Fréttablaðið - 20.11.2010, Qupperneq 6
6 20. nóvember 2010 LAUGARDAGUR
Við viljum fá þá til
að biðja, biðjast fyrir,
biðja fyrir fólki og fyrir öllum
bænarefnum sem standa til
bæði hjá einstaklingum og
fyrir þjóðfélaginu.
SÉRA PATRICK BREEN
STAÐGENGILL BISKUPS
Er heilbrigðisráðuneytið að bregðast þegnum landsins?
St.Jósefsspítali
þjónustar allt landið
Lítil yfirbygging
Stuttar boðleiðir
Stöndum vörð um
St.Jósefsspítala
Aðgengileg þjónusta
Örugg
Ódýrari
14.000 undirskriftir sem mæla með St.Jósefsspítala-Sólvangi
45% niðurskurður boðaður á St. Jósefsspítala
96 starfsmenn í 69 stöðugildum missa vinnuna
Hvað verður um skjólstæðingana?
Baráttukveðjur til landsbyggðarsjúkrahúsanna. Stöndum vörð um vel reknar einingar. Áhugahópur um framtíð St.Jósefsspítala Hafnarfirði.
TRÚMÁL Kaþólska kirkjan á Íslandi
leitar enn að munkum í klaustur
hér á landi, að sögn séra Patricks
Breen, staðgengils biskups.
„Það er samt langt í land ennþá,“
segir séra Patrick og áréttar að
ekki sé komið að því að finna
munkaklaustrinu stað eða huga
að byggingu þess. „Fyrst leitum
við að munkum og það mál er ekki
enn í höfn.“ Kaþólska kirkjan hér
hefur verið í sambandi við nokk-
ur klaustur víða um heim, en án
árangurs enn sem komið er. „En
við gefumst ekki upp,“ segir séra
Patrick.
Hugmyndin um að stofna munka-
klaustur á Íslandi segir hann langt
því frá nýja af nálinni. „Þessar
hugmyndir hafa verið í gangi í ára-
tugi, næstum heila öld,“ segir séra
Patrick. Þá hafi þekktir Íslending-
ar verið fylgjandi hugmyndinni,
þeirra fremstir ef til vill Halldór
Laxness, sem tók kaþólska trú í
klaustri í Lúxemborg og Kristj-
án Eldjárn forseti, sem hann segir
hafa látið spyrja páfann í Róm um
hvort ekki mætti koma hér á stofn
munkaklaustri.
„Allir kaþólskir biskupar sem
hér hafa verið, allt frá því Meulen-
berg varð fyrstur biskup í Landa-
koti, hafa reynt. Meulenberg fékk
munka frá klaustri í Hollandi,
keypti jörðina Bjarnarhöfn á Snæ-
fellsnesi og var búinn að skrifa
undir,“ segir séra Patrick en þá
brast á með seinni heimsstyrjöld-
inni og snurða hljóp á þráðinn.
Séra Patrick segir fyrirbænir
helstu ástæðu þess að kaþólska
kirkjan vilji fá munka til Íslands.
„Við viljum fá þá til að biðja, biðj-
ast fyrir, biðja fyrir fólki og fyrir
öllum bænarefnum sem standa til
bæði hjá einstaklingum og fyrir
þjóðfélaginu. Og líka um leið til
þess að hafa stað þar sem fólk
getur komið til að halda kyrrðar-
daga, til að tala um andleg mál-
efni við munka, til að draga sig
í hlé,“ segir hann og kveður þar
komna helstu ástæðu þess að
kirkjan vilji ekki hafa klaustrið
of langt frá borginni. „Til þess að
fólk geti farið um helgar og jafnvel
á kvöldin í einn til tvo tíma eftir
vinnu til að vera viðstatt helgihald
í klaustrinu.“
Fyrirmyndir að slíku munka-
klaustri segir séra Patrick víða
að finna, svo sem í Frakklandi og
Þýskalandi. „Slík klaustur hafa
geysilega mikið aðdráttarafl.“
Að auki segir séra Patrick að ef
klaustrið sé ekki of langt frá borg-
inni þá mætti hafa þar aðstöðu til
barna- og unglingastarfs. „Við
erum ekki með neitt þannig eins
og er, ekki eins og lúterska kirkjan
sem getur sent krakka í Vatnaskóg
eða á svipaða staði. Við erum ekki
með neitt svoleiðis og viljum helst
hafa munka til slíkra starfa.“
olikr@frettabladid.is
Í HÁSKÓLANUM Myndin er tekin fyrir nokkru í aðalbyggingu Háskóla Íslands. Kaþólska
kirkjan hefur hug á að koma á stofn munkaklaustri í nágrenni Reykjavíkur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Finna ekki munka
sem vilja til Íslands
Kaþólska kirkjan á Íslandi er í sambandi við erlend klaustur um að fá senda
hingað munka til að manna klaustur í nágrenni höfuðborgarinnar. Í því yrðu
stundaðar fyrirbænir, helgiathafnir og mögulega barna- og unglingastarf.
ORKUMÁL Ross Beaty, eigandi HS
Orku, hótaði kanadísku tímariti
málsókn leiðrétti það ekki orð sem
Björk Guðmundsdóttir lét falla í
viðtali við vefútgáfu þess.
Tímaritið varð við ósk Beatys en
afbakaði orð Bjarkar í leiðrétting-
unni. Þetta kemur fram í tilkynn-
ingu frá Orkuauðlindir.is sem er
þrýstihópur Bjarkar og fleira fólks
sem vill að HS Orka komist í samfé-
lagslega eigu. Samkvæmt tilkynn-
ingunni sagði Björk í viðtalinu að
hún teldi að fyrirtæki í eigu Ross
Beaty hefðu orð á sér fyrir að brjóta
lög um mannréttindi og samninga
verkalýðsfélaga í Suður-Ameríku.
(e: Companies owned by Ross Beaty
have a bad reputation for breaking
serious humanitarian and union
laws in South America.)
Leiðrétting tímaritsins, í kjölfar
kröfu Beatys, hljóðaði hins vegar
svo: „Þann 9. nóvember var birt við-
tal við Björk á vefsíðunni þar sem
hún heldur því fram að Ross Beaty
og Magma Energy Corp. hafi brotið
lög í Suður-Ameríku. Þetta er ekki
rétt og við biðjum Ross Beaty og
fyrirtæki hans afsökunar.“
Bent er á að Björk hafi ekki nefnt
Magma heldur hafi hún vísað til
annars fyrirtækis í eigu Beatys;
Pan American Silver, en starfshætt-
ir þess hafa oft verið gagnrýndir og
um þá fjallað í fjölmiðlum víða um
heim. - bþs
Ross Beaty brást illa við ummælum Bjarkar um starfsemi hans í Suður-Ameríku:
Hótaði málsókn vegna orða Bjarkar
BJÖRKROSS BEATY
BRUSSEL Framkvæmdastjórn Evr-
ópusambandsins hvatti þjóðir
álfunnar í gær til að senda Haítí-
búum neyðaraðstoð til að auðvelda
baráttu gegn kólerufaraldri á eyj-
unni.
„Þetta snýst ekki bara um pen-
inga,“ sagði talsmaður fram-
kvæmdastjórnarinnar. Mæta
þyrfti vaxandi þörf fyrir heil-
brigðisþjónustu, hreint vatn og
hreinlætis- og lækningavörur.
Mestur skortur er á læknum og
hjúkrunarfólki með sérþekkingu.
Einnig vantar sýklalyf, vatns-
hreinsitöflur, sölt, næringarvökva,
sjúkrabíla og allan búnað fyrir
heilbrigðiskerfi eyjarinnar. - pg
ESB sendir út neyðarkall:
Haítí vantar
lækna, lyf og
búnað strax
WASHINGTON Alls telja 39 pró-
sent Bandaríkjamanna að hjóna-
bandið sé úrelt stofnun. Um 28
prósent voru sömu skoðunar
fyrir 30 árum.
Þriðja hvert barn í Bandaríkj-
unum býr hjá foreldri sem er
fráskilið eða hefur aldrei gengið
í hjónaband. Hlutfall barna sem
búa hjá öðru foreldri hefur fimm-
faldast í landinu síðustu 50 árin.
Þetta er meðal niðurstaðna nýrr-
ar könnunar Pew Research Cent-
er sem kynnt var í vikunni.
Þá hafa fordómar í garð sam-
kynhneigðra aldrei mælst minni
í Bandaríkjunum en nú. Um 60
prósent landsmanna telja fjöl-
skyldur samkynhneigðra eiga
að búa við sömu réttindi og fjöl-
skyldur gagnkynhneigðra. - pg
Ný könnun í Bandaríkjunum:
Um 39% telja
hjónabandið
úrelta stofnun
VIÐSKIPTI Hagnaður Eimskips nam
1,5 milljörðum króna á fyrstu
níu mánuðum
ársins, þar af
nam hann þrjú
hundruð millj-
ónum króna á
þriðja ársfjórð-
ungi.
Félagið velti
46 milljörðum
á fyrstu þrem-
ur ársfjórð-
ungum og var rekstrarhagnaður
já kvæður um fimm milljarða.
Í tilkynningu um uppgjör Eim-
skips segir að árangurinn sé
umfram væntingar. Jafnframt er
þar haft eftir Gylfa Sigfússyni
forstjóra að afkoma félagsins hafi
verið jákvæð í fjóra ársfjórð-
unga eða allt frá því fjárhagslegri
endur skipulagningu lauk í fyrra.
- jab
Eimskip skilar hagnaði í ár:
Bati í kjölfar
uppstokkunar
GYLFI SIGFÚSSON
STJÓRNMÁL Þingkonurnar Eygló
Harðardóttir, Margrét Tryggva-
dóttir og Lilja Mósesdóttir hafa
skorað á Marinó G. Njálsson að
endurskoða ákvörðun sína um að
segja sig úr stjórn Hagsmuna-
samtaka heimilanna. Marinó,
sem er einnig stjórnarmaður í
Hreyfingunni, sagði sig úr stjórn-
inni vegna fyrirhugaðrar umfjöll-
unar um skuldamál hans.
Þær segja Marinó hafa verið
beittan málsvara félagsmanna
í samtökunum sem og annarra
skuldsettra heimila. - þj
Áskorun frá þingkonum:
Vilja að Marinó
sitji áfram
Framkvæmdir á Miklubraut
Framkvæmdir munu standa yfir á
Miklubraut á morgun, þar sem unnið
verður við merkingar á strætórein
undir Skeiðarvogsbrúnni. Vinna mun
standa frá 11 til 15 eða 16.
SAMGÖNGUR
BRÚÐHJÓN Þeim hefur fjölgað í Banda-
ríkjunum sem hafa lítið álit á hjóna-
bandinu. NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES
Styður þú málshöfðun gegn
Bretum vegna hryðjuverkalaga?
Já 86,3%
Nei 13,7%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Telur þú að saklaust fólk hafi
verið dæmt í Geirfinnsmálinu?
Segðu þína skoður á visir.is
NÝJA-SJÁLAND Tuttugu og sjö
námuverkamanna er saknað
eftir að námugöng féllu saman á
suðureyju Nýja-Sjálands í gær.
Sprenging varð í göngunum, en
þegar blaðið fór í prentun voru
björgunaraðgerðir ekki hafnar
sökum hættu á annari sprengingu.
Aðstandendur námufyrirtæk-
isins vonast til að verkamenn-
irnir hafi komist á öruggan stað
í göngunum þar sem súrefni og
vistir eru að finna. - þj
Námuslys í Nýja-Sjálandi:
27 saknað eftir
sprengingu
KJÖRKASSINN