Fréttablaðið - 07.10.2010, Qupperneq 8
8 7. október 2010 FIMMTUDAGUR
Dalshrauni 13 og Grensásvegi 48, sími 578 9700
Tilboð
helgarinnar
Ungversk gúllassúpa
Kálfa T-bone steik
Ostakökur
H
:N
m
ar
ka
ðs
sa
m
sk
ip
ti
/ S
ÍA
Þitt sjónarmið á erindi
Framboðsfrestur rennur út á hádegi 18. október 2010
Stjórnlagaþing - Borgartúni 24 – 105 Reykjavík – sími 422-4400 - www.stjornlagathing.is - www.kosning.is - www.landskjor.is
Stjórnlagaþing 2011
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
FÓLK Borgarlögmaður skoðar nú
mál fjölskyldunnar sem Orkuveit-
an aftengdi kalda vatnið hjá í síð-
ustu viku.
„Við leituðum til skrifstofu
borgar stjóra í þeirri von að Jón
Gnarr gæti leyst úr þessu máli.
Aðstoðarkona hans sagði að málið
væri komið til skoðunar hjá borgar-
lögmanni, sem myndi gefa umsögn
um það innan tíðar,“ segir Ingi-
björg R. Þengilsdóttir, sem býr nú
við það ásamt eiginmanni sínum,
Jóni Jóhanni Jóhannssyni, og
tólf ára syni að hafa ekkert renn-
andi vatni í íveruhúsi sínu í Perlu-
hvammi á Álfsnesi. Hjónin ætla
að byggja einbýlishús á landinu og
búa nú til bráðabirgða í vinnuskúr
sem þau tengdu við gamla kalda-
vatnslögn sem tilheyrir lóðinni.
Undanfarin ár hafa nemend-
ur Waldorf-skólans komið á land
hjónanna til að stunda þar nám í
lífsleikni undir leiðsögn kennara
sinna. „Það gat nú ekki hafa farið
framhjá starfsmönnum Orku-
veitunnar að hingað kom á hverj-
um degi í síðustu viku langferða-
bíll með um fimmtíu manna hóp.
Samt aftengdu þeir vatnið,“ segir
Ingibjörg, sem kveður skólastjóra
Waldorf-skólans hafa hringt í lög-
mann Orkuveitunnar.
„Skólastjórinn útskýrði að þessi
lokun bitnaði á börnunum. Úr varð
að Orkuveitan sendi hópnum um
sextíu hálfs lítra brúsa af drykkjar-
vatni og um tonn af öðru vatni. Það
kom að vísu of seint fyrir hópinn
því við vorum búinn að bjarga
þessu í millitíðinni. En syni mínum
finnst þetta vatn æðislegt,“ segir
Ingibjörg.
Eiríkur Hjálmarsson, upplýs-
ingafulltrúi Orkuveitunnar, segir
fyrirtækinu hafa borist spurnir í
síðustu viku af skólahópi sem var
á ferð í Perluhvammi. Hópurinn
hafi reiknað með að komast í kalt
vatn og ekki vitað af vandkvæð-
um á því. „Því var bjargað,“ segir
Eiríkur
Varðandi deiluna sjálfa segir
Eiríkur það vera grundvallar-
sjónarmið að viðskiptavinir eigi að
njóta jafnræðis. „Skyldur og rétt-
indi eru býsna glöggt skilgreind í
lögum og reglugerð að mati OR,
sem telur sig vera að vinna eftir
þeim,“ segir hann og vísar í bréf
sem OR sendi lögmanni hjón-
anna um miðjan september. Þar
segir að hús sem tengt hafi verið
kaldavatnsheimæð á lóðinni hafi
verið fjarlægt og heimæðin síðan
aftengd.
„Síðar er komið með vinnuskúr
inn á lóðina og kaldavatnsæðin
endurtengd og vatnstaka hafin.
Sú aðgerð, það er að tengja sig inn
á kaldavatnslögn og hefja vatns-
töku án umsóknar til Orkuveitunn-
ar, er óheimil og breytir þar engu
hvort heimæð er í eigu lóðarhafa
eða Orkuveitunnar,“ segir í bréfi
fyrir tækisins.
gar@frettabladid.is
Aftengd vatnslögn
til borgarlögmanns
Fjölskyldan sem Orkuveitan aftengdi neysluvatnið hjá leitaði ásjár borgarstjóra,
sem vísaði málinu til borgarlögmanns. Orkuveitan kom með drykkjarvatn á
brúsum og vatn í kari handa skólabörnum sem heimsóttu staðinn á föstudag.
HJÓNIN Í PERLUHVAMMI Neita að senda umsókn til Orkuveitunnar vegna tengingar
við kaldavatnslögn og borga tilheyrandi tengingargjald og annan kostnað. Þau bera
vatn í fötum úr Leirvogsá. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
PAKISTAN, AP Bandaríkjamenn báð-
ust í gær afsökunar á loftárás 30.
september í Pakistan skammt frá
landamærum Afganistans. Tveir
pakistanskir hermenn létu lífið í
árásinni, sem gerð var úr þyrlum
sem flogið var yfir landamærin
frá Afganistan.
Fljótlega eftir árásina lokuðu
Pakistanar landamærahliðinu í
Torkham, sem hersveitir NATO
hafa notað til að flytja mikilvæg-
ar birgðir yfir til Afganistans.
Það var sendiherra Bandaríkj-
anna í Pakistan sem baðst afsök-
unar fyrir hönd bandarískra
stjórnvalda. David Petraeus, yfir-
maður herliðs Bandaríkjanna og
NATO í Afganistan, sendi einnig
frá sér samúðarkveðju.
Bandaríkjaher segist hafa talið
pakistönsku hermennina vera
uppreisnarmenn, sem Banda-
ríkjamenn töldu sig vera að elta
uppi.
Upphaflega var talið að þrír
pakistanskir hermenn hefðu
farist í árásinni, en einn þeirra
reyndist vera lífshættulega særð-
ur og lifði af. Þrír aðrir pakist-
anskir hermenn særðust.
- gb
Sameiginleg rannsókn Bandaríkjamanna og Pakistana á nýlegri loftárás:
Bandaríkin biðjast afsökunar
LOKUÐ LANDAMÆRI Pakistanar hafa
undanfarna daga lokað mikilvægri
birgðaflutningaleið við landamæri
Afganistans og Pakistans. FRÉTTABLAÐIÐ/AP