Fréttablaðið - 27.11.2010, Blaðsíða 54
2 matur
Hollt
Sætindi
Til hátíða-
brigðaE
Eftir-
réttur
Kökur
Ég bjó til prufukökur um daginn en þær eru búnar. Þessar verða geymdar og gefnar,“ segir Elín
Ásbjarnardóttir um marengstoppana
sem hún er að baka. Hún segir mömmu
sína hafa eignast uppskriftina þegar
fjölskyldan bjó á Húsavík. „Við krakkarnir vorum svo
sólgnir í kökurnar að mamma límdi dallana aftur og
faldi þá en við fundum þá yfirleitt og stundum varð
hún að baka meira!“ rifjar hún upp. „Þá hétu kökurn-
ar lakkrístoppar en ég fór að setja annað út í eins
og Tromp, Mars, rjómakaramellukúlur, brenndan
Bismark og venjulegan Bismark. Núna verð ég alltaf
að baka marengstoppana, annars koma ekki jólin hjá
fjölskyldunni minni!“
Elín ætlar að hafa sama hátt á og móðir hennar og
líma staukana aftur. „En það er auðvitað ekki útséð
um hvernig fer,“ segir hún brosandi. „Ég reikna alveg
með að þurfa að gera einn skammt enn.“ - gun
5 eggjahvítur
330 g sykur
1 matskeið borðedik
3 dropar af matarlit
Bismark, Tromp, fyllt-
ar reimar, döðlur, mars,
karamellukúlur, eða bara
það sem hugurinn girnist.
Eggjahvíturnar eru þeyttar þar
til þær verða þéttar og hvítar, þá
er sykrinum bætt varlega saman
við ásamt sælgæti að eigin vali.
Borðediki bætt saman við til að
gefa kökunum glans. Gaman er
að bæta matarlit
út í til að skreyta
kökurnar og um
að gera að gefa
hugmyndaflug-
inu lausan tauminn
við það. Kökurnar
eru svo settar á plöt-
una, best er að hafa
þær smáar, og svo bakaðar
við 130°C í um 25 mínútur. Þegar
kökurnar eru tilbúnar þarf að láta
þær kólna áður en þær eru teknar
af bökunarpappírnum.
FYRIR DEKURBÖRN
Júlía Margrét Alexandersdóttir skrifar
SKÝRINGAR Á UPPSKRIFTATÁKNUM:
matur kemur út mánaðarlega með laugardagsblaði
Fréttablaðsins. Ritstjórn: Roald Eyvindsson og Sólveig Gísladóttir
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Forsíðumynd: Valgarður Gíslason
Pennar: Friðrika Benónýsdóttir, Gunnþóra Gunnarsdóttir, Júlía
Margrét Alexandersdóttir, Ragnheiður Tryggvadóttir og Vera
Einarsdóttir Ljósmyndir: Fréttablaðið Auglýsingar: Benedikt Freyr
Jónsson benediktj@365.is
Sannkallaðar
Elín bakar sér til ánægju og hefur jóla-
lögin á fóninum á meðan.
MYND/KRISTRÚN ÝR ÓSKARSDÓTTIR
JÓLATOPPAR
Ég man hversu undarlegt, en auðvitað æðislegt, mér þótti að koma á heimili þar sem fólk borð-aði kökur þegar það var ekki afmæli eða jól.
Þrátt fyrir einlæga aðdáun á sætmeti, þar sem ég
lagði næstum líf mitt í sölurnar til að redda mér sæl-
gæti sem krakki, var nær aldrei bakað bara upp á
grínið á heimili mínu. Og ekkert til neitt sérstakt
sem hét „drekkutími“. Engin óregla, alveg hádegis-
matur, kvöldmatur og borðað þar á milli ef maður
varð svangur. En drekkutími? Mér fannst vinkonur
mínar breytast í ósjálfbjarga grenjudúkkur þegar
þær sögðust í miðjum leik þurfa að fara heim til að
fara í drekkutíma – eruð þið á leikskóla? Og spurði
mig um leið hvort það væri ekki allt í lagi heima hjá
mér að mamma væri ekki búin að baka kanilsnúða.
Mér var nú oft boðið með og ég gat auðveldlega
beðið um pening og farið út í búð og keypt mér snúð.
Á hinum heimilinum var þetta hins vegar eins og
serimónía; klukkan þrjú búið að skera súkkulaðis-
núða í fjóra hluta (eða 8/8 ef margir voru í heim-
ili), hita kakó og smyrja tekex með osti og gúrkum.
Sumar fjölskyldurnar bökuðu eina stóra skúffuköku
á sunnudegi sem entist til miðvikudags og svo aðra
á miðvikudegi sem entist til sunnudags. Ég
át myllusnúð upp úr bláum plastpoka og
hugsaði smá- og dekurbörnunum í hinum
húsunum þegjandi þörfina (að kalla ein-
hvern dekur- eða smábarn var mesta
skammaryrði sem maður kunni
þegar maður var átta ára).
Allt keyrði um þverbak þegar
maður fékk að fara í heimsókn
út á land á sumrin. Úti á landi
var það jafn sjálfsagt að baka
og að bursta tennurnar. Og
kökurnar voru geymdar
í sérherbergi sem kall-
aðist búr. Við vöknuðum
einar við vinkonurn-
ar á virkum dögum á
Fáskrúðsfirði þar
sem húsfrúin vann
á leikskólanum og
þá gat maður fengið
sér skúffuköku í morgunmat
þar sem enginn sá til. Ég var eins
og mús í búri eitt sumarið þegar ég dvaldi óvenju
lengi á Fáskrúðsfirði og fannst ég hafa dottið í lukku-
pottinn því auk þess að fá skúffukökur í morgun-
mat var nokkuð enn betra fyrirbæri til úti á landi,
svokallað kvöldkaffi þar sem maður borðaði kökur
stundum EFTIR að maður hafði burstað tennurnar.
Sælkeraverslunin Yndisauki er til
húsa að Vatnagörðum 6 í Reykja-
vík og býður upp á ýmsar sælkera-
vörur framleiddar af Yndisauka.
Má þar nefna hið vinsæla dukkah,
sem fæst í fjórum mismunandi
útgáfum, hummus og kasjúkurl.
Einnig er boðið upp á heita rétti,
salöt, vefjur og fleira. Fyrir jólin
býður Yndisauki upp á jólaborð
með átta jólalegum réttum, sem
hægt er að panta fyrir einn eða
heilu fyrirtækin, auk þess sem
tvær nýjar vörur eru framleiddar
gagngert fyrir jólin; balsamik-
rauðlaukur og hindberjasósa sem
passa vel við villibráð, paté og
annað gúmmelaði sem tengist jólunum. Svo má ekki gleyma jólasmákökunum þar sem áherslan er
öll á hollustuna án þess að dregið sé úr bragðgæðunum.
Stofnendur og eigendur Yndisauka eru Guðbjörg Halldórsdóttir og Kristín Ásgeirsdóttir. Þær
stöllur eru báðar ástríðufullar áhugakonur um mat og allt sem tengist lífsstíl sælkerans og er
markmið þeirra að veita sem besta þjónustu og ráðgjöf. - fsb
YNDISAUKI
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Sælkeravörur með sérstöðu
SÆLGÆTISKÖKUR
Elín Ásbjarnardóttir stalst í marengstoppa mömmu sinnar fyrir jólin í gamla daga. Nú hefur hún
þróað sína eigin toppa með alls konar sælgæti og þá er komið að öðrum að stelast.
„Ég verð allaf að baka marengstoppana, það er komin hefð á þá,“ segir Elín. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Hægt er að nota hin ýmsu bragðefni.
Nammi
namm!