Fréttablaðið - 07.10.2010, Síða 38
7. OKTÓBER 2010 FIMMTUDAGUR
SASSARI. Rúmgrind/án dýnu. Hvítt háglans. L. 160x200 cm.
Verð 49.900,-
Náttborð m.1skf. 28x50x39 cm. Verð 14.900,-
Einnig hægt að fá rúmgrind í 140x200 cm. og 180x200 cm.
LIVA. Rúmgrind. Hvítlökkuð fura. L. 160x200 cm. Verð 69.900,-
Náttborð m.1skf. 58x41,5x58 cm. Verð 26.900,-
Einnig hægt að fá rúmgrind í 140x200 cm. og 180x200 cm.
LEONORA. Rúmgrind eik/hör. L. 180x200 cm. Verð 179.900,-
Bekkur 49x140x42 cm. Verð 37.900,-
MARIANNO. Rúmgrind. Hnotuspónn/hvítt leður.
L. 160x200 cm. Verð 94.900,-
Náttborð m/glerplötu 2skf. 60x45x45 cm. Verð 28.900,-
Einnig hægt að fá rúmgrind í 140x200 cm. og 180x200 cm.
Í verslun ILVA við Korputorg
finnast freistandi svefnher-
bergishúsgögn fyrir alla.
„Langflestir sem eru í rúmhugleið-
ingum velja sér rúm þar sem kost-
ur er á heildstæðri svefnherbergis-
línu og hægt að fá náttborð, snyrti-
borð, kommóður, skápa, kistla
eða bekki í sama stíl, en af slík-
um svefnhergisbúnaði er ríkulegt
úrval í ILVA,“ segir Carolyn Linda
Jeans, yfirmaður húsgagna í ILVA
á Korputorgi, innt eftir því vinsæl-
asta í rúmum verslunarinnar nú.
„Rúmgrindur ILVA eru sér-
hannaðar fyrir boxdýnur, en við
bjóðum einnig rimlabotna fyrir
þá sem vilja frekar springdýnur,“
segir Carolyn þar sem hún tyllir
sér á fallegt Oxford-hjónarúm með
rúmfatnaði í fjólubláum, bleikum
og hvítum tónum.
„Oxford er dæmi um stílhreina
skandinavíska nútímahönnun sem
nýtur mikilla vinsælda og er smíð-
uð úr aski. Hér finnast margir mis-
munandi stílar sem henta ólíkum
þörfum og smekk, en vinsælust nú
er Liva í rómantískum sveitastíl,
með kommóðu, náttborði, tveggja
dyra skáp með neðri skúffum,
snyrtiborði með spegli, geymslu-
kistu og fleira. Þá er Marianno úr
hnotu og leðri, ásamt Leonora úr
eik og hör óskaplega vinsæl svefn-
herbergishúsgöng. Í Leonora-lín-
unni er einnig forláta bekkur með
stásslegum fótum og flottri bólstr-
un sem gott er að hvílast á, en slík-
ir bekkir til afnota í svefnherbergi
koma æ sterkar inn,“ segir Carolyn
og færir sig yfir í fallegt herbergi
þar sem svokallaðir day-beds eða
rúm/sófi eru til sýnis.
„Day-beds eru umluktir flúruð-
um járnrimlum í baki og hlið-
um, og nýtast sem sófar á daginn
á milli þess sem sofið er í þeim.
Þá er hægt að skreyta fallega með
púðum og annarri smávöru. Þess-
ir rúm/sófar eru afar sniðug lausn
í gestaherbergi, en sérstaklega
vinsælir í stúlknaherbergi, enda
kvenlegir útlits hvítir, þótt nú séu
einnig að koma inn svartir, töff og
strákalegir rúm/sófar,“ segir Caro-
lyn og færir sig að barnarúmum
ILVA.
„Hér er Emil-barnalínan vin-
sælust; hvít, einföld og stílhrein,
og hægt að púsla endalaust saman
með stækkanlegum rúmum upp í
tólf ára, skrifborðum, hillum og
fleira. Þá er væntanleg Brio-lína
fyrir allra yngstu börnin með
rimlarúmum og fullt af skemmti-
legum fylgihlutum,“ segir Caro-
lyn, enda ILVA alltaf að taka upp
nýjar og spennandi svefnherberg-
isvörur.
Rómantísk svefnherbergi
Hér situr Carolyn Jeans verslunarstjóri í ILVA á einu af vinsælli hjónarúmum verslunarinnar, Oxford, en svefnherbergishúsgögn
verslunarinnar eru rómuð fyrir fallegan aukabúnað sem fylgja hverri rúmlínu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Innan skamms kemur ný og stór-
glæsileg viðbót við Silence-rúm-
línuna í verslun ILVA á Korpu-
torgi, en hún er sérhönnuð með
tilliti til útlits, þæginda og há-
marks gæðasvefns.
Í Silence-rúmlínunni velur
viðskiptavinurinn sér útlit eftir
eigin höfði úr fjölbreyttu úrvali
rúmgafla og rúmfóta. Þannig
getur hann búið til sitt eigið rúm
með útliti sem hentar best híbýl-
um hans og húsmunum, og valið
um rúmgrind sem til dæmis felur
í sér geymslubox eitt og sér, eða
geymslu-
box með
púða við höfðagafl, en í raun eru
möguleikarnir óþrjótandi þegar
kemur að samsetningu og endan-
legri útkomu Silence-rúms.
Eftir að útlit rúmsins hefur
verið valið kemur að mikilvæg-
ustu ákvörðuninni; rúmdýnunni
sjálfri. Boðið er upp á þrjá gæða-
og verðflokka í Silence-vörulín-
unni: Basic, Classic og Exclusive,
en starfsfólk ILVA á Korputorgi
veitir fúslega faglega ráðgjöf við
val á réttu dýnunni.
Góður nætursvefn er undir-
staða daglegs lífs og gæða rúmd-
ýnur á borð við Silence Classic og
Exclusive tryggja það í flestum
tilfellum. Yfirleitt tekur um fjór-
tán daga að venjast nýrri rúmd-
ýnu. Fagfólki ILVA er í mun að
viðskiptavinurinn sé ánægður
með kaupin og veitir því fjórtán
daga umhugsunarfrest til að skila
dýnunni, sé kaupandinn ekki viss
um að dýnan henti honum.
ILVA kappkostar að eiga allar
gerðir rúmdýna í Silence-vörulín-
unni, en rúmgaflar og rúmfætur
eru sérpantaðir að óskum við-
skiptavina.
Rétta rúmið – fyrir þig
Hér má sjá dæmi um skemmtilega útfærslu á
Silence-rúmi frá ILVA.
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000
Umsjónarmenn auglýsinga: Bjarni Þór Sigurðsson bjarnithor@365.is s. 512 5471 og Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is s. 512 5439.