Fréttablaðið - 20.11.2010, Síða 117
LAUGARDAGUR 20. nóvember 2010
Bíó ★★★★
Catfish
Leikstjóri: Nev Schulman og Henry Joost
Sýnd á Haustbíóhátíð Græna ljóssins í Bíó Paradís
Skylduáhorf fyrir netverja
Heimildarmyndin Catfish er með einhverjum óvæntasta söguþræði sem ég
hef orðið vitni að í kvikmyndahúsi. Og raunar er saga aðalpersónunnar Nev
Schulman lyginni líkust. Catfish ætti auðvitað að vera sýnd öllum þeim ung-
mennum sem vilja tengjast ókunnugu fólki á Facebook því á þessari ágætu
samskiptasíðu getur fólk þóst vera eitthvað annað en það er.
Það er eiginlega best að segja sem minnst um söguþráðinn heldur leyfa
myndinni að koma áhorfendum á óvart. Catfish fer reyndar rólega af stað
en hefur sig til flugs þegar aðalpersónan, New York-ljósmyndarinn Nev
Schulman, uppgötvar að ekki er allt með felldu hjá nýja vininum hans á
Facebook. Uppljóstrunin er einstök og á eftir að koma fólki í opna skjöldu.
Freyr Gígja Gunnarsson
Niðurstaða: Catfish er óvæntur gleðigjafi þar sem Facebook og blekking-
unni sem þar fær stundum að lifa eru gerð góð skil á mannlegan hátt.
FLOTT MYND Aðstandendur heimildarmyndarinnar Catfish mega vera ánægðir
með myndina, sem sýnd er í Bíó Paradís um þessar mundir. NORDICPHOTOS/GETTY
Hljómsveit Veru Sölva-
dóttur og Magnúsar Jóns-
sonar reynir fyrir sér í
Þýskalandi með útgáfu á
dansvænni plötu.
Plata með tvíeykinu BB & Blake
verður gefin út hjá þýska útgáfu-
fyrirtækinu Athletikk á næst-
unni. Hún inniheldur fjórar
ólíkar útgáfur af laginu Paris
je t’aime. Tónlistar mennirnir
Lars Sommer feld, Edgar 9000
og Kerosene sjá um að endur-
vinna lögin.
Vera Sölvadóttir og Magnús
Jónsson skipa sveitina sem hefur
legið í dvala undanfarna mánuði.
„Við erum að vakna aðeins til lífs-
ins aftur núna. Maggi er búinn að
vera fyrir norðan að leika í Rocky
Horror og við höfum þess vegna
lítið getað sinnt BB & Blake,“
útskýrir Vera. Hún segir plöt-
una sem Athletikk gefur út vera
mjög dansvæna og sverja sig í
ætt við klúbbatónlist. „Við erum
mjög spennt fyrir þessum samn-
ingi því þeir eru mjög tengdir inn
í þennan stóra dansheim sem er
í Þýskalandi og við hlökkum til
að vinna meira með þeim í fram-
tíðinni.“ Platan kemur út í Þýska-
landi í næstu viku og verður einn-
ig fáanleg á netinu.
Annars er það að frétta af
BB & Blake að þau hafa samið
nýtt lag sem þau hyggjast gera
myndband við í desember. „Við
erum að fara á dansnámskeið í
næstu viku þar sem við lærum
dívudans sem kallast waacking,“
segir Vera hlæjandi og bætir við:
„Þetta verður eitthvað forvitni-
legt, ég og Maggi að dansa dívu-
dansa.“ sara@frettabladid.is
Komin á samning
í Þýskalandi
VERA SÖLVADÓTTIR Tónlist tvíeykisins BB & Blake verður gefin út í Þýskalandi í næstu
viku. Þýska útgáfufyrirtækið Athletikk gefur plötuna út. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRI FRÓÐLEIKUR
Meiri Vísir.
Styrkir úr þróunarsjóði innflytjendamála 2010
Innflytjendaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki úr þróunarsjóði innflytjendamála. Tilgangur
sjóðsins er að efla rannsóknir og þróunarverkefni á sviði innflytjendamála með það að markmiði
að auðvelda gagnkvæma aðlögun innflytjenda og íslensks samfélags. Að þessu sinni verður
sérstök áhersla lögð á eftirfarandi viðfangsefni:
• Verkefni og rannsóknir sem vinna gegn fordómum og auka fjölmenningarlega færni.
• Verkefni og rannsóknir sem vinna að félagslegri virkni meðal innflytjenda.
• Verkefni og rannsóknir sem stuðla að bættri stöðu innflytjenda á vinnumarkaði.
Önnur verkefni koma einnig til álita.
Styrkir verða almennt veittir félögum, samtökum og opinberum aðilum. Grasrótar- og hagsmuna-
félög innflytjenda eru sérstaklega hvött til þess að sækja um í sjóðinn. Einstaklingum verða að
jafnaði einungis veittir styrkir til rannsókna. Til ráðstöfunar eru 12 milljónir króna. Styrkir geta
verið að hámarki 75% af heildarkostnaði verkefnis. Unnt er að sækja um á íslensku og ensku.
Umsóknarfrestur er til 20. desember 2010. Sótt skal um styrk á sérstöku umsóknareyðublaði sem er
aðgengilegt á heimasíðu félags- og tryggingamálaráðuneytis, (www.felagsmalaraduneyti.is). Þar er
einnig að finna stefnu ríkisstjórnarinnar í málefnum innflytjenda, framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar
í málefnum innflytjenda og reglur þróunarsjóðs innflytjendamála með nánari upplýsingum um skilyrði
styrkveitinga. Trúnaðar er gætt við meðferð umsókna.
Nánari upplýsingar fást í félags- og tryggingamálaráðuneyti í síma 545 8100 og með tölvupósti á
netfangið linda.ros.alfredsdottir@fel.stjr.is
WWW.N1.IS
SÍMI 440 1000 Meira í leiðinni
TILBOÐ Á
OFFICE ONE
FJÖLNOTAPAPPÍR
500 A4 BLÖÐ Á AÐEINS 490 KR.
N1verslanir: Kópavogi, Hafnarfirði, Akureyri, Akranesi, Ólafsvík, Egilsstöðum,
Vestmannaeyjum, Keflavík, Selfossi, Reyðarfirði, Ísafirði, Grindavík og Höfn.
N1 STÓRVERSLUN BÍLDSHÖFÐA 9
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki