Fréttablaðið - 09.10.2010, Page 82
10 fjölskyldan
afmæli
alltaf jafn skemmtileg ...
Sunbird-fatalína Sunnu Dagg-ar Ásgeirsdóttur er nýkom-in í verslanir en hún hefur unnið sleitulaust frá áramót-
um að því að setja saman fallega,
litríka og töff barnalínu. „Barna-
fatahönnunin hófst fyrir jólin í
fyrra en þá seldi ég föt á pop-up
markaði. það gekk vel og ég ákvað
að hella mér út í fatahönnunina,“
segir Sunna Dögg sem lærði vöru-
hönnun í Listaháskólanum en hefur
fengist við fatasaum frá unga aldri.
„Mig langaði að gera föt sem væru
þægileg og flott og foreldrum þætti
líka flott. Ég á sjálf eina dóttur og
nokkra yngri bræður og hef oft
hlustað á mömmu tala um hve erfitt
er að finna skemmtileg föt á stráka,
en það virðist iðulega minna úrval
af strákafötum en stelpufötum í
verslunum.“
Í Sunbird-línunni eru peysur,
buxur og kjólar og er hálfgert
indjánaþema í fötunum að þessu
sinni. „Mig langaði að hafa smá
leik í þessu, hvetja til leiks og
sköpunar.“
Viðtökurnar hafa verið góðar en
fötin eru seld í verslununum Bíbí
og blaka, Fiðrildinu, Mýrinni og
Rumputusku auk netverslunarinn-
ar icelandicmarket.com. - sbt
Barnaföt sem
foreldrar fíla
Litrík og töff Sunna hefur unnið hörðum höndum að nýju fatalínunni.
Fyrir bæði kynin Línan inniheldur
föt á bæði drengi og stúlkur.
Sunna Dögg Ásgeirsdóttir
greip til þeirra ráða að
hanna barnaföt eftir að hafa
átt í erfiðleikum að finna
flott föt.
LEIKJADAGSKRÁ í afmælum er alltaf í miklum metum hjá
boðsgestum. Leikjavefurinn.is er afbragðs hjálpartæki við að
skipuleggja góða leikjadagskrá en vefurinn er samvinnu- og
þróunarverkefni kennara og kennaraefna með um 400 leikjum.
Í góðu verði er upplagt að
nota stór útivistarsvæði,
Hljómaskálagarðinn þar
sem grillaðstaða er,
Guðmundarlund í Kópavogi
eða Nauthólsvík undir
barnmörg afmæli. Yfir
vetrartímann er ákjósan-
legra að veislan sé innan-
dyra og þá er oft unnt að
kaupa alla þjónustu í
kringum veisluna á staðn-
um. Af slíkum stöðum má
nefna Keiluhöllina, Veröld-
ina okkar og Ævintýraland
Kringlunnar. Þá getur einnig
verið sniðugt að fara með
hópinn í þrjúbíó en sum
bíóhúsin bjóða upp á
afmælisveisluþjónustu fyrir
barnahópa.
Veislan utan
heimilisins
Þríburarnir Salvar Þór, Jar-þrúður Ragna og Þorkell Mar Jóhannsbörn verða tíu ára á morgun. Tilhlökkunin
er mikil líkt og jafnan er hjá börn-
um, þó er morgundagurinn sérstak-
ur því tíu ára afmælið ber upp á
tíunda dag tíunda mánaðar 2010.
„Mér finnst það bara gaman,“
svarar Þorkell Mar inntur eftir
því hvernig honum finnist dag-
setningin og upplýsir að hann hafi
vitað af þessari staðreynd lengi.
Þessu samsinna systkini hans. En
hvernig er að deila afmælinu sínu
með öðrum? „Það er skrítið en
skemmtilegt,“ svarar Salvar Þór
og þau systkinin eru sammála því.
En kemur það ekki niður á gjöfun-
um? „Nei, nei,“ segir Þorkell Mar,
„við Salvar Þór fáum oftast það
sama en Jarþrúður fær eitthvað
annað af því að hún er stelpa.“
Systkinin eru í Birkimelsskóla
en aðeins átta nemendur eru í skól-
anum og þríburarnir þeir einu í
sínum árgangi. „Öðrum, fjórða og
fimmta bekk er kennt saman og
svo eru eldri krakkarnir sér,“ segir
hún en krakkarnir frá Brjánslæk
eru helmingur barna skólans því
eldri bróðir þríburanna, Ágúst
Vilberg tólf ára, er einnig í skól-
anum. Elsti bróðirinn Markús Ingi
býr einnig á Brjánslæk en hann er
nýútskrifaður bifvélavirki.
Og eruð þið góðir vinir? „Jú, jú,
við erum góðir vinir,“ svarar Sal-
var Þór. „Samt rífumst við stund-
um,“ bætir Þorkell við glettinn.
Foreldrar þríburanna, þau
Jóhann Ágústsson og Halldóra
Ragnarsdóttir, eru bændur. Líkt og
á öðrum bæjum er af nægum verk-
efnum að taka og systkinin segjast
hjálpa til. Öll eru þau sammála um
að skemmtilegast sé að taka á móti
lömbunum í sauðburði. „Núna er
aðallega verið að smala og setja í
slátur,“ upplýsir Þorkell.
En hvernig á að halda upp á
afmælið í ár? „Ef ég fengi að ráða
myndi ég halda barnaafmæli
klukkan tvö og fullorðinsafmæli
klukkan sex,“ fullyrðir Þorkell
spekingslega. - sg
VERÐA 10 ÁRA 10.10 ´10
Á bænum Brjánslæk við Patreksfjörð búa lífsglaðir þríburar sem standa á tímamótum. Tíu ára afmælið stendur fyrir dyrum
og dagsetningin er ekki af lakari endanum 10.10 2010. Þau hlakka mikið til en hvítt lamb og hestur eru efst á óskalistanum.
Þríburar Jarþrúður Ragna, Salvar Þór og Þorkell Mar eru fínir vinir þó þau
viðurkenni að vissulega rífist þau stundum. Hér eru þau saman í fríi í sumar.
M
YN
D
/Ú
R
EI
N
KA
SA
FN
I
tertusneið
í bakaríi
eða
Stöð 2, Stöð 2 Bíó og Stöð 2 Extra kosta aðeins 229 krónur á dag í Stöð 2 Vild. Tryggðu þér áskrift í dag!
FYRIR 229 KRÓNUR
FÆRÐ ÞÚ:
frábæra skemmtun í
heilan sólarhring fyrir
alla fjölskylduna
VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 INNIHELDUR: AUK STIGVAXANDI AFSLÁTTAR. 512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000