Fréttablaðið - 26.11.2010, Blaðsíða 63

Fréttablaðið - 26.11.2010, Blaðsíða 63
FÖSTUDAGUR 26. nóvember 2010 43 NÝTT PAR Kim Kardashian og Gabriel Aubry skemmtu sér saman á körfubolta- leik. NORDICPHOTOS/GETTY Raunveruleikastjarnan Kim Kar- dashian og fyrrverandi eigin- maður leikkonunnar Halle Berry, Gabriel Aubry, skelltu sér saman á körfuboltaleik með L.A. Lakers í vikunni. Samkvæmt tímaritinu UsMagazine.com hefur parið verið að stinga saman nefjum um nokkurt skeið. Að sögn heimildarmanns kynntust Kardashian og Aubry í gegnum sameiginlegan vin. „Þau hafa verið að hittast í nokkrar vikur núna og ákváðu að fara í fyrsta sinn út saman opinberlega á körfuboltaleikinn,“ var haft eftir vini Kardashian. Aubry og Berry skildu í apríl á þessu ári en dvöldu saman í París í sumar þar sem hann pass- aði dóttur þeirra á meðan Berry var við tökur á nýrri kvikmynd. Kardashian hefur verið á lausu frá því hún hætti með kærasta sínum, íþróttamanninum Reggie Bush, í mars. Skemmtu sér á Lakers-leik Hjónin David Arquette og Cour- teney Cox eru sem kunnugt er skilin að borði og sæng. Síðan fréttirnar spurðust út hefur oft sést til Arquette þar sem hann er vel við skál auk þess sem hann hefur viðurkennt að hafa sæng- að hjá öðrum konum skömmu eftir skilnaðinn. Þrátt fyrir þetta segist leikarinn elska konu sína og að þau séu að vinna í sínum málum. „Ég elska eiginkonu mína og hún elskar mig. Ég er skemmtanaglaður og góðhjart- aður einstaklingur. Ég hef alltaf verið svolítið villtur og viður- nefni mitt var „Dabbi stuð“. Mér finnst gaman að fíflast og kynnast nýju fólki,“ var haft eftir hinum skemmtanaglaða David Arquette. Vill bara skemmta sér STUÐBOLTI David Arquette segist hafa gaman af því að skemmta sér. NORDICPHOT- OS/GETTY Sveitasöngkonan Tayl- or Swift á sitt eigið hús þar sem hún býr ein. Hin tvítuga Swift seg- ist njóta þess að búa ein og geta ráðið sér sjálf. „Þegar maður býr aleinn getur maður gert alls konar skemmti- lega hluti. Maður getur gengið um og talað upp- hátt og jafnvel sung- ið það sem maður er að hugsa. Ætli ég sé þó ekki sú eina sem gerir það?“ sagði stúlkan þegar hún var gestur í spjallþætti Chelsea Handler. Söngkonan er þekkt fyrir sitt ljúfa skap og sakleysi og seg- ist hún aldrei hafa verið sérstaklega villt. „Ég er alltaf mjög hrædd um að koma mér í vand- ræði og hljóta skammir fyrir. Þess vegna held ég mér á mottunni.“ Swift fagnar 21 árs afmæli sínu í næsta mánuði og segist hlakka til þess að verða ári eldri. „Þá kemst ég lokst með á alla tónleikana sem vinir mínir sækja.“ Ljúf sveitasöngkona BLÍÐ OG GÓÐ Taylor Swift er ekki þekkt fyrir villt líferni. NORDICPHOTOS/GETTY Rokkarinn Dave Grohl er ánægður með sam- starf sitt og upptökustjórans Butch Vig við gerð nýrrar plötu hljómsveitarinnar Foo Fighters. Grohl segir endurnýjuð kynni þeirra vera eins og að sofa aftur hjá gamalli kærustu. Dave Grohl vinnur nú með upptöku- stjóranum í fyrsta sinn síðan hann var trommari hljómsveitarinnar Nir- vana og Butch Vig stjórnaði upptökun- um á plötunni Nevermind. Grohl segist þó hafa haft efaemdir um að samstarf- ið myndi ganga. „Að gera plötu með upptökustjóra sem þú hefur unnið með áður er ekki ósvipað og að sofa hjá kærustu sem þú áttir fyrir tuttugu árum. Það getur verið frábært en það getur líka verið hræðilegt. En samstarf okkar er mjög eðlilegt og þægilegt og hann er sami gaur og fyrir tuttugu árum. Hann notar rakspíra núna. Ég held að það sé eini munurinn.“ Platan sem þeir vinna að verður sjöunda plata Foo Fighters og á henni verður meira um endurfundi. Krist Novoselic, bassaleikari Nirvana, lætur til sín taka í einu lagi og Grohl segir það hafa verið tilfinningaríka stund þegar þeir unnu saman í fyrsta sinn síðan Kurt Cobain, söngvari Nirvana, skaut sig fyrir 16 árum. „Þegar við hittumst tengjumst við í gegnum góðu og slæmu hlutina,“ segir Grohl. Grohl leitar aftur í ræturnar NOSTALGÍA Dave Grohl vinnur aftur með fólki frá Nirvana-árunum. *Maturinn er 100% transfitulaus. Við höfum hvorki transfitumælt starfsfólkið okkar né viðskiptavini. ÍS L E N S K A /S IA .I S /H A F 5 23 89 1 1/ 10
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.