Fréttablaðið - 27.11.2010, Blaðsíða 61
27. nóvember 2010 LAUGARDAGUR
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
Basar KFUK verður haldinn í húsi KFUM og KFUK að Holta-
vegi 28 í Reykjavík laugardaginn 27. nóvember frá 14. til 17. Allur
ágóði af basarnum rennur til starfs KFUM og KFUK. Á boðstólum
verður handverk og ýmsar heimabakaðar kökur og tertur. Hægt
verður að kaupa nýbakaðar vöfflur, kaffi og kakó á staðnum.
Patti.is
Landsins mesta úrval af sófasettum
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Opið : Mánud. - Föstud. frá 9 til 18 og Laugard. frá 11 til 16
Vín Sófasett 3+1+1 Verð frá 345.900 kr
Íslenskir sófar
Yfir 90 mismunandi gerðir.
Mál og áklæði að eigin vali.
Borðstofustólar - Verð frá 12.900 kr
Mjúka jólagjöfin fyrir
alla fjölskylduna
Lín Design / Laugavegi 176 / Sími 533 2220 / www.lindesign.is
Kíktu í ve
fverslun
www.linde
sign.is
Ekkert se
ndingargj
ald!
Íslensk jólahönnun
Anna Mjöll Ólafsdóttir söngkona syngur íslensk jólalög á flottasta djassklúbbi LA í kvöld
Ástin leynist
alls staðar
Anna Mjöll segir góða tilfinningu að vera metin fyrir tónlistina, en hún viti ekki enn hvað hún ætli að verða þegar hún er orðin
stór. Á djassklúbbinn Vibrato, þar sem hún syngur í kvöld, mæta tónlistarmenn eins og Quincy Jones, Elton John, Stevie Wonder
og Tom Jones og hafa sumir stigið með henni á stokk.
É
g er alltaf í smá sambandi við
Julio (Iglesias) og hitti hann
stundum þegar hann kemur í
bæinn. Hann sendir mér ávallt
jólagjöf og ég ætla að gefa honum jóla-
plötuna. Þeir Julio, sonur hans Enrique
og reyndar öll fjölskyldan er svo eðli-
legt og hjartahlýtt fólk, en þeir sem ég
hef kynnst um dagana og eru í heims-
fræga flokknum eru í raun alveg eins
og allir aðrir og ekkert súrrealískt
að umgangast þá sem vini; mér þótti
miklu skrýtnara í byrjun hvað það
var eðlilegt,“ segir söngkonan Anna
Mjöll Ólafsdóttir, sem í kvöld verður
með útgáfutónleika nýju jólaplötunnar
sinnar Christmas JaZZmaZ á flottasta
og virtasta djassklúbbi Los Angeles,
Vibrato, sem er í eigu trompetleikarans
Herb Alpert.
„Þótt LA sé stórborg fréttist allt eins
og eldur í sinu. Það var uppselt á síðustu
tvo tónleika sem ég hélt á Vibrato og
varð að vísa fólki frá. Vonandi verður
alveg troðið í kvöld. Mamma er komin
en pabbi ekki því hann þarf að reka gít-
arskólann heima,“ segir Anna Mjöll, en
faðir hennar Ólafur Gaukur sá um djas-
sútsetningar erlendra og íslenskra jóla-
laga á nýju plötunni.
„Ég valdi íslensku jólalögin því pabbi
samdi textana við þau. Hér finnst
fólki svaka sniðugt að ég syngi lögin á
íslensku og bíður spennt eftir að heyra
mig flytja þau í kvöld,“ segir Anna
Mjöll, en um undirleik á plötunni sáu
2