Fréttablaðið - 26.11.2010, Blaðsíða 1
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sími: 512 5000
Föstudagur
skoðun 20
26. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR
1
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
Ú lfar Eysteinsson mat-reiðslumaður á Þremur frökkum bregst við hærra matarverði með nýrri matreiðslubók þar sem allar máltíðir miðast við fjóra og kosta undir þúsund krónum. Í bókinni, sem heitir Úlfar eldar, er að finna þrjátíu uppskriftir að hefðbundnum réttum en tilurð bókarinnar lýsir Úlfar á þennan veg:
„Það skiptir máli að bi
Matur á þúsund krónur
Úlfar segir mikilvægt að bera virðingu fyrir matnum og leggur til að fólk nýti afganga.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
800 g karfaflök með roðihveiti
salt
sítróna
smjörlíki
Flökin eru bein-hreinsuð en látin halda roði
sykurmola. Flökunum er síðan velt upp úr hveiti og þau djúpsteikt í 180 gráðu heitri olíu í 2-3 mínútur. Stráið salti og kreistið
STEIKT KARFAFLÖK
Í matreiðslubók Úlfars Eysteinssonar er að finna þrjátíu uppskriftir fyrir fjóra sem allar kosta undir 1000.
Ljósin verða tendruð á Óslóartrénu á Aust-
urvelli á sunnudag klukkan 16. Tæp sextíu
ár eru síðan Norðmenn færðu Íslendingum
í fyrsta sinn grenitré að gjöf til að skreyta Reykjavík. Tréð í ár var höggvið við hátíðlega
athöfn í Aurtjørn í Nordmarka að viðstöddum
sendiherra Íslands og borgarstjóra Óslóar.
Veitingahúsið Perlan - Sími 562 02Netfan
Verð 8.290 kr.Tilboð mánudaga-miðvikudaga 7.290 kr.
Jólahlaðborð
b d b
18. nóvem er - 30. esem erHið óviðjafnanlega jólahlaðborð Perlunnarer hafið. Það borgar sig að panta borðið þitt strax –enda eitt vinsælasta jólahlaðborð á landinu!
Skötu- og jólahlaðborð PerlunnarÞorláksmessa, í hádeginu
Nýárskvöldverður1. janúar 2010
Gefðu einstaka kvöldstund í jólagjöf!
Það borgar sig að panta skötuna snemma!
föstudagur
FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS
26. nóvember 2010
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Föstudagur
veðrið í dag
26. nóvember 2010
278. tölublað 10. árgangur
STJÓRNMÁL „Í þessu og stjórn-
kerfinu öllu erum við ennþá föst
í gömlum vinnubrögðum.“
Þetta segir Þórunn Sveinbjarnar-
dóttir, formaður þingflokks Sam-
fylkingarinnar, um úthlutanir á
safnliðum fjárlaga og kjördæma-
pot. Mat þingmanna á umsóknum
um fjárveitingar kunni að verða
handahófskennt og menn sjáist
ekki alltaf fyrir. Boðar hún ný og
betri vinnubrögð.
Í viðtali í blaðinu í dag segir
Þórunn það ekki létt verk að vera
í stjórnarsamstarfi með VG. Inn-
anbúðardeilur og valdabarátta
dragi úr krafti hreyfingarinnar
sem stjórnarflokks.
Hún segir mikilvægt að greiða
fyrir erlendri fjárfestingu í
atvinnulífinu. Tryggja þurfi sam-
eign þjóðarinnar á auðlindum í
stjórnarskránni en ekki skipti
máli hvort fyrirtæki í orku eða
sjávarútvegi séu í eigu Íslend-
inga eða útlendinga.
- bþs / sjá síðu 16
Formaður þingflokks Samfylkingarinnar segir kjördæmapot enn lifa góðu lífi:
Alþingi fast í gömlum vinnubrögðum
Jólagjafa-
handbókin er
komin út.
Skoða má gjafahandbókina
á smaralind.is
Í takt við breytta tíma...
Frábær opnunartilboð!
Hanna í Hörpu
Tilkynnt um vinningshafa í
hönnunarsamkeppni.
tímamót 28
Hjólað í kuldanum
Fjallahjólaklúbburinn
fer í ferð að Álftavatni.
allt 3
Þykir flottust
Alexa Chung valin best
klædda kona ársins.
fólk 40
ORKUVEITAN Innri endurskoðandi Orkuveitu
Reykjavíkur (OR) og arkitekt Hellisheiðar-
virkjunar héldu báðir brúðkaupsveislur í mót-
tökusal Hellisheiðarvirkjunar án endurgjalds.
Veislurnar voru haldnar 2007 og 2008.
Innri endurskoðandi OR fékk reikning frá
fyrirtækinu upp á 181.500 krónur fyrir veit-
ingar í veislunni, en samkvæmt upplýsingum
frá OR var sá reikningur ekki sundurliðaður.
Fjöldi gesta var 31 og boðið var upp á
fjögurra rétta matseðil, þar á meðal humar og
hreindýra steik, ásamt víni. Gerir það um 5.800
krónur á hvern gest. Eiríkur Hjálmarsson,
upplýsingafulltrúi OR, vill þó benda á að þetta
svari til um 9.000 króna á mann í dag.
„Ekki er að sjá að um einhverja „sérmeð-
ferð“ hafi verið að ræða. Samþykki forstjóra lá
fyrir og allur útlagður kostnaður fyrirtækisins
var innheimtur,“ segir Eiríkur.
Haraldur Flosi Tryggvason, stjórnar-
formaður OR, segir að komi í ljós að um óeðli-
lega fyrirgreiðslu hafi verið að ræða séu
atvikin mjög óheppileg.
„Við erum búin að taka mjög skýrt á öllum
svona málum og þetta á að vera orðið eðlilegt.
En það tekur smá tíma að vinda ofan af þessu,“
segir Haraldur Flosi. „Það er stefnan að svona
lagað heyri sögunni til og verið er að reyna að
finna réttan takt í þessum málum.“
Hinn 12. janúar árið 2008 hélt arkitekt Hell-
isheiðarvirkjunar brúðkaup sitt í salnum án
endurgjalds og gaf þáverandi forstjóri, Hjör-
leifur Kvaran, leyfi fyrir veislunni. Hjörleifur
segist halda að arkitektinn hafi greitt allan
kostnað. „Ég get staðfest að ég heimilaði
einum aðila að halda brúðkaupsveislu. En það
gekk svolítið mikið á til að heimila það. Ég var
almennt á móti því en ég gaf mig nú,“ segir
Hjörleifur. Spurður hvort OR hafi komið til
móts við arkitektinn varðandi kostnað, segist
Hjörleifur ekki halda að svo hafi verið.
- sv
Stjórnarformaður gagnrýnir
veislur í Hellisheiðarvirkjun
Orkuveita Reykjavíkur lánaði móttökusal Hellisheiðarvirkjunar til veisluhalda starfsmanna 2007 og 2008.
Innri endurskoðandi og arkitekt hússins fengu salinn ókeypis. Á að heyra sögunni til, segir stjórnarformaður.
STÖKU ÉL NYRÐRA Í dag verða
víðast norðaustan 3-8 m/s, en 8-15
SA-til. Bjart S- og V-lands en stöku
él N- og A-til. Frost víðast 0-8 stig.
VEÐUR 4
-2
-2
-4
-3
-1
Jón Ólafsson, eigandi Icelandic Water Holdings,
hélt móttökuveislu í Hellisheiðarvirkjun í tilefni
af opnun vatnsverksmiðjunnar í Þorlákshöfn
í september árið 2008. Orkuveita Reykjavíkur
fékk formlega kvörtun frá samtökum veitinga-
húsaeigenda í kjölfarið og var þá ákveðið að
taka alfarið fyrir einkaveislur í húsnæðinu.
„Þetta var síðasta veislan fyrir hrun,“ segir Jón.
„En við borguðum stórfé fyrir þetta. Algjörlega á
fullum kjörum.“
Síðasta veislan
STJÓRNMÁL Útgjöld til heilbrigðis-
mála verða aukin um talsvert á
annan milljarð króna frá því sem
gert var ráð fyrir í fjárlagafrum-
varpi næsta árs.
Með þessu eru stjórnvöld að
bregðast við hörðum viðbrögðum
og mótmælum vegna niðurskurð-
ar á framlögum til málaflokksins.
Var samdráttur á heilbrigðis-
stofnunum á landsbyggðinni áætl-
aður rúmir þrír milljarðar.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins aukast framlög til ann-
arra málaflokka einnig. Til að
mynda verður dregið úr niður-
skurði í menntamálum um ríflega
hálfan milljarð umfram það sem
ráðgert var í frumvarpinu.
Ekki stendur til að skera niður
önnur framlög til að mæta aukn-
um fjárveitingum. Svigrúm er
sagt hafa verið í ríkisfjármál-
unum til að mæta mögulegum
breytingum. - bþs
Heilbrigðis- og menntamál:
Draga úr niður-
skurðinum
Akureyri er ósigrandi
Akureyri er enn með fullt
hús stiga í N1-deild karla
eftir áttunda sigurinn í röð.
sport 46
BIÐRÖÐ VIÐ KJÖRSTAÐINN Yfir 2.000 manns kusu til stjórnlagaþings utan kjörfundar í
Laugardalshöll í gær. Fjöldi fólks beið enn eftir því að geta greitt atkvæði á ellefta tímanum í gærkvöldi. Alls höfðu
8.439 greitt atkvæði utan kjörfundar klukkan 22, samkvæmt upplýsingum frá fulltrúa sýslumannsins í Reykjavík.
Hægt verður að greiða atkvæði utan kjörfundar í dag milli klukkan 10 og 12. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON