Fréttablaðið - 26.11.2010, Page 27
26. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR1
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
Ú
lfar Eysteinsson mat-
reiðslumaður á Þremur
frökkum bregst við
hærra matarverði með
nýrri matreiðslubók þar sem
allar máltíðir miðast við fjóra
og kosta undir þúsund krónum. Í
bókinni, sem heitir Úlfar eldar,
er að finna þrjátíu uppskriftir að
hefðbundnum réttum en tilurð
bókarinnar lýsir Úlfar á þennan
veg:
„Það skiptir máli að bera virð-
ingu fyrir matnum, en það var
eitthvað sem gleymdist árið 2007.
Ég hafði verið að sýna starfsfólk-
inu og nemunum á Þremur frökk-
um hvað væri hægt að gera fyrir
lítinn pening en þegar Lárus
Karl Ingason ljósmyndari fór að
ræða möguleikann á að gefa út
bók um hagkvæma en góða elda-
mennsku fór ég að kafa aðeins
dýpra.“ Saman ákváðu Úlfar og
Lárus Karl að gefa út matreiðslu-
bók sem auðveldar fólki að gefa
fjölskyldunni góðan mat fyrir
lítinn pening.
„Flestar uppskriftirnar eru
grunnuppskriftir en fólk þarf
ekki að vera hrætt við að skipta
út hráefnum eftir hentugleika
auk þess sem ég mæli sérstaklega
með því að notaðir séu afgangar
þegar þeir eru fyrir hendi. Á
árum áður var matur af skornum
skammti og fólk nýtti matinn
betur. Með því að nýta afganga
er hægt að spara heilmikið og
eru nokkrar slíkar hugmyndir í
bókinni.“ vera@gmail.com
Matur á þúsund krónur
Úlfar segir mikilvægt að bera virðingu fyrir matnum og leggur til að fólk nýti afganga. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
800 g karfaflök með roði
hveiti
salt
sítróna
smjörlíki
Flökin eru bein-
hreinsuð en látin
halda roðinu. Skerið í
fiskinn langsum og þversum
að roðinu þannig að fiskurinn í
roðinu myndi teninga á stærð við
sykurmola. Flökunum
er síðan velt upp
úr hveiti og þau
djúpsteikt í 180
gráðu heitri olíu í
2-3 mínútur. Stráið
salti og kreistið
sítrónu yfir. Borið
fram með hrísgrjónum
og súrsætri sósu, sojasósu
eða majones-wasabi sósu. Tilvalið
að snæða þennan rétt með prjónum.
STEIKT KARFAFLÖK
Í matreiðslubók Úlfars Eysteinssonar er að finna þrjátíu uppskriftir fyrir fjóra sem allar kosta undir 1000.
Ljósin verða tendruð á Óslóartrénu á Aust-
urvelli á sunnudag klukkan 16. Tæp sextíu
ár eru síðan Norðmenn færðu Íslendingum
í fyrsta sinn grenitré að gjöf til að skreyta
Reykjavík. Tréð í ár var höggvið við hátíðlega
athöfn í Aurtjørn í Nordmarka að viðstöddum
sendiherra Íslands og borgarstjóra Óslóar.
Veitingahúsið Perlan - Sími 562 0200 - Fax 562 0207
Netfang perlan@perlan.is - Heimasíða www.perlan.is
Verð 8.290 kr.
Tilboð mánudaga-miðvikudaga
7.290 kr.
Jólahlaðborð
b d b18. nóvem er - 30. esem er
Hið óviðjafnanlega jólahlaðborð Perlunnar
er hafið. Það borgar sig að panta borðið þitt strax –
enda eitt vinsælasta jólahlaðborð á landinu!
Skötu- og jólahlaðborð Perlunnar
Þorláksmessa, í hádeginu
Nýárskvöldverður
1. janúar 2010
Gefðu einstaka kvöldstund í jólagjöf!
Það borgar sig að panta
skötuna
snemma!
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRA SKÚBB
Meiri Vísir.