Fréttablaðið - 07.10.2010, Blaðsíða 62
42 7. október 2010 FIMMTUDAGUR
bio@frettabladid.is
Leikstjóri 300 og Watchmen, Zack
Snyder, hefur verið ráðinn leik-
stjóri næstu Superman-myndar-
innar. Það er Chris Nolan, heilinn
á bak við endurreisn Leðurblöku-
mannsins, sem mun framleiða
myndina, en það hefur lengi stað-
ið til að reisa við Ofurmennið, dáð-
ustu ofurhetju allra tíma. Bryan
Singer gerði heiðarlega tilraun
og kvikmynd hans með Brandon
Routh og Kevin Spacey var alls
ekki vond, hún var bara ekki nógu
góð með heldur barnalegum endi.
Snyder hefur unnið þrekvirki
með ákaflega stíliseraðar kvik-
myndir og ljóst að handbragð
hans verður vel þegið á kórdreng-
inn Clark Kent. Það var vefsíð-
an Deadline.com sem greindi frá
ráðningu Snyders en það er David
Goyer sem mun skrifa handritið að
myndinni. Goyer þessi á einmitt
einnig heiðurinn af handritum
Batman Begins og Dark Knight.
Á imdb.com er greint frá sögu-
þræði myndarinnar en hann ku
víst vera á þá leið að Clark hafi
þvælst um allan heim í leit að sjálf-
um sér en þegar hann snýr aftur
til Metropolis áttar hann sig á því
að þar er hans heimili. Ekki er þó
ljóst hvort þessi söguþráður sé
réttur.
Leikstjóri fundinn
LEIKSTÝRIR OFURMENNINU Zack Snyder
hefur verið ráðinn leikstjóri næstu kvik-
myndar um Ofurmennið.
The Hangover 2 fer í tökur seinna í þess-
um mánuði. Þetta kemur fram í við-
tali Empire við leikstjórann Todd Phill-
ips. Phillips er reyndar mjög upptekinn
maður ef marka má Empire því hann mun
á næstunni frumsýna vegagamanmynd-
ina Due Date með Robert Downey Jr. í
aðalhlutverkinu. En aftur að framhaldinu
af The Hangover, sem varð óvænt einhver
vinsælasta mynd ársins 2009. Samkvæmt
Phillips er ráðgert að myndin gerist í
Bangkok og Los Angeles og leikstjórinn
lofar mjög óvæntum uppákomum.
Hann staðfestir jafnframt að þeir
Zach Galifianakis, Bradley Cooper og
Ed Helms snúi aftur í hlutverk hinnar
heilögu þrenningar sem lenti í hinum
ótrúlegustu hremmingum. Þá mun herra
Chow í meðförum Ken Jeong einnig mæta
á svæðið á nýjan leik. Phillips virðist hafa
einstakt lag á að þefa uppi gott grín því
hann leikstýrði einnig Old School, einni
fyndnustu mynd Frat Pack gengisins
ógurlega með Vince Vaughn, Will Ferrell
og Wilson-bræðurna í broddi fylkingar
og hefur nú uppgötvað heila kynslóð af
fyndnum mönnum á borð við Galifian-
akis.
Phillips var hins vegar spurður að því
hjá blaðamanni Empire hvort hann hræð-
ist ekki framhaldsmyndina: „Ég sá Meet
the Fockers, ég veit alveg hvað við erum
að fara út í en við setjum markið hátt.“
- fgg
Timburmenn tvö tekur á sig mynd
SETUR MARKIÐ HÁTT Phillips ætlar ekki að gera
sömu mistök og gerð voru í Meet the Fockers
þegar The Hangover 2 verður gerð.
George Clooney er án nokk-
urs vafa eini sanni gullkálf-
urinn í Hollywood. Áhrifa-
meiri leikari og leikstjóri
er vandfundinn um þessar
mundir í draumaborginni
en sjálfur nýtur hann lífsins
við Como-vatn á Ítalíu.
Nýjasta kvikmynd Clooney, The
American, verður frumsýnd hér
á landi um helgina. Myndin segir
frá leigumorðingjanum Jack sem
heldur til á Ítalíu og undirbýr sig
fyrir síðasta drápið. En Jack gerir
grundvallarmistök, hann vingast
við prest og fer á fjörurnar við
þokkadís, nokkuð sem gæti afhjúp-
að hver hann í raun og veru er.
Leikstjóri The American er Anton
Corbijn en í öðrum hlutverkum er
að mestu leyti ítalskir leikarar.
Saga Clooney er, þegar á heild-
ina er litið, algjört öskubuskuæv-
intýri. Sagan segir að Clooney hafi
búið í skáp á meðan hann var að
koma sér á framfæri í Hollywood
en það verður að teljast fremur
hæpið. Hins vegar er það satt og
rétt að Clooney skrapaði botninn
í kvikmynda- og sjónvarpsbrans-
anum. Hann fékk hlutverk í kvik-
myndum á borð við The Return of
the Killer Tomatoes, Predator: The
Concert og Red Surf en þar lék
hann einmitt á móti eldri systur
Michelle Pfeiffer, Dedee Pfeiffer.
En hún er hvað þekktust í dag fyrir
að vera ansi mikið húðflúruð.
Clooney gafst hins vegar ekkert
upp, lék meðal annars í ellefu þátt-
um af Roseanna þar sem hin þétt-
vöxnu Roseanne Conner og John
Goodman voru ansi fyrirferðar-
mikil. Og þetta reyndist vera hlut-
skipti leikarans, aukahlutverk í
sjónvarpsþáttum og aðalhlutverk
í vondum myndum.
Hvað það var sem framleiðend-
ur ER sáu í síðustu verkum Cloon-
ey veit enginn. Engu að síður
var ákveðið að ráða hann í hlut-
verk Doug Ross, barnalæknis-
ins á bráðavakt sjúkrahúss í Chi-
cago. Hlutverkið gerði Clooney að
umtalaðasta og eftirsóttasta pipar-
sveini heims, alvöru stórstjörnu,
enda gerði persónan lítið annað
en að daðra við hjúkrunarfræð-
inga og kvenkyns lækna ásamt
því að bjarga lífi barna með hetju-
legri frammistöðu sem stundum
var á skjön við hefðbundnar regl-
ur lækna.
Frammistaða Clooney í lækna-
sloppnum vakti um leið áhuga
Hollywood á þessum grásprengda
leikara. Og honum var meira að
segja boðið að leika Leðurblöku-
manninn. Clooney hefur sagt að
það hafi verið versta ákvörðun-
in sem hann hafi tekið á sínum
ferli. „Á einni nóttu hafði mér tek-
ist að eyðileggja eina ástsælustu
ofurhetju allra tíma,“ á Clooney
að hafa sagt. Myndinni var slátr-
að og fékk eingöngu 3,5 á imdb.
com. The Peacemaker gerði ekki
mikið fyrir feril Clooney en árið
1998 hófst gullaldartímabil Cloon-
ey fyrir alvöru. Þá ákvað Steven
Soderbergh að fá hann í Out of
Sight á móti Jennifer Lopez. Per-
sóna Clooney í myndinni er nokkuð
lýsandi fyrir þær týpur sem hann
hefur leikið síðan þá, töff náungi
sem er yfirleitt fastur í einhvers
konar gildru og þarf að leysa úr
henni til að fanga hjarta fegurðar-
dísar.
Clooney hefur náð undraverð-
um árangri á þeim tólf árum sem
liðin eru frá því að Hollywood-fer-
illinn hófst fyrir alvöru. Hann er í
dag einhver áhrifamesta persón-
an í Hollywood, orð hans eru lög
í flestum tilvikum og hann velur
verkefnin af kostgæfni. Hann
mun allavega ekki leika ofurhetju
í þröngum búningi sem berst við
Dr. Frosta og eitraða Ivy í bráð.
freyrgigja@frettabladid.is
Gullkálfurinn í Hollywood
HINN EINI SANNI GULLLKÁLFUR George Clooney er hinn eini sanni gullkálfur í
Hollywood. Leið hans upp á topp var hins vegar þyrnum stráð og leikarinn þurfti
lengi vel að sætta sig við aukahlutverk í vondum sjónvarpsþáttum og enn verri
Kvikmyndin The Town hefur fengið ein-
róma lof gagnrýnenda en leikstjóri henn-
ar og aðalleikari er Ben Affleck. Svo
langt hafa gagnrýnendur gengið að orða
Affleck við Óskarinn í tveimur flokkum;
sem besti leikarinn og besti leikstjórinn.
Kvikmyndin verður frumsýnd í
íslenskum kvikmyndahúsum um
helgina en í stuttu máli segir hún
frá hópi bíræfinna bankaræningja
undir stjórn Doug MacRay sem
hreinsar út úr bankastofnunum
með reglulegu millibili. Hópurinn
á allur rætur sínar að rekja til
Charlestown-hverfisins í Boston,
rétt eins og flestir skúrkarnir úr
þeirri borg. Brestir koma í sam-
starfið þegar þeir neyðast til að
taka bankastarfsmanninn Claire
sem gísl þegar bankarán fer úr
skorðum. MacRay ákveður að
fullvissa sig um að Claire þekki
sig ekki aftur en sú ákvörðun mun draga
dilk á eftir sér.
Auk Affleck fara sjónvarps-
stjörnurnar Blake Lively og Jon
Hamm með stór hlutverk í mynd-
inni en Blake er orðin ofurstjarna
eftir Gossip Girl ævintýrið. Jon
Hamm ættu svo flestir að þekkja
úr Mad Men. Af öðrum myndum
sem verða frumsýndar um
helgina má nefna Greenberg
en þar má sjá Ben Stiller í
alvarlegu hlutverki manns
sem ákveður að gera ekki neitt
og svo Furry Vengeance með
Brendan Fraser. - fgg
The Town og fleira til
Á HVÍTA TJALDIÐ Jon Hamm og Blake
Lively hafa getið sér gott orð fyrir leik
í sjónvarpi. Nú eru þau komin á hvíta
tjaldið í The Town.
> AGUILERA Á HVÍTA TJALDIÐ
Bandaríska söngkonan Christina
Aguilera leikur aðalhlutverkið í
kvikmyndinni Burlesque sem
verður frumsýnd á næstunni
í Ameríku. Á meðal mótleik-
ara hennar eru Cher og Stan-
ley Tucci. Myndin verður frum-
sýnd hinn 4. febrúar hér á Ís-
landi.
Alþjóðleg sviðslistahátíð í Reykjavík 8 – 10.október
Hver er framtíð sviðslista?
Fyrirlestur Dr. Dragan Klaic, eins
þekktasta leikhúsfræðimanns Evrópu.
Föstudagur 8. október kl 12.00
í nýuppgerðu Tjarnarbíói.
Hvert er hlutverk leikhússins í
lýðræðissamfélagi? Hvernig aðlagar
leikhúsið sig að kröfum nýrra tíma?
Hvað réttlætir að fé almennings
renni til leikhússins?
Þessum og mörgum öðrum spurningum mun Dragan velta upp
og svara í kraftmiklum fyrirlestri sínum.
„Kaldhæðinn og fyndinn en um leið ögrandi og hrífandi”
-Katrín Hall, forstöðumaður Íslenska dansflokksins
„Samtal við Dragan er eins og rússíbanaferð út í óvissuna:
allt er undir og engu er hlíft…. Skarpur, analýtískur, fróður og
hugmyndaríkur. Það er ekki hægt að missa af fyrirlestri hjá
Dragan.”
-Hjálmar H. Ragnarsson, tónskáld og rektor Listaháskóla Íslands
Allir fyrirlestar Keðju eru opnir almenningi og ókeypis.
Dagskráin öll á www.tjarnarbío.is