Fréttablaðið - 26.11.2010, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 26.11.2010, Blaðsíða 21
FÖSTUDAGUR 26. nóvember 2010 Ísland er aðili að alþjóðasátt-málum er varða heilbrigði og lögbundinn rétt til heilbrigðis- þjónustu. Að auki er þessi rétt- ur tryggður í 76. gr. stjórnar- skrárinnar en þar segir: „Öllum, sem þess þurfa, skal tryggður í lögum réttur til aðstoðar vegna sjúkleika.“ Þann 21. okt. sl. hélt dr. Brigit Toebes, lagaprófess- or og virtur fræðimaður á sviði heilbrigðisréttar og alþjóðlegrar mannréttindaverndar, fyrirlestur í HR. Taldi hún að fyrirhugaður niðurskurður í heilbrigðiskerfinu yrði að taka mið af mannrétt- indum. Á dögunum var dreift á Alþingi svari frá heilbrigðisráð- herra við fyrirspurn Gunnars Braga Sveinssonar, þingmanns Framsóknarflokksins, um fækk- un starfa á heilbrigðisstofnun- um í niðurskurði fjárlaga 2011. Í svarinu kemur fram í töflu 1 að áætluð fækkun starfsmanna á landinu öllu verði 635 í 445 stöðugildum. Hlutfall kvenna af fjölda starfsmanna á heilbrigðis- stofnunum er að meðaltali 82%. Því er augljóst að þessi tiltekna aðgerð ríkisstjórnarinnar í fjár- lagagerðinni er bein árás á konur og atvinnutækifæri þeirra á land- inu öllu. Hver hefði trúað því á heilaga Jóhönnu. Alvarlegi hluti niðurskurð- arins sem snýr að konum er þó þessi. Samkvæmt fjárlagafrum- varpinu á að fækka um 96 starfs- menn sem nemur 69 starfsmönn- um á St. Jósefsspítala. Það er bein árás að konum, því spítalinn hefur sérhæft sig í grindarbotns- aðgerðum kvenna. Eru þær marg- víslegar og misalvarlegar – allt frá þvagleka, hægðaleka og upp í flóknar tæknilegar aðgerðir sem gera þarf á konum eftir erfiðar fæðingar. Fjöldi þessara aðgerða á þessari sjúkrastofnun einni er um 1.200 aðgerðir á ári. Biðtími kvenna í aðgerðirnar er á bilinu 9–12 mánuðir eftir alvarleika. Ekki er fyrirséð að hægt sé að koma þessum aðgerðum fyrir á öðrum heilbrigðisstofnunum, því er ekki hægt að lesa annað út en að ætlunin sé að fresta þessum aðgerðunum um langa hríð. Þetta verður eftirskrift norrænu vel- ferðarríkisstjórnarinnar. Í 12. gr. kvennasáttmála Sameinuðu þjóðanna kemur fram að aðild- arríki samningsins skulu gera allar viðeigandi ráðstafanir til þess að afnema mismunun gagn- vart konum á sviði heilsugæslu til þess að tryggja á grundvelli jafn- réttis karla og kvenna aðgang að heilsugæsluþjónustu, og sérstak- lega skulu aðildarríkin tryggja konum viðeigandi þjónustu í sam- bandi við þungun, barnsburð og tímabilið eftir fæðingu með því að veita ókeypis þjónustu þegar það er nauðsynlegt. Konur eru vanar að bera harm sinn í hljóði og grindarbotns- vandamál eru nú svo sem ekki mál málanna í almennri umræðu. Nú verðum við þingmenn að standa saman um endurskoðun á heilbrigðismálum kvenna í fjár- lagagerðinni. Sú aðför sem ríkis- stjórnin fer fram með í fjárlaga- frumvarpinu að heilsu og atvinnu kvenna er okkur Íslendingum ekki samboðin. Ráðist að konum Heilbrigðismál Vigdís Hauksdóttir lögfræðingur og alþingismaður Það er auðvelt að kenna AGS um stöðu íslenskra heim- ila og fyrirtækja nú um stund- ir. Slíkur málflutningur er hins vegar ósanngjarn, enda þurf- um við ekki sjóðinn til að segja okkur að jafnvægi milli tekna og gjalda ríkissjóðs er forsenda endurreisnar íslenska hag- kerfisins. Samvinna við AGS er raunar forsenda viðspyrnu, enda myndum við búa við enn veikari krónu og ekkert aðgengi að erlendu lánsfjármagni fyrir ríkissjóð án erlends stuðnings. Þannig væri staðan mun verri ef ekki nyti AGS við. Það er nóg að spyrja Íra sem leita nú á náðir sjóðsins. Að mörgu leyti gengur endur- reisn hagkerfisins vel. Vextir er í sögulegu lágmarki, verðbólga lítil, hreinar skuldir þjóðarbús- ins á svipuðum stað og 2003 og atvinnuleysi minna en spáð var. Hagvöxtur mun hefjast á næsta ári. En engu að síður gengur hægar en við vonuðumst eftir, eins og nýjar hagvaxtartöl- ur bera með sér. Meginástæða þess er skortur á fjárfestingu atvinnulífsins og fyrir því eru tvær ástæður helstar. Annars vegar gengur hægt að endurreisa fyrirtækin vegna óvissu um uppgjör gengislána en „Hraðbraut“ – samvinnuverk- efni banka og stjórnvalda í vetur – mun vonandi breyta stöðu lít- illa og meðalstórra fyrirtækja svo þúsundum skiptir. Á hinn bóginn hefur okkur ekki tekist að laða til landsins erlenda fjár- festingu. Þar vegur þungt andstaða sumra stjórnmálamanna við einstaka fjárfestingarverkefni og andstaða við uppgjör vegna Icesave. Lausn Icesave opnar á möguleika til erlendrar láns- fjármögnunar og deilan verður ekki leyst öðruvísi en með samningum. Stjórnmálamenn eiga ekki að standa í vegi fyrir endurreisn atvinnulífs í skiptum fyrir vin- sældir til skemmri tíma. Afleið- ingar ósamlyndis innan sumra stjórnmálaflokka eru þannig betur og betur að koma í ljós, enda beint samband á milli óleysts Icesave, skorts á erlendri fjárfestingu og hagvexti næsta árs. AGS og hagvöxtur Efnahagsmál Magnús Orri Schram alþingismaður Stjórnmálamenn eiga ekki að standa í vegi fyrir endurreisn atvinnulífs í skiptum fyrir vinsældir til skemmri tíma. Afleiðingar ósamlyndis innan sumra stjórnmálaflokka eru þannig betur og betur að koma í ljós. Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu á að fækka um 96 starfsmenn sem nemur 69 starfsmönn- um á St. Jósepsspítala. 1919 R E STAU R A N T AND LOUNGE FRÁBÆR VÍN Í ÚRVALI Radisson Blu 1919 Hótel Pósthússtræti 2 102 Reykjavík Sími: 599 1000 Í hjarta miðborgarinnar býður veitingastaðurinn 1919 upp á girnilega þriggja og fimm rétta jólamatseðla og jólahlaðborð fyrir hópa. Flauelsmjúkir forréttir, safaríkar jólasteikur og gómsætir eftirréttir koma þér í sannkallað jólaskap. Pantaðu borð núna og njóttu þess að taka forskot á jólasæluna. JÓLIN KOMA TIL ÞÍN STINGUM SAM AN NEFJUM! www.rauttnef.is Söfnunar- og skem mtiþáttur 3. desember á Stöð 2 Örn Bárður Jónsson Snúum stafrófinu við og setjum Örn Bárð í 1. sæti í kosningunni til Stjórnlagaþings. Stjórnarskráin er gamalt tré. Rífum það hvorki upp með rótum né höggvum niður. Sníðum heldur greinarnar af sem ekki bera ávöxt og græðum á stofninn nýjar og ferskar. ornbardur.annall.is dv.is • svipan.is8 3 5 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.