Fréttablaðið - 27.11.2010, Blaðsíða 18
27. nóvember 2010 LAUGARDAGUR
Ég er svo heppin að vera í skemmtilegasta starfi í heimi
með stórkostlegum vinnufélögum.
Á mínum vinnustað leika og starfa
tæplega 100 manns á aldrinum 1
árs til 65 ára. Ég er leikskólastjóri
og hef notið þess í níu ár.
Leikskólastjórastarfið er mjög
fjölbreytt, verkefnin mörg og
mismunandi og ég hlakka til að
fara í vinnuna á hverjum
morgni. En hvaða máli
skiptir leikskólastjórinn í
leikskólanum og hvert er
hans hlutverk? Fyrir utan
augljós verkefni sem lúta
að almennum rekstri leik-
skólans er leikskólastjór-
inn að mínu mati límið
í góðu leikskólastarfi,
hann þarf að vera fagleg-
ur leiðtogi í sínum skóla,
góð fyrirmynd og góður
í samskiptum. Nærvera
leikskólastjórans í leik-
skólanum skiptir miklu
máli í því samhengi. Nán-
ast daglega koma upp stór
og smá vandamál sem
þarf að leysa.
Að geta tekið þátt í dag-
legu starfi leikskólans er í mínum
huga nauðsynlegur þáttur í starfi
leikskólastjórans. Á þann hátt
myndast góð og mikilvæg tengsl
við starfsfólkið, börnin og ekki
síður foreldrana. Þessi góðu tengsl
eru svo grunnurinn að því trausti
sem myndast á milli þessara aðila
og gerir góðan leikskóla betri.
Mikilvægt er fyrir foreldra að
hafa greiðan aðgang að leikskóla-
stjóra og notalegt spjall í upphafi
eða lok dags styrkir samskiptin.
Spjall við börnin í fataherbergi
eða við matarborð og eltingaleik-
ur í garðinum er gefandi auk þess
sem það veitir leikskólastjóranum
góða innsýn í líðan barnanna.
Nýverið tók til starfa á vegum
borgarráðs starfshópur undir
stjórn Oddnýjar Sturludóttur, for-
manns menntaráðs. Þessi hópur á
fyrir 1. febrúar 2011 að vera búinn
að útfæra og tímasetja tillögur til
næstu fjögurra ára á mögulegum
sameiningarkostum leikskóla,
grunnskóla og frístundaheimila.
Þá á hópurinn að greina fagleg-
an og fjárhagslegan ávinning við
hvern sameiningarkost. Verkefnið
er því ekki lítið, og það á að klára
á innan við þremur mánuðum.
Desember er handan við hornið
og hópurinn hefur aðeins fundað
einu sinni.
Hverju á þetta að skila börnun-
um, foreldrunum og samfélaginu í
leikskólunum? Hvaða fjárhagslega
ávinningi ætlar borgin að ná fram
með þessum sameiningum? Að
gefa sér ekki lengri tíma en fram
í febrúar til að takast á við svona
stórt verkefni þykir mér undarleg
stefnumótun og ég er viss um að
enginn leikskólastjóri í borginni
myndi leggja til grundvallarbreyt-
ingar í sínum leikskóla án þess að
undirbúa sig betur en þetta.
Leikskólar í Reykjavík hafa á
tyllidögum verið kallaðir flagg-
skip borgarinnar enda eru þeir
flestir til fyrirmyndar í fjármála-
rekstri sem og þeirri þjónustu
sem þeir veita. Kannanir leik-
skólasviðs hafa í gegnum tíðina
sýnt gríðarlega ánægju foreldra
með leikskóla borgarinnar. En
nú á að ráðast gegn þessu fyrsta
skólastigi barnanna sem að mínu
mati er á heimsmælikvarða og við
höfum hingað til getað
talað um með stolti við
kollega okkar í öðrum
löndum.
Leikskólastjóri
er allt í einu gerður
óþarfur í leikskólan-
um og hans hlutverk
í sameinuðum skól-
um mun gera það að
verkum að hann fjar-
lægist það samfélag
sem hver leikskóli er.
Hann þarf að skipta
sér á milli vinnustaða
og það blasir við að
þau nánu tengsl sem
hann á í dag við sam-
starfsfólk sitt, börnin
og foreldrana verða á
allt öðrum nótum en
það sem þekkist í dag. Það er að
mínu mati stórt skref afturábak.
Ég á erfitt með að sjá fagleg-
an ávinning af sameiningu leik-
skóla nema í sérstökum undan-
tekningartilfellum. Hvað varðar
fjárhagslegan ávinning held ég
að málið sé ekki eins einfalt og
haldið hefur verið fram í umræð-
unni. Breytingarnar kosta líka
peninga og fórnarkostnaðurinn
fyrir samfélagið á leikskólanum
er ekki mælanlegur í peningum.
Svo er líklegast að það sem spar-
ast í bókhaldi nokkurra leikskóla
við það að færa þjónustuna fjær
börnum og foreldrum komi fram
í hærri skrifstofu- og sérfræði-
kostnaði í öðrum dálkum í bók-
haldi borgarinnar.
Í dag eru leikskólastjórar borg-
arinnar eingöngu konur og mun
þessi fyrirhugaða aðgerð höggva
stórt skarð í hóp kvenstjórnenda
borgarinnar. Þar sem sameiningar
verða mun stjórnendum verða sagt
upp störfum og ný stjórnendastaða
auglýst laus til umsóknar. Mikið
óöryggi er í hópi stjórnenda í leik-
skólum borgarinnar og þar er fólk
nú uggandi um sinn skóla og sitt
starf. Ég skora á borgaryfirvöld
að endurskoða þessa aðgerð, gefa
sér lengri tíma en þrjá mánuði í að
kanna kostina og gallana.
Það er röng forgangsröðun að
skera niður hjá yngstu borgurun-
um, börnunum sem eru að stíga
sín fyrstu skref í samfélaginu. Þau
á að setja í forgang, það er fagleg-
ur og fjárhagslegur ávinningur.
Óþarfir leikskólastjórar?
Leikskólar
Anna Margrét
Ólafsdóttir
leikskólastjóri og
formaður 1. deildar
Félags stjórnenda í
leikskólum
Mikið óör-
yggi er í hópi
stjórnenda í
leikskólum
borgarinnar
og þar er fólk
nú uggandi
um sinn skóla
og sitt starf
AF NETINU
Muna eftir vökulögunum, Jón!
Sá í kvöldfréttum gærdagsins að Jón Bjarnason fékk frekjukast í ræðustól
þingsins vegna þess að einhver þingmaður leyfði sér að setja spurningar-
merki við að sonur ráðherrans ætti að fara yfir skýrslu frá HAFRÓ. [...]
Miðað við það sem hann taldi upp er sonurinn svo bissí að það er kannski
óþarfa grimmd að vera að troða honum í aukavinnu á vegum ráðuneytis
pabba síns.
Muna eftir vökulögunum. Jamm.
blog.eyjan.is/jenny Jenný Baldursdóttir
Hagsmunasamtök sökkva í slúðrið
Friðriki Ó. Friðrikssyni, formanni Hagsmunasamtaka heimilanna, virðist
ofboðið að fjölmiðlar hafi fjallað um skuldastöðu Marinós G. Njálssonar.
Friðrik sagði þetta slúður fréttir, en dró það til baka, enda var tíðrætt um
vonda fjölmiðla. Hann sökkti sjálfum sér og samtökunum í djúpan slúður-
pytt þegar hann sagði: „Nú er engin launung á að það eru pólitískir þræðir
bæði í ritstjórnir fjölmiðla eins inn í launþegahreyfinguna. Ég held að Gylfi
Arnbjörnsson fari ekkert leynt með það að hann er mikill Samfylkingarmað-
ur. Ég held að það sé engin launung á því að það eru sterk pólitísk tengsl á
milli ritstjórnar Fréttatímans og Samfylkingarinnar.“
Auðvitað hafði hann engin dæmi eða gat rökstutt slúðurfullyrðingu sína.
Hann gekk nærri trúverðugleika samtakanna.
sme.midjan.is Sigurjón M. Egilsson