Fréttablaðið - 20.11.2010, Blaðsíða 100
68 20. nóvember 2010 LAUGARDAGUR
Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is
krakkar@frettabladid.is
Á Vísi er hægt að
horfa á myndskreyttan
upplestur úr þessum
sígildu ævintýrum.
Hlustaðu á Dísu ljósálf
og Alfinn álfakóng á Vísi
HRÆDDUR VIÐ GILITRUTT
OG VONDU NORNIRNAR
Björgvin Franz Gíslason er húsvörður á Ævintýraganginum í Stundinni okkar og
þekkir allar ævintýrapersónurnar. Er hann ekkert hræddur aleinn á Ævintýragang-
inum og hvað gerir hann þegar hann er ekki þar?
HITT OG ÞETTA
Hvar er Franzína núna?
„Franzína þurfti að skreppa til
Afríku til að hjálpa Khaliand-
er frænda sínum við stærðar
ævintýri þar, en bað mig um
að sjá um Ævintýraganginn
fyrir sig á meðan. Þannig að
ef Öskubusku vantar glerskó
eða það þarf að taka steina úr
maga úlfsins þá þarf ég að sjá
um það. Annars gætu ævintýr-
in bara stoppað.“
Fannst þér gaman að vera
frægur þegar þú varst lítill?
„Já og nei. Ég átti náttúr-
lega svo fræga foreldra
sem alltaf voru eitt-
hvað að leika og svo
var ég að syngja og
leika í leikhúsinu og
sjónvarpinu. Stund-
um voru einhverjir að
stríða manni út af því
en það var sem betur fer
sjaldan.“ Langaði þig allt-
af að stjórna Stundinni
okkar? „Ég fékk einu
sinni að stjórna
Stundinni okkar
þegar ég var lítill
og ég held að það
hafi alltaf blund-
að í mér undir
niðri. Mér fannst
Stundin okkar
spennandi og
skemmtileg og hún
átti alltaf einhvern
sérstakan stað í hjartanu
á mér.“
Ertu aldrei hræddur á
Ævintýraganginum? „Jú, það
er náttúrlega oft ógnvekjandi.
Eins og um daginn þegar ég fór
inn til dverganna sjö og norn-
in var alltaf að reyna að gefa
mér epli. Mér fannst líka mjög
ógnvekjandi að fara inn til Gili-
truttar. Ég vissi ekkert hvort
hún ætlaði að stela mér eða éta
mig eða hvað.“
Hvernig kemstu á milli ævin-
týra? „Með töfrafjarstýringar-
lyklinum sem ég beini að bleiku
dyrunum. Ég fer með þulu og
þá kemst ég inn í hvaða ævin-
týri sem er.“
Ertu búinn að finna ævintýr-
ið sem Rósalind og Ástrós
eiga heima í? „Nei, en ég er á
fullu að leita. Ég þarf náttúru-
lega að kynna mér öll ævintýri
heimsins til að athuga hvort
Rósalind, Ástrós eða skórnir
gætu átt heima þar. Ég er núna
að lesa nýtt ævintýri sem heitir
„Nornin og dularfulla gauks-
klukkan“ en ég þarf alltaf að
hætta þegar ég er nýbyrjað-
ur því það er svo mikið að
gera á Ævintýragangin-
um?“
Ertu skemmtilegur pabbi?
„Ég reyni það eins og ég get.
Ég reyni að vera ekki pirraður
og passa upp á að hafa nógan
tíma til að leika. Ef ég hef ekki
tíma til að vera með dætrum
mínum þá kveiki ég bara á
Stundinni okkar og þá er ég
alltaf hjá þeim. NEI – GRÍN!“
Hvað finnst þér skemmtileg-
ast að gera þegar þú ert ekki í
Ævintýralandi? „Þá finnst mér
mest gaman að vera með fjöl-
skyldunni og hitta vini mína.
Svo finnst mér rosagaman að
leika í Buddy Holly, þá fæ
ég líka smá líkamsrækt
því ég dansa svo mikið í
sýningunni.“
„Mér fannst söngleikur-
inn rosalega skemmti-
legur,“ segir Birgitta Ösp
Ólafsdóttir, nemandi í
Árbæjarskóla, um söng-
leikinn Buddy Holly sem
sýndur er í Austurbæ
um þessar mundir. „Mér fannst
Ingó langbestur, hann var í miklu
stuði á sviðinu og fékk alla í stuð
með sér,“ segir Birgitta en nefnir
einnig til sögunnar Björgvin
Franz Gíslason sem henni þótti
afar skemmtilegur. „Og Heiða
Ólafsdóttir var líka mjög fín.“
En er eitthvert lag í uppá-
haldi úr söngleiknum? „Ég veit
það ekki, mér fannst öll lögin
mjög flott, en kannski Peggy
Sue,“ svarar Birgitta, sem fannst
búningarnir í söngleiknum mjög
flottir. „Svo
var leik-
myndin líka
mjög flott,
en frænka
mín, hún
Móeiður, vann við að búa hana
til,“ upplýsir hún.
Var eitthvað atriði sem bar
af? „Já, þegar þeir sungu saman
allir strákarnir. Ég man ekki hvað
lagið heitir, en það var geðveikt
atriði, mikið dansað og allir í
stuði.“
Birgitta segir enda söngleiks-
ins sérlega eftirminnilegan.
„Allt í einu varð myrkur og allt
var hljótt. Þá spurði einhver
úti í sal: „Má klappa núna?“ og
þá sprungu allir úr hlátri, líka
leikararnir.“
Buddy Holly
HETJUR HAFSINS er þema
sögustundar
í kaffihúsi
Gerðu-
bergs á
morgun.
Dagskrá hefst
kl. 14-16. Ókeypis aðgangur.
SIRKUS SÓLEY verður með
sýningu í Tjarnarbíói kl. 14 á
morgun. Allir velkomnir.
LEIKSÝNINGIN DÍSA LJÓS-
ÁLFUR er sýnd í Austurbæ,
sunnudag, klukk-
an 14. Miðaverð
er 3.500 krónur.
SÝNINGIN
… OG SVO VERÐ
ÉG í Norræna
húsinu eftir Ísak
Óla er opin alla
helgina. Norræna
húsið er opið frá
12-17. Frítt inn.
Franzína þurfti að skreppa til
Afríku til að hjálpa
Khaliander frænda
sínum við stærðar
ævintýri þar, en bað
mig um að sjá um
Ævintýraganginn fyrir
sig á meðan.
Birgitta Ösp Ólafsdóttir LEIKHÚS
Niðurstaða: Frábær skemmtun og mikil stemning.
WWW.MU.IS/LEIKIR Húsdýragarðinn þekkja
langflest börn af eigin raun. Á þessari vefsíðu er að finna
leiki, litabók og vísindaveröld Húsdýragarðsins.
Hafið þið heyrt hvað stóri strompurinn sagði við litla stromp-
inn?
Þú ert allt of lítill til að reykja.
Ég hef borðað nautakjöt alla mína ævi og er þess vegna sterkur
eins og naut.
Skrítið, ég hef alltaf borðað fisk og kann ekki enn að synda!
Á veitingastaðnum.
Ég vildi gjarnan panta mér borð.
Nei, því miður, húsgögnin eru ekki til sölu
Hvað eiga fíll og gaur sameiginlegt?
Svar: Þeir byrja báðir á G því að fíllinn heitir Gísli.