Fréttablaðið - 26.11.2010, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 26.11.2010, Blaðsíða 28
TORG–skákmót Fjölnis verður haldið í verslunarmiðstöðinni Torginu, Hverafold 5 í Grafarvogi á morgun. Mótið hefst klukkan 11 og því lýkur með glæsilegri verðlaunaafhendingu og happ- drætti klukkan 13. Þetta er í fimmta sinn sem mótið er haldið og að sögn Helga Árna- sonar, formanns skákdeildar Fjöln- is, hefur fjöldi þátttakenda aukist ár frá ári. „Við hreiðrum um okkur á göngum verslunarmiðstöðvar- innar,“ segir Helgi. „Þátttakendur eru krakkar á grunnskólaaldri og við eigum von á fimmtíu til sextíu þátttakendum, að minnsta kosti. Í fyrra voru keppendur 64.“ Helgi er jafnframt skólastjóri Rimaskóla, en skákmennt stendur þar með miklum blóma. „Rima- skóli er í fararbroddi íslenskra grunnskóla í skákinni,“ segir hann. „Við eigum bæði núverandi Norð- urlandameistara og Íslandsmeist- ara og það eru um 30 krakkar sem mæta hér á skákæfingar á hverj- um laugardegi.“ Mótið á morgun er hraðskákmót, tefldar verða sex umferðir og umhugsunartíminn er sjö mínútur. Skráning fer fram á staðnum. Skákdeild Fjölnis heldur mótið en fyrirtækin í Hverafold gefa vinninga og veitingar. NETTÓ Hverafold býður öllum þátttak- endum upp á ókeypis veitingar auk þess sem verslunin gefur vinninga og þrjá eignarbikara. Önnur fyrir- tæki sem gefa vinninga eru Pizz- an, Foldaskálinn, Arion banki, Runni–Stúdíóblóm, Hárgreiðslu- stofan Höfuðlausnir, Bókabúðin Grafarvogi og Smíðabær. Teflt á torginu Hin stórefnilega átta ára gamla skák- kona Nansý Davíðsdóttir úr Fjölni verður meðal þátttakenda og kemur án efa til með að blanda sér í hóp verðlaunahafa. LJÓSIÐ VERÐUR MEÐ HANDVERKS- SÖLU Í NEÐRI SAL ÁSKIRKJU Á SUNNUDAG MILLI KLUKKAN 12 OG 17. Leirlistaverk, gler, ullarvörur, þæfðar og prjónaðar; dúkkuföt og útskurður. Allt þetta og margt fleira verður til sölu á handverks- markaði í Áskirkju á sunnudag- inn milli klukkan 12 og 17. Kaffi og vöfflur verða líka seldar á góðu verði. Allur ágóði rennur til Ljóssins, endurhæfingar- og stuðn- ingsmiðstöðvar fyrir krabbameins- greinda og aðstandendur þeirra. „Hér eru um 30 manns að vinna hvern dag að handverkinu og aðstandendur hafa líka verið duglegir að gefa okkur hluti,“ segir Erna Magnúsdóttir forstöðukona og fullyrðir að aldrei hafi úrvalið verið flottara. „Hús- næðið okkar er orðið of lítið fyrir svona viðburð og því leituð- um við á náðir kirkjunnar sem aðeins er í fimm mínútna akst- ursfjarlægð frá Ljósinu og þar eru næg bílastæði.“ - gun Handverks- sala Ljóssins „Ég hef verið að drekka engiferdrykkin aada frá My Secret í 7 mánuði. Glas af drykknum kvölds og morgna. Ég er mun orkumeiri og hef losnað við ýmis stoðkerfis vandamál. Ég er hættur að nota efni eins og liðamín og ýmsir gigtarverkir eru horfnir. Þá tilheyra meltingar vandamál sögunni til. Þau voru algeng áður fyrr. Ég get mælt með þessum öndvegis drykk.” Jón Gröndal Kennari 50% magn engifers, kælivara Engiferdrykkurinn aada frá My Secret M y S e c r e t D i g r a n e s v e g i 1 0 , 2 0 0 K ó p a v o g i S . 5 2 7 2 7 7 7 w w w. m y s e c r e t . i s Á tilboði fram að jólum í næstu verslun Grýlugleði verður haldin á Skriðuklaustri sunnudaginn 27. nóvember klukkan 14. Von er á sagnaálfum og gaulálfum sem munu segja frá og syngja um Grýlu og hyski henn- ar sem hefur búið um aldir í Bandsöxlinni ofan við Víðivelli í Fljótsdal. Ef að líkum lætur munu hin hræðilegu hjón renna á lyktina og reyna að finna sér eitthvað í svanginn. Á Torg-skákmótinu 2009 var sett þátt- tökumet og fjölmargir gestir fylgdust með skemmtilegu móti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.