Fréttablaðið - 09.10.2010, Blaðsíða 118
70 9. október 2010 LAUGARDAGUR
„Hann er ekkert á tátiljunum
þarna. Hann heldur enn þá í karl-
mennskuna,“ segir Sigurlaug Hall-
dórsdóttir, eða Dillý, flugfreyja og
eiginkona leikarans Pálma Gests-
sonar. Stutt er síðan þau byrjuðu
að stunda samkvæmisdansa einu
sinni í viku eftir að hafa frestað
því í mörg ár.
Pálmi er þekktur sem mikið
karlmenni sem hefur gaman af
alls konar veiðimennsku og kemur
áhugi hans á samkvæmisdönsum
því nokkuð á óvart. Dillý segist
alls ekki hafa þurft að draga hann
af stað. Þau hafi alltaf dansað á
balli einu sinni á ári og þá hafi
þessir leyndu hæfileikar Pálma
komið í ljós. „Það sem maður þarf
til að geta dansað er að hafa músík
í sér, það er frumskilyrði. Hann
hefur alveg svakalega músík í sér
og mikinn dans,“ segir hún. Spurð
hvort dansinn gæti bætt Pálma enn
frekar sem leikara segir hún: „Það
hlýtur að vera að allt svona auðgi
mann sem leikara. Leiklist gengur
ekki bara út á að fara með texta.
Þetta er svo mikil líkamleg tján-
ing. Hann hefur oft dansað einhver
spor í hinum og þessum leikverk-
um og hann er svo langt frá því að
vera einhver eikardrumbur.“
Dillý er sjálf vanur dansari og
var á sínum yngri árum í Dans-
skóla Hermanns Ragnars. Þar átti
hún sama dansfélagann í fjórtán
ár, eða allt þar til hann fór utan í
nám. Þau voru meðlimir hópsins
Dansstúdíó 16 sem kom oft fram í
Sjónvarpinu á áttunda áratugnum.
„Þegar dansherrann minn flutti til
Bretlands þá eiginlega dagaði ég
uppi. Ég átti rosalega erfitt í mörg
ár. Þegar maður hefur dansað
svona mikið er rosalega erfitt allt
í einu að hætta því. Maður fer ekk-
ert eftir fjórtán ár að dansa bara
við einhvern annan,“ útskýrir
hún.
Hluti ástæðunnar fyrir því að
hún og Pálmi drógu samkvæm-
isdansinn á langinn er einmitt
mismunandi bakgrunnur þeirra.
„Til að byrja með þurfti ég að
byrja í hliðar saman hliðar, sem
var kannski ekkert sem mig lang-
aði að gera. En svo snjóar líka
yfir þetta. Það eru þrír áratugir
sem ég hef ekki dansað þannig
að það er allt í lagi að byrja frá
grunni. Svo er þetta bara ofsalega
skemmtilegt.“
Hún segir dans vera kjörið tæki-
færi fyrir hjón til að rækta sam-
band sitt. „Það er alltaf miklu auð-
veldara að vera bara heima hvort í
sínu horni með sitt en þetta er ekki
bara að sitja á móti hvort öðru og
spila bridds heldur er þetta snert-
ing og hreyfingar. Ég vona alla
vega að við séum komin til að vera
í þessu.“ freyr@frettabladid.is
SIGURLAUG HALLDÓRSDÓTTIR: PÁLMI HELDUR ENN Í KARLMENNSKUNA
Rækta hjónabandið
með samkvæmisdönsum
DANSINN DUNAR Dillý og Pálmi í samkvæmisdansi. Dillý segir að Pálmi sé alls
enginn eikardrumbur og hann hafi þetta alveg í sér. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Ég var tekin bak við og haldið
þar í klukkutíma. Svo var ég spurð
spjörunum úr og allt tekið upp úr
öllum töskum mínum. Fyrst vissi
ég ekkert hvað var í gangi en þeir
útskýrðu svo hvað var í gangi,“
segir fyrirsætan Bryndís Gyða
Michelsen.
Bryndís er stödd í Las Vegas
þar sem hún situr fyrir og eflir
tengslanet sitt. Eftir að dótið henn-
ar hafði verið grandskoðað í toll-
inum brýndu tollverðirnir fyrir
henni að Las Vegas sé hættuleg
borg fyrir nítján ára stelpur.
„Þeir sögðu mér að fara mjög
varlega og svo framvegis,“ segir
Bryndís. „Það fyndnasta við þetta
er að þegar ég kíkti inn á Facebook
sá ég að tveir þeirra höfðu addað
mér. Fannst það svolítið fyndið
– þeir voru ekki alvarlegri þó en
það.“
Bryndís fer í myndatökur víða
í Nevada og meðal annars í eyði-
mörkinni við borgina sem aldrei
sefur. Þá hittir hún fyrirsætur frá
New York, Los Angeles og Miami
sem eru í Las Vegas í sama til-
gangi og hún. „Svo er mér boðið
á ljósmyndaráðstefnu sem ég ætla
að mæta á,“ segir Bryndís. „Ég
held að það verði spennandi. Þetta
er frábært tækifæri til að kynn-
ast fleira fólki í þessum bransa og
stelpum. Þetta er æðislegt. Ég dvel
á Luxor, sem er eitt af fínustu hót-
elunum og það er komið fram við
mann eins og prinsessu. Allir mjög
almennilegir í Vegas.“ - afb
Í kröppum dansi í Las Vegas
VIVA LAS VEGAS! Tollverðirnir sem
stoppuðu Bryndísi Gyðu vildu svo vera
vinir hennar á Facebook.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Þetta reyndist vera aðeins meira
en mér sýndist í fyrstu,“ segir
Hilmir Snær Guðnason leik-
ari. Vesturport varð að hætta við
sýningu á Faust fyrir fullu húsi í
Young Vic-leikhúsinu á fimmtu-
dagskvöld þegar tuttugu mínút-
ur voru liðnar af leikritinu, vegna
skurðar sem Hilmir Snær hlaut.
Leikarinn vildi halda áfram en
Bretarnir sendu hann rakleiðis
upp á sjúkrahús í sjúkrabíl þar sem
hann varð að bíða í fjóra tíma eftir
að fá aðstoð. „Maður saknaði svo-
lítið íslensku slysavarðsstofunnar
þá,“ segir Hilmir.
Leikarinn verður merktur Lund-
únadvölinni til æviloka því hann
er með veglegt ör á sköflungnum.
„Þetta kennir manni kannski að
vera ekki að dansa of lengi við
skrattann og maður verður að
fara varlega í kringum þetta hlut-
verk,“ segir Hilmir, en hann leik-
ur einmitt kölska sjálfan í sýn-
ingunni og hefur fengið mikið lof
fyrir frammistöðu sína í bresk-
um fjölmiðlum. Hilmir segist ekki
hafa áttað sig á því hversu alvarleg
meiðslin voru. „Ég rak sköflunginn
í og eins og allir vita er það rosa-
lega vont. Ég ákvað bara að bíta á
jaxlinn og hélt að þetta myndi bara
hverfa. Svo tók ég eftir því að fólk
var hætt að hlæja að bröndurun-
um mínum og leit niður. Ég var í
hvítum síðum nærbuxum sem voru
orðnar rauðar fyrir neðan hné. Þá
skrapp ég afsíðis þegar tækifæri
gafst og sá þá hvað var á seyði.“
Hilmir upplýsti hins vegar að
hann myndi fara á svið strax á
föstudagskvöld en skoða aðeins
hoppin með leikstjóranum Gísla
Erni áður, annað ætti að ganga eðli-
lega fyrir sig. „Það reynir fremur
lítið á þessa vöðva, ég lagast um
leið og ég hitna aðeins.“ - fgg
Hilmir Snær fluttur á sjúkrahús í London
BLÓÐUGUR UPPI Á SVIÐI Hilmir Snær
var keyrður með sjúkrabíl á sjúkrahús í
London vegna skurðar sem hann fékk á
sköflunginn í miðri Faust-sýningu.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
PERSÓNAN
Sigyn Eiríksdóttir
Aldur? Ég er 44 ára.
Starf? Ég rek fataframleiðslufyrir-
tæki með syni mínum Munda.
Búseta? 101 Reykjavík.
Fjölskylda? Maki og fjórir synir.
Stjörnumerki? Ég er vatnsberi.
Brotist var inn í verslun Munda á Lauga-
vegi og öllum lager búðarinnar stolið.
Hinn virti kvikmyndarýnir Roger
Ebert bloggar reglulega á vefsvæði
Chicago Sun Times og uppfærir
jafnharðan lista yfir bestu og
verstu kvikmyndirnar sem hann
sér á hverju ári. Eftirsóknarvert er
að komast í fyrri flokkinn, síður í
þann síðarnefnda. Engu að síður
eiga Íslendingar hlut að máli í
tveimur myndum á lista Eberts
yfir verstu myndir ársins.
Ebert er til að mynda ekki par
hrifinn af gamanhasarmyndinni
Spy Next Door með Jackie Chan
og Magnúsi Scheving. Ebert er
reyndar ekkert einn um það því
myndin fékk afleita dóma víðast
hvar. Og því gefur rýnirinn henni
aðeins eina og hálfa stjörnu.
Hitt fórnarlamb Ebert er
Dagur Kári Pétursson
og kvikmynd hans The
Good Heart sem hann
er ekki hrifinn af og
gefur henni líka eina
og hálfa stjörnu. - fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
Fös 15.10. Kl. 20:00 frums.
Lau 16.10. Kl. 20:00 2. sýn
Fös 22.10. Kl. 20:00 aukas.
Lau 23.10. Kl. 20:00 3. sýn
Lau 30.10. Kl. 20:00 4. sýn
Sun 31.10. Kl. 20:00 5. sýn
Fös 5.11. Kl. 20:00 6. sýn
Lau 6.11. Kl. 20:00 7. sýn
Fim 11.11. Kl. 20:00 8. sýn
Fös 12.11. Kl. 20:00
Fös 19.11. Kl. 20:00
Lau 20.11. Kl. 20:00
Lau 9.10. Kl. 13:00
Lau 9.10. Kl. 15:00
Lau 16.10. Kl. 13:00
Lau 16.10. Kl. 15:00
Sun 17.10. Kl. 13:00
Sun 17.10. Kl. 15:00
Lau 23.10. Kl. 13:00
Lau 23.10. Kl. 15:00
Sun 24.10. Kl. 13:00
Sun 24.10. Kl. 15:00
Fös 8.10. Kl. 20:00
Lau 9.10. Kl. 20:00
Fös 15.10. Kl. 20:00
Lau 16.10. Kl. 20:00
Fim 21.10. Kl. 20:00 Aukas.
Fös 22.10. Kl. 20:00
Lau 23.10. Kl. 20:00
Fös 29.10. Kl. 20:00
Lau 30.10. Kl. 20:00
Sun 31.10. Kl. 20:00
Fim 4.11. Kl. 20:00
Fös 5.11. Kl. 20:00
Lau 6.11. Kl. 20:00
Fim 11.11. Kl. 20:00
Fös 12.11. Kl. 20:00
Lau 13.11. Kl. 20:00
Fös 8.10. Kl. 19:00
Lau 9.10. Kl. 19:00
Sun 17.10. Kl. 19:00
Sun 24.10. Kl. 19:00
Þri 26.10. Kl. 19:00
Mið 27.10. Kl. 19:00
Fim 28.10. Kl. 19:00
Mið 3.11. Kl. 19:00 Aukas.
Sun 7.11. Kl. 19:00
Mið 10.11. Kl. 19:00
Sun 14.11. Kl. 19:00
Mið 24.11. Kl. 19:00 Aukas.
Fim 25.11. Kl. 19:00 Aukas.
Lau 11.12. Kl. 19:00 Aukas.
Sun 12.12. Kl. 19:00 Aukas.
Fim 21.10. Kl. 20:00
Fös 29.10. Kl. 20:00
Fim 4.11. Kl. 20:00
Lau 13.11. Kl. 20:00
Fim 18.11. Kl. 20:00 Aukas.
Fös 26.11. Kl. 20:00
Fös 3.12. Kl. 20:00
Ö
U
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
U
U
U
Finnski hesturinn (Stóra sviðið)
Fíasól (Kúlan)
Hænuungarnir (Kassinn)
Íslandsklukkan (Stóra sviðið)
Gerpla (Stóra sviðið)
Gildir
ágúst
2010
til jún
í 2011
úsk
orti
ð
1
OPIÐ
KORT
Gildir
á
Leik
hús
kor
tið
201
0/2
011
ÁSK
khusi
d.is I
midas
ala@
le
Leikhúsk
ort
4 miðar á
aðeins
9.900 kr.
Ö
U
U
U
U Ö Ö
U
U
Ö
Ö
U
Ö
U
U
U Ö
U
U
Ö
Ö
Ö Ö
U
Ö
Ö U
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
U
U
U
Ö
U
Ö
Ö
Ö