Fréttablaðið - 09.10.2010, Blaðsíða 76
9. OKTÓBER 2010 LAUGARDAGUR10 ● bleika slaufan
Árangur leitar að krabbameini
í leghálsi endurspeglast í 90
prósenta lækkun á dánartíðni
frá upphafi leitar. Árangur
brjóstaleitar hefur lækkað
dánartíðni umtalsvert.
„Skipuleg leit að leghálskrabba-
meini hófst á vegum Krabba-
meinsfélags Íslands árið 1964 í
Reykjavík en frá árinu 1969 hafa
skoðanir farið fram á landinu öllu.
Skipuleg leit að brjóstakrabba-
meini með brjóstamyndatöku hófst
síðan 1. nóvember 1987,“ segir
Sigríður Þorsteinsdóttir, hjúkr-
unarframkvæmdastjóri Leitar-
stöðvar Krabbameinsfélagsins.
Krabbameinsleit er hluti af for-
varnaþjónustu á vegum heilbrigðis-
yfirvalda en Leitarstöðin sér um
framkvæmd legháls- og brjósta-
krabbameinsleitar.
LEIT FER FRAM Á 30 STÖÐUM
Konur á landinu fá send boð um að
mæta í skoðun óháð búsetu en leit-
arstöðin skipuleggur og hefur um-
sjón með leitinni á öllu landinu og
fer skoðun fram árlega eða annað
hvert ár á 30 stöðum.
„Mælt er með að konur á aldr-
inum 20 til 39 ára mæti á tveggja
ára fresti í leghálsskoðun en
konur á aldrinum 40 til 69 ára fá
boð um að mæta til leghálsleitar
á tveggja til fjögurra ára fresti
og til brjóstaleitar á tveggja ára
fresti,“ útskýrir Sigríður.
Ef frumubreytingar finnast í
leghálsi er þeim fylgt eftir með
þéttu eftirliti eða leghálsspeglun.
Ef röntgenmyndir af brjóstum gefa
tilefni til fara konur í sérskoðan-
ir hjá sérfræðingum. „Konur sem
finna hnút eða önnur einkenni í
brjóstum fá einnig tíma í sérskoð-
un hjá lækni,“ útskýrir Sigríður.
LÍTIL ÓÞÆGINDI
Sumar konur kvíða leitinni en það
er óþarfi. Í leghálssýnatöku er
tekið frumusýni frá yfirborði leg-
hálsins með bursta og spaða og
niðurstöður liggja fyrir eftir um
tíu daga en niðurstöðu brjósta-
myndatöku eftir tvær til þrjár
vikur. „Við brjóstayndatökuna
er beitt pressu sem getur vald-
ið vissum óþægindum en lang-
flestar konur finna ekki sárauka
við myndatökuna,“ segir Sigríður
og bendir á að ekki þurfi að ótt-
ast geislunina í myndatökunni og
myndir eru ekki teknar þéttar en
á 18 mánaða fresti nema sérstak-
ar ástæður liggi að baki.
MIKILL ÁVINNINGUR
„Árangur af leghálsleitinni er
mjög góður, sem kemur fram í
um 90% lækkun á dánartíðni sjúk-
dóms frá upphafi leitar innar,“
segir Sigríður, en árangur af
brjóstaleitinni bendir til allt að
40-45% lækkunar dánartíðni hjá
þeim konum sem hafa mætt í hóp-
leitina miðað við dánartíðni þeirra
sem ekki mæta.
FLEIRI ÞURFA AÐ MÆTA
Árlega mæta um 30 þúsund konur í
leghálsskoðun á Leitarstöð, heilsu-
gæslustöðvar eða hjá sérfræðing-
um. Um 20 þúsund konur mæta ár-
lega í brjóstaröntgenmyndatöku.
„Mæting til leitar mætti vera
betri, sérstaklega meðal yngri
kvenna þar sem mæting á þriggja
ára fresti er um 50% á aldrinum
20-24 ára og um 60% á aldrinum
25-29 ára,“ segir Sigríður og telur
ástæðu til að hvetja ungar konur
til mæta í leghálsskoðun í ljósi
aukinnar tíðni forstigsbreytinga
sem er tilkomin vegna aukinnar
tíðni HPV-sýkinga í þessum ald-
urshópi. „HPV-veirusmit er ein-
kennalaust og smitast í 99% til-
fella með samförum. Rannsókn-
ir hafa sýnt að HPV-veira finnst í
yfir 90% kvenna með frumubreyt-
ingar í leghálsi og leggöngum og
í nálægt 100% leghálskrabba-
meina.“
Sigríður segir mætingu kvenna
á aldrinum 40-69 í brjóstakrabba-
meinsleit mætti líka vera betri.
„Tveggja ára mæting er um 60% og
konur mæta óreglulega, oft á fjög-
urra ára fresti,“ segir Sigríður.
MIKIL TÆKNIÞRÓUN
Húsnæði Leitarstöðvarinnar og
allur tæknibúnaður var endurnýj-
aður árið 2008. Þá voru fimm ný
stafræn brjóstaröntgentæki tekin
í notkun, eitt tæki þjónar lands-
byggðarleitinni og eitt tæki er á Ak-
ureyri. „Með stafrænni tækni eru
myndir lesnar beint af tölvuskjá í
stað röntgenfilmu og er greining-
artækni betri. Tölvuforrit gerir
úrlestur röntgenmynda auðveldari
og hægt er að senda myndir raf-
rænt á milli staða,“ segir Sigríður
en fleiri tækninýjungar hafa litið
dagsins ljós.
Tvö ný ómtæki voru tekin í
notkun á Leitarstöðinni í Skógar-
hlíð og í leghálskrabbameinsleit
var tekin upp notkun vökvasýna í
stað hefðbundinnar frumustroka.
„Við höfum jafnframt leitast við
að bæta þjónustuna meðal annars
með því að konur með einkenni í
brjóstum fá nú viðtal við hjúkrun-
arfræðing og þjónusta lækna hefur
verið aukin með fjölgun sérskoðun-
artíma.“
ÓDÝR FORVÖRN
Starfsfólk Leitarstöðvar hvetur
konur til að fara reglulega í krabba-
meinsskoðun, það er ódýr forvörn
sem skilar árangri. - sg
Mikilvæg forvarnaþjónusta
Sigríður Þorsteinsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri Leitarstöðvar Krabbameins-
félags Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Hugmyndin var að búa til bleika
slaufu fyrir alla. Nælan hefur höfð-
að meira til kvenþjóðarinnar, en
nammið geta allir borðað,“ segir
Herborg Harpa Ingvarsdóttir arki-
tekt sem ásamt Þórunni Hannes-
dóttur vöruhönnuði hefur hannað
og framleitt hlaup í formi bleikrar
slaufu.
„Við sendum inn tillögu í sam-
keppni sem Krabbameinsfélagið
hélt um hönnun á bleiku slaufunni.
Hefðin hefur verið að hafa nælu og
þannig var það einnig í ár en hins
vegar þótti hugmyndin okkar það
skemmtileg að við vorum hvattar
til að þróa hana lengra í samstarfi
við Krabbameinsfélagið,“ útskýrir
Herborg Harpa en allur ágóði af
sölu sælgæt-
isins rennur til
Krabbameinsfélagsins.
„Slagorð vörunnar er „Fáðu þér
gott fyrir gott“, það er að fá sér
nammi fyrir gott málefni,“ segir
hún en þær stöllur, sem vinna undir
nafninu Færið, hafa verið í sam-
starfi við Nóa Siríus og Plastprent
við hönnun vörunnar.
Hlaupið er selt í hundrað gramma
pokum. Það verður til sölu á nokkr-
um stöðum á borð við Kraum, Epal,
Hrím, N1, Kaffitár, Póstinn, Sirku,
Melabúðina, Þína verslun – Selja-
braut, Valfossi og Rauðakrossbúð-
unum í Fossvogi og á Hringbraut.
Nána á www.faerid.com. - sg
Gott fyrir gott
Þórunn og Herborg Harpa mynda tvíeykið Færið en þær hafa hannað bleikt sælgæti í
formi bleiku slaufunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
● DHL BJARGAÐI SLAUFUNNI HEIM Framleiðslu- og
hönnunar ferlið á Bleiku slaufunni tafðist nokkuð í sumar þar sem Krabba-
meinsfélagið og Ragnheiður, hönnuður slaufunnar, lögðu mikla áherslu
á að slaufan yrði einstaklega falleg og klæðileg. Því mátti litlu muna að
slaufan næði ekki hingað til
lands á réttum tíma.
Þegar ljóst varð að sú
flutningsleið sem í upphafi
var valin myndi ekki ná að
flytja slaufurnar til lands-
ins fyrir 1. október leitaði
Krabbameinsfélagið á náðir
DHL, sem flutti eitt tonn
af slaufum alla leið frá Kína til Íslands á einungis tveimur dögum og
studdi verkefnið Bleika slaufan verulega með því að halda kostnaðinum
í algjöru lágmarki. „Það er okkur sönn ánægja að styðja við góð málefni
eins og Bleiku slaufuna og Krabbameinsfélagið. Við gerum okkur grein
fyrir því hversu vel það fjármagn er nýtt sem kemur inn með sölu Bleiku
slaufunnar og vildum því leggja hönd á plóg til að átakið tækist sem
best og félagið gæti selt allar þær 50.000 slaufur sem markmiðið er að
selja í ár,“ sagði Atli Einarsson, framkvæmdastjóri DHL á Íslandi.
COOLMINT FLUORIDE TOTAL CARE