Fréttablaðið - 20.11.2010, Side 52
heimili&hönnun4
Blár, í alls kyns tónum, aðeins út í græn-
an og aðeins út í rauðan, er áberandi
í húsgögnum og hönnun þennan
vetur inn og jólaliturinn í ár
hefur víðast hvar einnig
verið kosinn blár, til dæmis
í dönsku húsbúnaðar-
blöðunum. Bláar gjafir
eru því tilvaldar í pakk-
ann í ár og jafnframt
eru landsmenn hér með
hvattir til að skreyta
heimilið hátt og lágt í
ísbláu þema fyrir jólin.
- jma
Ísbláir og jóla-
legir vetrartónar
● Alls kyns bláir litatónar á heimilinu geta saman myndað djúpa og tæra
litasinfóníu. Einnig heyrist því hvíslað að blár sé jólaliturinn í ár, enda jóla-
snjórinn sjálfur sveipaður bláum bjarma.
Margir Íslendingar þekkja hina
skemmtilegu og litskrúðugu glerfugla
sem Iittala framleiðir en Finninn Oiva
Toikka hefur hannað fuglana í yfir
fimmtíu ár. Á síðasta ári kynnti ítalski
framleiðandinn Magis skemmtilegt
leiktæki fyrir börn sem Toikka hannaði
og er einmitt í líki fugls, svokallaður
„ruggufugl“.
Veggfóðrin frá Ferm living eru einnig mjög
skemmtileg og mynstrin grípandi.
Blár spilar stórt hlutverk í haust-
og vetrarlínu Habitat. Þetta
skemmtilega ljós kallast Shiro, er
unnið úr handunnum pappír og
er undir sterkum áhrifum frá hefð-
bundnum japönskum lömpum.
Freezer kallast þessi barokk-
flúraði rammi frá Habitat, í
kóngabláum, sem tilheyrir
nýrri línu vetrarins.
Ferm living er danskt fyrirtæki sem framleiðir æðislegar danskar vörur, veggfóður, vegglímmiða,
textílvörur, sem hafa slegið í gegn hið ytra. Þær eru einnig að skapa sér nafn hér heima en vörurnar fást
meðal annars hjá Epal og í Sirku á Akureyri. Þessir vegglímmiðar til að mæla lengd barna eru æðislegir í
barnaherbergið og gaman að hafa dýrin til að miða við.
Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Íbúðalánasjóður í sam-
vinnu við fagaðila á ýmsum sviðum halda námskeið um allt
em snýr að viðhaldi, endurbótum á húsnæði og s auknum
lífs og vinnustað. gæðum á heimilum
Viðhald og verðmæti erður haldið á v Grand hótel Reykja-
vík miðvikudaginn 24. nóvember frá kl. 14:00 – 18 00.:
Verndum verðmætar eignir með reglubundnu viðhaldi.
Dagskrá og skráningarform er að finna á heimasíðu Ný-
köpuns armiðstöðvar Íslands www.nmi.is.
Aðgangur ókeypis.
Akureyr i | Egilsstöðum | Húsavík | Höfn | Ísafirði | Reykjavík | Sauðárkrók i | Vestmannaeyjum
Það er erfitt að vera góður í öllu! Fáum faglega aðstoð og ráðgjöf
Námskeið fyrir alla um viðhald og
verðmæti fasteigna
Einn
sniðugasti
hnífur síðari ára er frá
Normann Copenhagen og kall-
ast einfaldlega chop. Af hringnum
er hægt að fjarlægja helminginn af
gúmmíinu og kemur þá í ljós hnífsblað
en um hinn helming hringsins er haldið
og hnífnum því hreinlega rúllað fram
og til baka. Gárungar segja að sérstak-
lega þægilegt sé að nota hnífinn
til að komast í gegnum þykkar
suðusúkkulaðiplötur.
Binic er heiti á glænýjum
borðlampa sem Ionna
Vautrin hefur hannað fyrir
Foscarini. Hönnun ljóssins er
undir áhrifum frá vitaljósum
en Vautrin segir lampann vera
innblásinn af vitaljósum heimahaga
sinna, sem tilheyra strandlengju
Bretagne.