Fréttablaðið - 09.10.2010, Side 96
9. október 2010 LAUGARDAGUR48
Ungur og fallegur köttur,
Gutti að nafni, er nú búsett-
ur í hjúkrunarheimilinu
Mörk við Suðurlandsbraut í
Reykjavík, íbúunum til mik-
illar gleði. Það var Pétur
Magnússon, forstjóri Hrafn-
istu, sem færði starfsmönn-
um og heimilisfólki Mark-
ar köttinn að gjöf í tilefni
vígslu nýja hjúkrunarheim-
ilisins, en þar búa meðal
annars fyrrverandi heimilis-
menn á hjúkrunarheimilum
Hrafnistu í Víðinesi og á
Vífilsstöðum, sem lokað var
í sumar.
Kötturinn heitir fullu
nafni Guðbjartur Víðir til
minningar um kynbróður
sinn Guðbrand Víði, sem
búsettur var í Víðinesi. Á
myndinni lúrir Guð bjartur,
eða Gutti, eins og hann er
kallaður í daglegu tali,
á sófanum á deild „þrjú
suður“. Sumir vilja meina
að Gutti heiti í höfuðið
á núverandi heilbrigðis-
ráðherra, sem átti ekki
heiman gengt frá Alþingi
til að vera viðstaddur
vígsluna. Hvort svo er skal
ósagt látið.
Gutti! Gutti! Kominn heim
MALANDI GÓÐ TILVERA Gutti er
fallegur og virðulegur enda gefið
ráðherranafn, þótt hann sé líka
nefndur í minningu kynbróður
síns í Víðinesi.
M
YN
D
/H
R
A
FN
IS
TA
Verslunin Outlet í Faxafeni
gaf fimm vörubretti af fatn-
aði til Rauða krossins á mið-
vikudaginn var. Þetta er í
fyrsta sinn sem verslunin
aðstoðar á þennan hátt en
Kári Sverrisson, verslunar-
stjóri Outlet, segir stefnt á
að gefa reglulega fatnað og
fylgihluti.
„Neyðin er mikil og við
viljum leggja okkar af mörk-
um. Verslanir eru ekki dug-
legar að gefa fatnað svo
okkur fannst þetta góð við-
bót en við gáfum fatnað á
börn og fullorðna, karla og
konur. Allt merkjavöru frá
NTC og 17-búðunum, sumt
nýtt sumt eldra.“
Fatnaðurinn er flokkaður
og metinn hjá Rauða krossin-
um sem sér svo um að dreifa
honum um allan heim þar
sem hans er þörf. Kári segir
von á fleiri gjöfum frá Out-
let með haustinu.
„Við eigum eftir að endur-
taka leikinn þegar húsa-
kynni 17 á Laugaveginum
verða tæmd. Það er yndis-
legt að geta gefið.“ - rat
Merkjavörur til
Rauða krossins
YNDISLEGT AÐ GETA GEFIÐ Kári Sverrisson, verslunarstjóri Outlet,
afhenti starfsmanni Rauða krossins fimm vörubretti af fatnaði.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Merkisatburðir
1943 Lifandi leðurblaka finnst í fyrsta skipti á Íslandi. Það er á
Hvoli í Mýrdal.
1963 Skáldatími eftir Halldór Laxness kemur út. Þar gerir höf-
undurinn upp við sósíalismann.
1965 Dagur Leifs heppna er haldinn hátíðlegur á Íslandi í fyrsta
sinn.
Ásgarður handverkstæði
hefur hlotið jafnréttis-
viðurkenningu Mosfellsbæjar
2010 fyrir að vinna ötullega
að jafnréttismálum þannig
að allir geti tekið þátt í starf-
seminni á jafnræðisgrund-
velli, óháð kyni, fötlun eða
öðru.
Ásgarður er handverkstæði
fyrir fólk með þroskahöml-
un og hefur starfað frá árinu
1983. Starfsmennirnir þar
eru um þrjátíu talsins. Þeir
framleiða listmuni og leik-
föng, einkum úr tré en líka
beinum, hornum, málmum,
steinum og öðru hráefni.
Þetta var í þriðja sinn
sem jafnréttisdagur Mos-
fellsbæjar var haldinn. Yfir-
skrift hans var Ungt fólk og
jafnrétti og var dagskrá-
in að mestu leyti borin uppi
af unglingum úr félagsmið-
stöðinni Bóli og nemendum
í Framhaldsskóla Mosfells-
bæjar. - gun
Ásgarður fékk verðlaun
AFHENDING Kolbrún Þorsteinsdóttir, formaður fjölskyldunefndar, og
Haraldur Sverrisson bæjarstjóri veita starfsmönnum Ásgarðs jafnréttis-
viðurkenningu Mosfellsbæjar 2010.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Fríða Freymóðsdóttir
Andrésbrunni 17, Reykjavík,
lést á Landspítalanum í Fossvogi föstudaginn 1.
október. Útför fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn
11. október kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hennar er
bent á líknarstofnanir.
Ásdís K. Molvik
Erla Helgadóttir Tómas Guðmarsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær vinur, faðir, afi og bróðir,
Jóhannes Ingólfur Jónsson
lést föstudaginn 1. október á Hjúkrunarheimilinu
Eir, Hlíðarhúsum 7 í Reykjavík. Hann verður jarð-
sunginn frá Árbæjarkirkju, mánudaginn 11. október
kl. 11.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á
Parkinsonsamtökin.
Ólöf Sigríður Stefánsdóttir
Ásta Guðrún Jóhannesdóttir
Jón Kristinn Jóhannesson
Elísa Rós Natansdóttir
Systkini, vinir og vandamenn
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og
afi,
Jóhannes Bergþór Long
Kristnibraut 6, Reykjavík,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 5. október.
Útförin verður auglýst síðar.
Berglind Long Gunnar Bergmann Traustason
Íris Long Guðmundur Guðjónsson
Helen Long Jón Ingi Hilmarsson
og barnabörn.
Við þökkum af alhug öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og hlýhug
vegna andláts og við útför elskulegs
bróður okkar,
Gunnólfs Sigurjónssonar
húsvarðar Þjóðmenningarhússins.
Sérstakar þakkir færum við hjúkrunarþjónustunni
Karitas, líknardeild Landakots og starfsfólki
Þjóðmenningarhússins.
Sigrún Sigurjónsdóttir, Sverrir Sigurjónsson og fjölskyldur.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Lilja Ólafsdóttir
Dvalarheimilinu Nausti, Þórshöfn,
andaðist á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga á Húsavík
þriðjudaginn 5. október. Útförin verður auglýst síðar.
Ólafía B. Matthíasdóttir Þórarinn B. Gunnarsson
Bjarki Friðgeirsson
Matthildur Jóhannsdóttir
Oddný Matthíasdóttir
Ólafur Stefánsson Steinfríður Alfreðsdóttir
Magnea Stefánsdóttir Þorsteinn Sæmundsson
Einar Stefánsson Guðlaug Ragna Jónsdóttir
Jón Stefánsson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Haraldur Þorsteinsson
lést á hjúkrunardeild Hrafnistu í Hafnarfirði þann
5. október sl. Útför hans fer fram frá Neskirkju þann
19. október nk. kl. 13.00.
Sigurður Haraldsson Jóna Guðjónsdóttir
Þorsteinn Haraldsson Lára V. Júlíusdóttir
Ingibjörg Haraldsdóttir Sturla Þorsteinsson
Ástráður Haraldsson Eyrún Finnbogadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, bróðir og afi,
Gísli Theodór Ægisson
Sólhlíð 8, Vestmannaeyjum,
lést á heimili sínu sunnudaginn 3. október 2010.
Hann verður jarðsunginn frá Landakirkju fimmtudag-
inn 14. október kl. 12.00.
Guðbjörg Guðmundsdóttir
Gunnar Már Kristjánsson Unndís Ósk Gunnarsdóttir
Ástþór Ægir Gíslason
Guðmundur Gísli Gíslason Regina Ovesen
Garðar Smári Gíslason
Jóhann Helgi Gíslason
Þuríður Gísladóttir
systkini og barnabörn.
Okkur innilegustu þakkir til allra sem
sýndu okkur samúð og hlýhug vegna
andláts okkar elskulegu eiginkonu,
móður, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
Helgu Ragnhildar
Helgadóttur
Birkivöllum 27, Selfossi.
Ormur Hreinsson
Guðrún Ormsdóttir Þorsteinn Bjarnason
Ragnhildur Þorsteinsdóttir Gauti Guðlaugsson
Bjarni Þorsteinsson
Olga Björg Jónsdóttir
Helga Björg Ragnarsdóttir
Jón Hafsteinn Ragnarsson Elísabet Dröfn Erlingsdóttir
Kjartan Orri Ragnarsson
Una Guðrún, Katla Ýr, Gígja Rut, Ragnar Steinn, Þorsteinn
Elvar, Guðrún Soffía, Hafsteinn Eyvar, Ragnheiður Olga og
Ísabella Eir.