á Bar 46 um helgina. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M „Það er Epic á Restaurant 73. Þarna fær maður 300 gramma hamborgara og hugsar svo ekki um mat næstu fjóra klukkutím- ana.“ Anton Traustason framkvæmdastjóri. Fös 15/10 kl. 20:00 frums Lau 16/10 kl. 20:00 2.sýn Fös 22.10. Kl. 20:00 aukas. Lau 23/10 kl. 20:00 3.sýn Lau 30/10 kl. 20:00 4.sýn Sun 31/10 kl. 20:00 5.sýn Fös 5/11 kl. 20:00 6.sýn Lau 6/11 kl. 20:00 7.sýn Fim 11/11 kl. 20:00 8.sýn Fös 12/11 kl. 20:00 9.sýn Lau 9.10. Kl. 13:00 Lau 9.10. Kl. 15:00 Lau 16.10. Kl. 13:00 Lau 16.10. Kl. 15:00 Sun 17.10. Kl. 13:00 Sun 17.10. Kl. 15:00 Lau 23.10. Kl. 13:00 Lau 23.10. Kl. 15:00 Sun 24.10. Kl. 13:00 Sun 24.10. Kl. 15:00 Fös 8.10. Kl. 20:00 Lau 9.10. Kl. 20:00 Fös 15.10. Kl. 20:00 Lau 16.10. Kl. 20:00 Fim 21.10. Kl. 20:00 aukas. Fös 22.10. Kl. 20:00 Lau 23.10. Kl. 20:00 Fös 29.10. Kl. 20:00 Lau 30.10. Kl. 20:00 Sun 31.10. Kl. 20:00 Fim 4.11. Kl. 20:00 Fös 5.11. Kl. 20:00 Lau 6.11. Kl. 20:00 Fim 11.11. Kl. 20:00 Fös 12.11. Kl. 20:00 Lau 13.11. Kl. 20:00 Fös 8.10. Kl. 19:00 Sun 17.10. Kl. 19:00 Sun 24.10. Kl. 19:00 Þri 26.10. Kl. 19:00 Mið 27.10. Kl. 19:00 Fim 28.10. Kl. 19:00 Mið 3.11. Kl. 19:00 aukas. Sun 7.11. Kl. 19:00 Mið 10.11. Kl. 19:00 Sun 14.11. Kl. 19:00 Mið 24.11. Kl. 19:00 aukas. Fim 25.11. Kl. 19:00 aukas. Lau 11.12. Kl. 19:00 aukas. Sun 12.12. Kl. 19:00 aukas. Fim 21.10. Kl. 20:00 Fös 29.10. Kl. 20:00 Fim 4.11. Kl. 20:00 Lau 13.11. Kl. 20:00 Fim 18.11. Kl. 20:00 Fös 26.11. Kl. 20:00 Ö U Ö Ö Ö Ö Ö Ö Ö Ö U Ö Ö U U U Finnski hesturinn (Stóra sviðið) Fíasól (Kúlan) Hænuungarnir (Kassinn) Íslandsklukkan (Stóra sviðið) Gerpla (Stóra sviðið) Gildir ágúst 2010 til jún í 2011 úsk orti ð 1 OPIÐ KORT Gildir á Leik hús kor tið 201 0/2 011 ÁSK khusi d.is I midas ala@ le Leikhúsk ort 4 miðar á aðeins 9.900 kr. U Ö U U U U U Ö Ö U U Ö Ö Ö U Ö U U U U Ö Ö U U Ö Ö Ö Ö Auglýsingasími
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.