Fréttablaðið - 07.10.2010, Side 11
FIMMTUDAGUR 7. október 2010 11
SAMFÉLAGSMÁL Ríflega 21 millj-
ón króna safnaðist í landssöfnun
Rauða kross Íslands sem haldin
var síðastliðinn laugardag. Þetta
er hærri upphæð en safnaðist
síðast þegar gengið var til góðs,
í hrunvikunni í október 2008,
þegar um 18 milljónir söfnuðust.
Um 2.500 sjálfboðaliðar gengu
í hús á laugardaginn og söfnuðu
framlögum. Í tilkynningu frá
Rauða krossinum kemur fram að
tekist hafi að heimsækja átta af
hverjum tíu heimilum á landinu.
Allt söfnunarféð mun renna
óskert til verkefna Rauða kross-
ins í Afríku. - bj
Söfnun RKÍ gekk vel:
Söfnuðu ríflega
21 milljón
SÖFNUN Söfnunarféð mun nýtast vel í
barna- og ungmennastarfi Rauða kross-
ins í Malaví og Síerra Leóne. MYND/RKÍ
VESTFIRÐIR Bæjarráð Bolungarvík-
ur mótmælir harðlega þeirri aðför
að heilbrigðisþjónustu á svæðinu
sem birtist í fjárlagafrumvarpinu.
„Ef sá niðurskurður sem þar
er lagður til verður að veruleika
gæti það m.a. þýtt að starfsemi
hjúkrunardeildar á sjúkraskýlinu
í Bolungarvík leggist af, skurð-
stofu á Ísafirði verði lokað og
fæðingaþjónustu á norðanverðum
Vestfjörðum verði hætt. Niður-
skurðurinn vegur að öryggi íbúa
á svæðinu,“ segir í fundarbókun
ráðsins. -kh
Bolvíkingar mótmæla:
Aðför að heil-
brigðisþjónustu
Spyr um kynningarstarf
Mörður Árnason, þingmaður Samfylk-
ingarinnar, hefur lagt fram fyrirspurn
til sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra á Alþingi þar sem spurt er um
kynningarstarf vegna hvalveiða frá
árinu 1998. Meðal annars er spurt
um kostnað, að hverjum starfið hefur
beinst, og hverjir hafa séð um það.
ALÞINGI
* Endurgreiðslan er 5,13% m.v. 194,9 kr. lítraverð
á 95 oktana bensíni í sjálfsafgreiðslu hjá Shell
og 4,14% m.v. 193,3 kr. lítraverð á 95 oktana
bensíni hjá Orkunni. Sú endurgreiðsla jafngildir
10 kr. á lítra hjá Shell og 8 kr. á lítra hjá Orkunni.
Ódýrara eldsneyti
fyrir e-korthafa í dag
Í dag er 10 króna endurgreiðsla á stöðvum Shell og 8 krónu
endurgreiðsla hjá Orkunni fyrir e-korthafa.*
Endurgreiðsludagur e-kortsins
Þú færð e-kortið í Arion banka.
Farðu á arionbanki.is og kynntu þér kosti e-kortsins.
Endurgreiðslan er greidd út með ávísun í desember.
ALÞINGI Svört starfsemi og undanskot frá
skatti hafa færst í aukana að undanförnu
vegna skattahækkana ríkisstjórnarinnar.
Þetta sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son, formaður Framsóknarflokksins, í
utandagskrárumræðum á Alþingi í gær.
Sigmundur var málshefjandi í umræð-
um um skattastefnu ríkisstjórnarinnar.
Sigmundur Davíð sagði að bruggstarf-
semi hefði náð nýjum hæðum að undan-
förnu því að of langt hafi verið gengið í
að skattleggja áfengi.
Neyslan hefði ekki minnkað heldur
hefðu tekjur ríkisins af áfengissölu minnk-
að vegna stærra neðanjarðarhagkerfis.
Sigmundur sagði að ef það væri óráð
að lækka skatta í þenslu, eins og Stein-
grímur J. Sigfússon hefði haldið fram,
hlyti að vera óráð að hækka skatta í
kreppu. Hann spurði hver stefna ríkis-
stjórnarinnar í skattamálum væri.
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráð-
herra var til andsvara. Hann sagði að
ríkisstjórnin hefði haft það að markmiði
að fara blandaða leið tekjuöflunar og
sparnaðar í glímunni við ríkisfjármálin.
Unnið hefði verið markvisst að því við
skipulag í skattakerfinu að hlífa þeim
tekjulægri.
- jhh
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson um áhrif skattahækkana á íslenskt hagkerfi:
Brugg eykst vegna skattheimtu á áfengi
FORMAÐUR FRAMSÓKNARFLOKKSINS Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson segir að vegna skattlagningar á áfengi hafi bruggstarf-
semi náð nýjum hæðum hér á landi.