Fréttablaðið - 09.10.2010, Síða 88
40 9. október 2010 LAUGARDAGUR
U
m ár er síðan stjórn-
endur teiknimynda-
fyrirtækisins Caoz
settu í fimmta
gír með það fyrir
augum að búa til þrí-
víða tölvuteiknimynd um þrumu-
guðinn Þór. Myndin hefur verið á
fæðingardeildinni í nokkur ár og
hafa bæði Þór og handrit sögunn-
ar tekið stakkaskiptum í ferlinu.
Sá Þór sem kvikmyndahúsagestir
fá að sjá þegar myndin verður
frumsýnd næsta haust er drengur
á grunnskólaaldri sem býr hjá ein-
stæðri móður sinni í litlu þorpi og
nemur járnsmíði. Ekki er vitað hver
faðir hans er en sá orðrómur mun
á kreiki að það sé sjálfur Óðinn.
Þegar jötnar ráðast á þorpið held-
ur hann í hjálparleiðangur með tal-
andi hamar í farteskinu.
Glímt við guði
Þeir Hilmar Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Caoz, og Arnar
Þórisson, einn framleiðenda mynd-
arinnar, segja vandasamt að koma
goðafræðinni, sem Snorri Sturluson
færði í letur fyrir um átta hundruð
árum, á teiknimyndaform svo jafnt
börn sem fullorðnir tengi við sög-
una.
„Vandinn við guði er að þeir
eru eilífir og þroskast ekkert.
Það hentar illa kvikmyndaformi,“
segir Arnar. Því hafi verið ákveð-
ið að færa söguna til nútímans að
nokkru leyti – ekki síst hvað fjöl-
skylduformið áhrærir.
Aðstandendur myndarinnar
höfðu eðlilega áhyggjur af því að
fræðasamfélagið myndi skjálfa við
meðferðina á sagnaarfinum. Blásið
var til málstofu með íslenskudeild
Háskóla Íslands þar sem verkefnið
var kynnt.
„Við höfðum miklar áhyggjur af
því að fá neikvæð viðbrögð. Það
gladdi okkur þegar fræðimennirnir
lýstu yfir ánægju með að unnið sé
með sagnaheiminn sem uppsprettu
að einhverju nýju. Þeir telja sög-
urnar hafa verið til í munnmælum
áður en Snorri skráði þær og ekki
vitað hverju hann breytti,“ segir
Hilmar. Hann bætir við að þótt
saga Snorra af þrumuguðnum hafi
tekið stakkaskiptum í meðförum
Caoz sé haldið tryggð við ákveðin
karaktereinkenni. „Karakter gallerí
í norrænni goðafræði er stórkost-
legt. Við bætum aðeins við, svo
sem vinkonu Þórs og móður hans,“
segir Hilmar en á fjórða hundrað
persóna eru í myndinni, sem allar
þarf að teikna frá grunni, svo sem
undirheimadrottninguna Hel og
hennar skrautlegu en ógnvekjandi
hirð. Loka er hins vegar ekki að
finna í sögunni. Hilmar segir Loka
svo litríkan persónuleika að hann
gæti þurft aðra mynd undir sig.
Skjaldbökuhraði
Hilmar segir ekki hlaupið í verk-
efni á borð við teiknimyndina um
Þór. Caoz hafi verið tíu ár á leið-
inni.
„Þegar við bjuggum til Litlu lirf-
una ljótu vorum við að sanna fyrir
sjálfum okkur að við gætum gert
hana. Með Önnu og skapsveiflun-
um fyrir þremur árum vorum við
að sýna umheiminum að við gætum
gert þetta áður en við færum í
svona risaverkefni. Þetta voru
æfingar,“ segir Hilmar.
Hjá Caoz starfa áttatíu manns
í dag í fjórum stúdíóum í þrem-
ur löndum. Við Skúlagötuna eru
28 sérfræðingar á ýmsum svið-
um teiknimyndalistarinnar frá
sjö þjóðlöndum. Hinir starfsmenn
fyrirtækisins eru í Þýskalandi og
á Írlandi. Ársverkin eru nú orðin
hundrað. Allt eru þetta hálauna-
störf sem flest urðu til hér á sama
tíma og atvinnuleysi var að auk-
ast í nær öllum öðrum geirum. Því
er greinilega ekki að skipta í hug-
verkageiranum.
Milljarðaverkefni
Aðstandendur Caoz hafa varið
tæpum þremur árum í fjármögn-
un myndarinnar um Þór, sem mun
kosta 1,4 milljarða króna í fram-
leiðslu.
Að fjármögnuninni koma 24
fjárfestar, fyrirtæki og stofnan-
ir. Erlendir kvikmyndasjóðir fjár-
magna tæp þrjátíu prósent myndar-
innar, fjárfestar rúman fimmtung
og framleiðendurnir sjálfir 14,6
prósent. Evrópski kvikmyndasjóð-
urinn Eurimages er á meðal þeirra
sem lögðu fram fé til myndarinnar
ásamt þýskum og írskum sjóðum.
Hilmar bendir á að staða Caoz
sé nú orðin slík að fyrirtækið sé
gjaldgengt sem stórt fyrirtæki
í teiknimyndagerð á evrópsk-
an mælikvarða og geti sótt um til
allra kvikmyndasjóða sem tengjast
Íslandi, Norðurlöndunum og megin-
landi Evrópu.
Þótt ár sé í frumsýningu er búið
að selja myndina í forsölu til þrjá-
tíu landa. Það er smáræði miðað
við háleitar áætlanir samstarfsað-
ila Caoz á meginlandi Evrópu. Þeir
telja sig geta komið henni á hvíta
tjaldið í hundrað löndum.
Þór 2?
Greinilegt er að gríðarleg vinna
liggur á bak við tölvuteiknimynd-
ina um ævintýri þrumuguðsins og
mikil þekking er orðin til í tölvu-
teiknimyndagerð. „Sagnaheimur-
inn er mjög ríkur. Við höfum tæki-
færi til að ferðast víða um hann.
Við sjáum þetta sem fyrsta skrefið
að einhverju meiru,“ segir Hilmar
Sigurðsson, framkvæmdastjóri
Caoz.
HILMAR OG ARNAR Forsvarsmenn Caoz höfðu áhyggjur af því að meðferð þeirra
á ritverki Snorra Sturlusonar mynda valda reiði í fræðaheiminum. Þeim létti þegar
sérfræðingar í fornritum í Háskóla Íslands lýstu yfir ánægju með nýja framsetningu
og notkun á sagnaarfinum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
KARAKTER BÚINN TIL Allar persónur eru búnar til með hendur út frá líkamanum. Það
er gert svo hægt sé að móta líkamann frá öllum hliðum. Um viku tekur að búa til sjö
til tíu sekúndna myndbrot. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Forn saga verður að dýrustu
kvikmynd Íslandssögunnar
Teiknimyndafyrirtækið Caoz fagnar tíu ára afmæli á næsta ári. Blásið verður til gríðarlegrar afmælisveislu, sem öðru fremur
felst í frumsýningu á tölvuteiknaðri þrívíddarmynd í fullri lengd um þrumuguðinn Þór. Jón Aðalsteinn Bergsveinsson settist
niður með nokkrum af forsvarsmönnum fyrirtækisins og fræddist um hausverkinn sem felst í gerð tölvuteiknaðrar stórmyndar.
STÍGA VERÐUR MÖRG SKREF ÁÐUR EN TÖLVUTEIKNIMYND VERÐUR TIL
HÆGFARA ÞRÓUNARFERLI
1 Hvert atriði er grófteiknað. Eins og sést var upphaflega persónan
stærri í fyrstu drögum. Aðstandendur
myndarinnar talsetja sjálfir.
2 Fyrsta atrenna í tölvuteiknun. Atrið-ið er grófteiknað í tölvu. Höndum
og fótum er sleppt til að spara tíma.
3 Hreyfingu bætt við. Myndin enn gróf. Hlutum hefur verið bætt við. 4 Búið að setja endanlegt form á persónu myndarinnar og klæða
hana í föt. Umhverfið er enn gróft.
Flestir hlutir eru komnir á myndflötinn.
5 Endanlegt atriði.
1 2 3 4 5
➜ Eina af Íslendingasögunum eða 800 ára
gamla bók.
➜ Friðrik Erlingsson til að skrifa handritið 25
sinnum.
➜ Óskar Jónasson til að leikstýra myndinni.
➜ 1,4 milljarða króna.
➜ Áttatíu sérhæfða starfsmenn í tölvuteikni-
myndagerð, brellum og fleira.
➜ Fjögur stúdíó í þremur löndum.
➜ Samstarfsaðila í tölvuteiknimyndagerð á
Norðurlöndum.
➜ Geymslupláss því einn myndrammi er um
9 mb. Allt efni í kringum hann er tuttugu-
falt meira.
➜ Þolinmæði því það tekur einn tölvu-
myndateiknara viku að búa til sjö til tíu
sekúndur af myndefni.
➜ 125 þúsund ramma af myndefni. Tvöfalt
fleiri ramma þarf í þrívíða mynd.
➜ Myndin um Þór er því 9 mb x 250.000
rammar. Það jafngildir 2.250.000 mb.
➜ Gott tölvukerfi. Kerfi Caoz jafnast á við að
250 borðtölvur með tvöfaldan örgjörva
hver séu í fullri keyrslu á sama tíma.
➜ Gagnaver. Öll gögn Caoz speglast í gagna-
veri Thor Data Center í Hafnarfirði. Glatist
gögnin í húsakynnum Caoz tapast aðeins
tvær klukkustundir af efni og vinnu.
ÞETTA ÞARF TIL AÐ BÚA TIL MYNDINA UM ÞÓR