Fréttablaðið - 27.11.2010, Síða 36
36 27. nóvember 2010 LAUGARDAGUR
Þ
rátt fyrir að mikil fram-
þróun hafi verið í fram-
leiðslu skólamáltíða á
undanförnum árum eru
enn mikil sóknarfæri til úrbóta.
Lykillinn að því að fá börn til
að borða hollan mat í skólum er
aukið samstarf milli ólíkra fag-
sviða, sem koma að framkvæmd
skólamáltíða.
Ragnheiður Héðinsdóttir, for-
stöðumaður matvælasviðs SI,
kynnti niðurstöðurnar, en verk-
efnið hér á landi var unnið
af SI, Rannsóknarþjónust-
unni Sýni og Matís. Verkefn-
ið var svo styrkt af Norrænu
nýsköpunarmiðstöðinni.
„Við horfðum þarna yfir sviðið
og reyndum að greina hvar hindr-
anir væri að finna og hvað væri
hægt að gera betur,“ sagði Ragn-
heiður.
Þar kom fram að þrátt fyrir
mismunandi siði og venjur milli
landa, er margt sameiginlegt þar
einnig.
„Það eru alveg sömu umkvört-
unarefni þar og eru hér, sem sagt
að það sé of lítið lagt í matinn,
börnum finnist hann vondur og
að það þyrfti meira val.“
Ragnheiður sagði að þó ljóst
væri að allir væru að gera sitt
besta í málunum væri enn hægt
að gera betur varðandi nýtingu
barna á matnum sem er í boði.
Aðalatriðið sé að maturinn sé fjöl-
breyttur, næringarríkur og bragð-
góður og falli börnunum í geð.
Ti l dæmis
segir hún að
þrátt fyrir vand-
aðar leiðbein-
ingar, meðal
annars frá Lýð-
heilsustöð, sé
það staðreynd
að mörg börn
borða ekki það
sem í boði er.
„Það blandast
engum hugur
um að leiðbeiningarnar eru góðar
og starfsmenn mötuneyta eru allir
af vilja gerðir að fara eftir þeim,
en þær duga skammt ef börnin
borða ekki matinn. Það voru því
tvö gullkorn sem við lærðum af
þessu verkefni, annars vegar var
það að börn borða mat en ekki
næringarefni, og hins vegar að
matur er ekki næringarríkur
nema hann sé borðaður.“
Máltíðir snúast um meira en
næringarefni, að sögn Ragn-
heiðar. Maturinn verður að vera
aðlaðandi til að börnin borði
hann og eins verður góð aðstaða
að vera fyrir hendi í skólum og
viðmót vinsamlegt. „Aðstaðan í
matsal og viðmót afgreiðslufólks
skiptir miklu máli til að börnun-
um líði vel í matartímanum. Sum
missa matarlystina ef þeim finnst
vera of mikill hraði og hávaði eða
starfsfólkið ónotanlegt. Öllum
ber líka saman um að þar sem
fullorðnir eru með í matnum er
hægt að miðla til barnanna og í
raun hægt að nýta matartímana
sem kennslustund. Þar geta kenn-
arar kennt börnunum að smakka á
öllu, leiðbeint um borðsiði og séð
til þess að ekki verði háreysti í
salnum.“
Til þess að stuðla að því að
börnin borði hollan og næringar-
ríkan mat í skólum eru samskipti
allra aðila lykilatriði.
Ragnheiður segir það hafa verið
skoðun flestra þeirra fjölmörgu
sem sóttu málþingið.
„Það sem mér fannst standa
upp úr á þessu þingi var hvað allir
eru sammála um nauðsyn nánari
samskipta. Allir þeir ólíku aðilar
sem koma að þessum málaflokki
þurfa að tala saman. Það er þekk-
ing út um allt en það þarf að koma
öllum saman til að hún nýtist sem
best.“
Máltíðir eru meira
en næringarefnin
Skólamáltíðir standa flestum grunnskólabörnum til boða. Vandinn er að út-
búa mat sem er í senn næringarríkur og líklegur til að höfða til hinna ungu
neytenda. Þorgils Jónsson og Steinunn Stefánsdóttir skoðuðu málið.
FINNLAND
■ Ókeypis hádegisverður fyrir öll börn frá 6-18 ára. Skólum í sjálfsvald sett
hvort boðið er upp á bita milli mála og mega taka gjald fyrir slíkt.
SVÍÞJÓÐ
■ Ókeypis hádegisverður fyrir grunnskólabörn en gjaldtaka er leyfileg fyrir
máltíðir í framhaldsskólum. Um 30 sveitarfélög af 290 taka slíkt gjald.
ÍSLAND
■ Foreldrar greiða fyrir máltíðir, en sveitarfélög niðurgreiða þær, að mis-
miklu leyti þó.
DANMÖRK OG NOREGUR
■ Algengast er að börn komi með nesti að heiman en máltíðir eru greiddar
af notendum þar sem þær eru í boði.
SKÓLAMATUR Á NORÐURLÖNDUM
Lýðheilsustöð kynnir þennan disk
sem grunn að flestum aðalmál-
tíðum fólks þar sem á einum
hluta hans má finna prótínríkan
mat, á öðrum er kolvetnarík-
ur matur og á þeim þriðja er
grænmeti og/eða ávextir.
Diskurinn segir þó ekki beint
til um skammtastærð því hún
skal stjórnast af matarlyst og
orkuþörf. Mikilvægt sé þó að huga
að skammtastærðum og stilla þeim í
hóf. Heimild: Lýðheilsustöð
DISKURINN
OPUS nefnist tilraunaverkefni sem
snýr að skólamat og er í undirbún-
ingi í Danmörku.
Rannsóknin felst í því að bera
saman þann mat sem börn borða
vanalega í skólanum, mat úr
mötuneytum, nesti nemenda og
sjoppufæði, annars vegar og hins
vegar það sem kallað hefur verið
nýr norrænn hversdagsmatur sem
byggist á hugmyndafræði nýs nor-
ræns matar.
Tilgangur rannsóknarinnar er að
komast að því hvort og þá hvern-
ig nýi norræni hvunndagsmat-
urinn hefur áhrif á heilsufar
barnanna sem þátt
taka.
OPUS gengur
út á að
framreiða
hversdagsmat
í anda nýja
norræna eld-
hússins sem
aðlagað er að
smekk barna.
Notað er norrænt
hráefni og lagt upp úr
því að máltíðirnar séu bæði hollar
og bragðgóðar. Meginhluti hráefnis-
ins á að vera lífrænn og framleiddur
í héraði og matseðillinn tekur mið
af árstíðum.
Gengið er út frá uppgefnum
viðmiðum um næringarinnihald í
máltíðunum. Sömuleiðis er þess
gætt að í matnum sé nægilegt
magn af ávöxtum, grænmeti, grófu
korni og fiski.
Lagt er upp úr því að maturinn
höfði sérstaklega til
barna, ekki bara
hvað bragðið varð-
ar heldur einnig
útlitslega.
Sjálf matar-
gerðin skiptir
einnig máli í
OPUS-verkefn-
inu. Börnin eru
virkir þátttakend-
ur í matargerðinni.
Þannig kynnast
þau nýjum hrá-
efnum og nýjum
leiðum til þess að
matreiða hráefni
sem þau þekkja
fyrir. Það er von
manna að þetta auki áhuga þeirra
á matnum og vilja til að smakka
mat sem þau hafa jafnvel ekki
bragðað áður.
Í þeim skólum sem þátt taka í
verkefninu er matargerðin í hönd-
um kokks, aðstoðarmanns og svo
barnanna sjálfra. Ætlast er til að
samhliða matargerðinni séu börnin
frædd um
hráefni og
matargerð,
auk þess sem
þau taka þátt í að
smakka matinn
til. Gert er ráð fyrir um
það bil fimm börnum að störfum í
eldhúsinu hverju sinni.
Gert er ráð fyrir þremur skóla-
máltíðum dag hvern; morgunsnarli,
hádegisverði og síðdegissnarli.
Morgunsnarlið er yfirleitt brauð og
ávöxtur, hádegisverðurinn heitur
matur sem snæddur er með hníf og
gaffli en síðdegissnarlið er fram-
reitt á þann hátt að hægt sé að
borða meðan maður er á ferðinni,
til dæmis hafrastykki, hnetur eða
þurrkuð ber.
Samanlagt eiga máltíðirnar þrjár
að fullnægja 45 prósentum af orku-
þörf átta til ellefu ára barns.
Uppskriftirnar sem
notaðar eru miðast við
árstíðirnar fjórar og
innan hverrar ársíðar
er þriggja vikna
hringur.
Tilraunaverk-
efnið á að taka til
nemenda í 3. og 4.
bekk, sem á þriggja
mánaða tímabili fá nýjan
norrænan hversdagsmat í
skólanum.
Hverjum bekk sem tekur þátt í
rannsókninni er að auki fylgt eftir í
þrjá mánuði meðan börnin eru ekki
í norræna fæðinu og fylgst með því
sem þau borða.
Tilraunamaturinn verður ókeypis
þá þrjá mánuði sem tilraunin
stendur.
Börnin verða heilsufarsskoðuð
þrisvar á rannsóknartímanum. Þau
verða meðal annars mæld og vigt-
uð, blóðþrýstingur mældur og tekin
blóðprufa.
Gert er ráð fyrir að um sextíu
bekkir í tíu til tólf skólum taki þátt í
rannsókninni sem fram fer á næsta
skólaári 2011-2012.
Áður en sjálf rannsóknin hefst verð-
ur hún undirbúin með forathugun
í einum skóla þar sem gert er ráð
fyrir að börnin fái nýja norræna
hvunndagsmatinn í fimm vikur.
GRIND AÐ VIKUMATSEÐLI
■ Mánudagur Súpa
■ Þriðjudagur Kjötréttur
■ Miðvikudagur Grænmetisréttur
■ Fimmtudagur Fiskréttur
■ Föstudagur Hlaðborð með
afgöngum
OPUS-VERKEFNIÐ Í DANMÖRKU
RAGNHEIÐUR
HÉÐINSDÓTTIR