Fréttablaðið - 26.11.2010, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 26.11.2010, Blaðsíða 54
34 26. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR Myndlistarmennirnir Snorri Ásmundsson og Rachel McMahon opna saman sýninguna „Blow me (potti) – Bloody beauty, ókei?“ í grasrótargalleríinu Crymo á laugar dag. Í tilkynningu frá þeim Rakel og Snorra segir að sýningin sé hugsuð fyrir „þroskaða einstakl- inga sem hafa góðan smekk fyrir góðri list“. „Það er afar huglægt hvað felst í því,“ segir Rakel og hlær. Sýningin á rætur að rekja til Feneyjatvíær- ingsins 2009. „Þar hófust ákveðnar samræður og díalógur milli okkar Snorra. Afrakstur þeirra verður afhúpaður á sýningunni. Ég sýni teikningar og Snorri málverk sem við unnum sjálfstætt en vídeóverk sem sýnir hvað okkar Snorra fór á milli myndar ákveðna tengingu þar á milli. Við höfum bæði unnið með gjörningalist og fundum þar sam- eiginlegan flöt sem varð eiginlega kveikjan að þessu samstarfi.“ Sýningin verður opnuð í Crymo við Laugaveg á morgun klukkan 17 og stendur til 8. desember. - bs 34 menning@frettabladid.is Fleira hrundi en krónan við fall bankanna fyrir tveimur árum, til dæmis sala á ljóðabókum. Að sögn Silju Aðalsteinsdóttur virð- ast þær hins vegar vera að sækja í sig veðrið á ný. Hvað veldur? Árið 2008, hrunárið mikla, komu út þrettán ljóðabækur hjá For- laginu og gengu flestar „afspyrnu illa“ að sögn Silju Aðalsteinsdóttur, útgáfustjóra hjá Máli og menningu, dótturútgáfu Forlagsins. „Þetta setti skrekk í menn og í fyrra komu út aðeins fjórar ljóða- bækur, sem gengu ekki heldur. En þetta þótti skammarlegt og í ár eru ljóðabækurnar níu. Og nú bregð- ur svo við að ljóðabækur vekja heilmikla athygli.“ Að sögn Silju hafa fjórar af þessum níu þegar selst upp í „eðlilegu upplagi“ sem er um 500 eintök: Síðdegi eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur, Tími hnyttninnar er liðinn eftir Berg Ebba Benediktsson, Ljóð af ættar- móti eftir Anton Helga Jónsson og Blóðhófnir Gerðar Kristnýjar. Silja segir þetta merkilega þróun. „Ljóðabækur eru með í ár,“ segir hún. „Það er vitnað í þær og fjall- að um þær í dægurmálaútvarpinu; með öðrum orðum er talað um ljóða- bækur eins og alvörubækur, en því er ekki alltaf að heilsa.“ Hún á þó erfitt með að meta hver skýringin á þessu sé. „Ekki hef ég eitt svar við því. Getur skýringin verið svo einföld að ljóðabækurnar séu betri í ár en undanfarið? Veit- ir fjarvera stóru skáldanna í ár, Einars Más, Gyrðis, Hannesar og Þorsteins, hinum bókunum meira andrými? Er máttur orðsporsins að aukast? Eða eru þetta gagnger umskipti í þjóðarsálinni?“ Forlagið er stærsta útgáfu- fyrirtækið á Íslandi og hefur gefið út langflestar ljóðabækur undan- farin ár. Það finnur því meira fyrir sveiflum en minni útgáfur. Bjart- ur hefur til dæmis að jafnaði gefið út þrjár til fjórar ljóðabækur á ári og einatt getað treyst á að minnsta kosti ein þeirra seljist vel. Guðrún Vilmundardóttir hjá Bjarti tekur hins vegar undir með Silju um að ljóðabækur í ár fái öðruvísi athygli en oft áður. „Leyndarmál annarra eftir Þór- dísi Gísladóttur hefur til dæmis fengið afar mikla og góða umfjöll- un, jákvæða dóma og spurst vel út og fyrir vikið selst vel,“ segir hún. „Það skiptir eflaust líka máli að við höfum getað haft bækurnar á góðu verði, þær kosta yfirleitt minna en skáldsaga í kiljubroti þannig að fólk lætur það kannski frekar eftir sér að kaupa ljóðabók.“ Auk bókar Þórdís- ar koma út hjá Bjarti ljóðabækurnar Þrjár hendur eftir Óskar Árna Ósk- arsson og Enginn heldur utanum ljósið eftir Véstein Lúðvíksson. Aðalsteinn Svanur Sigfússon hjá Uppheimum, útgáfu Gyrðis Elías- sonar, segir að jafnaði erfitt að selja ljóðabækur í stórum upplögum en ekki þurfi mikla umfjöllun um þær til að gera gæfumuninn. „Bókin Vetrarbraut eftir Kjell Espmark í þýðingu Njarðar P. Njarðvík náði til dæmis ágætu flugi. Koma hans til landsins vakti nokkra athygli í fjöl- miðlum auk þess sem bókin hefur fengið frábæra dóma. Það má vera að umfjöllun um ljóðabækur sé að aukast og þær að ná meira máli. Ég á satt best að segja dálítið erfitt með að átta mig á því svona að óat- huguðu máli, en ég vona svo sann- arlega að það sé raunin.“ Hjá Upp- heimum koma líka út ljóðabækurnar Moldarauki eftir Bjarna Gunnars- son og Blindhæðir eftir Ara Trausta Guðmundsson. Silja og Guðrún eru sammála um að sú hugmynd hafi ef til vill loðað við ljóðin í gegnum árin að það þurfi að setja sig í sérstakar stellingar til að lesa þau. Það kunni hins vegar að vera að breytast. „Það er vonandi að renna upp fyrir sífellt fleirum,“ segir Silja, „að galdurinn við að lesa ljóðabók er sá sami og að lesa skáldsögu; bara opna, lesa og njóta.“ bergsteinn@frettabladid.is Umskipti í ljóðasálinni? LJÓÐ LESA LAND „Ljóðabækur eru með í ár,“ segir Silja Aðalsteinsdóttir. „Það er vitnað í þær og fjallað um þær í dægurmálaútvarpinu; með öðrum orðum er talað um ljóðabækur eins og alvörubækur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Fyrir þroskað fólk með góðan smekk Sinfóníuhljómsveit unga fólksins heldur tónleika í Langholtskirkju á morgun. Á efnisskránni er einn vinsælasti píanókonsert allra tíma eftir Edvard Grieg og „stóra“ sin- fónía Schuberts í C-dúr nr. 8 – Die Große. Stjórnandi er Gunnsteinn Ólafs- son en einleikari er Birna Hall- grímsdóttir píanóleikari. Hún stundaði nám í píanóleik við LHÍ, við Royal College of Music í Lond- on og hjá Håkon Austbo í Stavang- er í Noregi. Hún hefur tekið þátt í mörgum masterklössum erlend- is, alþjóðlegum píanókeppnum og tónlistarhátíðum auk þess að hljóta margvíslegar viðurkenn- ingar. Sinfóníuhljómsveit unga fólks- ins var stofnuð árið 2004. Hún er skipuð 45 nemendum úr tónlist- arskólum af höfuðborgarsvæðinu og við tónlistarháskóla erlendis á aldrinum 13-25 ára. Einleikar- ar með hljómsveitinni eru jafn- an nemendur að ljúka framhalds- námi erlendis eða eru nýkomnir heim frá námi. Tónleikarnir hefjast klukkan 17. Sinfóníuhljómsveit ungra í Langholti RAKEL MCMAHON Þau Snorri unnu teikningar og málverk hvort í sínu lagi en vídeó- verk myndar ákveðin tengsl á milli. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA TÓNLEIKAR Einleikari verður Birna Hall- grímsdóttir píanóleikari. UPPLESTRAR Á GLJÚFRASTEINI Aðventuupplestrar Gljúfrasteins hefjast á sunnudag klukkan 16. Þá lesa Ingibjörg Hjartardóttir, Þórunn Erlu-Valdimarsdóttir, Sigurbjörg Þrastardóttir og Steinunn Jóhannesdóttir úr verkum sínum. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.