Fréttablaðið - 22.01.2011, Síða 22
22 22. janúar 2011 LAUGARDAGUR
að snúa aftur á sviðið. Ég ber mikla
virðingu fyrir þeim sem starfa í
leikhúsunum, en það þyrfti mikið
að gerast til að ég ýtti frá mér
núverandi stöðu minni. Ég er orð-
inn hálfgerður flakkari, fer kannski
á þrjá eða fjóra staði í viku sem ég
hef aldrei komið á áður og eru jafn-
vel alls ekki hugsaðir fyrir list-
sköpun eða grín, lagerar og fleira
í þeim dúr. Ég mæti með míkrófón
og kannski gítar eða skjávarpa og
reyni að búa til skemmtilega stund,
þar og þá. Þetta þykir mér dálítið
spennandi. Svona svipað eins og að
vera harðfisksölumaður, en ganga
örlítið lengra,“ segir Þorsteinn.
Íslenskur raunveruleiki
Kvikmyndin Okkar eigin Osló fjall-
ar um ósköp venjulega Íslendinga,
karl og konu á fertugsaldri, sem
kynnast á ferðalagi í höfuðborg
Noregs, og lenda á kenderíi. Þegar
þau snúa heim til Íslands er ætlun-
in þeirra að stofna til varanlegra
kynna, en þá fer af stað ákveðin
hrakfallasaga þegar íslenskur og
ískaldur raunveruleikinn tekur við.
Hversdagslegur farangur þeirra,
börn, fjölskylda, fyrr verandi
makar, vinna, fjárhagsörðugleikar
og fleira fer að vinna á móti fólkinu
í tilraunum þeirra til að ná saman,
oft og tíðum með kómískum afleið-
ingum.
„Maðurinn sem ég leik er verk-
fræðingur hjá Marel og konan,
sem leikin er af hinni frábæru
Brynhildi Guðjónsdóttur, er gjald-
keri í banka,“ segir Þorsteinn. „Ég
man ekki til þess að gerðar hafi
verið margar bíómyndir um verk-
fræðinga og bankastarfsmenn og
það þykir kannski ekkert rosalega
spennandi, en þetta er nokkuð sem
mér finnst skemmtilegt að segja
frá,“ segir Þorsteinn og skellir
upp úr, en önnur stór hlutverk
eru meðal annars í höndum Hilm-
is Snæs Guðnasonar, sem leikur
fyrrverandi eiginmann konunnar,
Lilju Guðrúnar Þorvaldsdóttur, í
hlutverki móður aðalpersónunnar,
og Maríu Hebu Þorkelsdóttur sem
fer með hlutverk misþroska systur
hennar.
„Að öðrum ólöstuðum gæti ég
trúað að María Heba muni koma
til með að vekja mikla athygli fyrir
leik sinn í myndinni. Hún gjörsam-
lega blómstrar,“ tekur Þorsteinn
fram.
Hann eys líka leikstjóra myndar-
innar, Reyni Lyngdal, lofi og segir
það hafa verið draumi líkast að
vinna með honum. Okkar eigin
Osló er fyrsta kvikmynd Reynis í
fullri lengd, en hann og Þorsteinn
eru góðir vinir og hafa unnið tölu-
vert saman í gegnum tíðina. „Reyn-
ir hefur einhverja áru yfir sér sem
gerir það að verkum að öllum líður
vel í kringum hann. Allt töku ferlið
gekk mjög vel, fyrir utan það að
fyrstu vikuna fékk ég alveg hrika-
lega í bakið og lagðist í rúmið. Sem
betur fer áttum við tvo frídaga ein-
mitt þá, svo við misstum ekki damp-
inn.“
Léttir að verða leikari aftur
Þorsteinn viðurkennir þó að hafa
verið undir talsverðu álagi í haust
þegar hann var í þann mund að
ljúka við handrit myndarinnar,
skömmu áður en tökur hófust.
„Það sem gerist á lokaskref-
unum í svona handritsgerð, að
minnsta kosti í mínu tilfelli, er
að það myndast mikil pressa alls
staðar að. Leikstjórinn kemur með
sitt innlegg, líka framleiðendur og
jafnvel meðframleiðendur, sjóðir
og slíkt, og allir reyna að beina
þér í ákveðnar áttir. Það reynir á
og ég lærði mikið af þessu, þarna
varð ég að hlusta á alla en um leið
að halda mínu striki. Ég hef aldrei
lent í svona löguðu áður. Þegar ég
skrifa bækur fæ ég kannski vin-
samlegar ábendingar frá ritstjóra,
en þarna var veruleg pressa. Sem
var fínt. Ég þurfti að nýta mér
hana til góðs, en ég hefði líka allt
eins getað farið á taugum,“ segir
Þorsteinn.
Hann bætir við að eftir að hand-
ritaskrifunum lauk hafi það orðið
honum nokkur léttir að verða
„bara“ leikari aftur. „Það var
mjög gaman að fá að verða leikari
í friði. Ég henti frá mér ábyrgðinni
á handritinu og naut þess bara að
verða einn af leikarahópnum. Var
ekkert að skipta mér af senum hjá
hinum leikurunum og slíkt. Það er
nauðsynlegt. Maður fær ekki það
besta út úr öðrum með því að vera
ráðríkur.“
Skemmtilegar samtímasögur
Meðal aukaleikara í Okkar eigin
Osló eru tveir grínistar af yngri
kynslóðinni sem vafalaust hafa
lært eitthvað af Þorsteini í gegn-
um tíðina, þeir Ari Eldjárn og
Steindi Jr. Þorsteinn segir þeim
félögum bregða fyrir í nokkrum
eftirminnilegum atriðum.
„Þetta eru alveg frábærir dreng-
ir. Ég hef haft mjög gaman af því
að fylgjast með þeim og hvetja
þá áfram, mæta á uppistand hjá
þeim og svona. Mér finnst mjög
skemmtilegt þegar bætist í þennan
litla hóp uppistandara og grínista,“
segir Þorsteinn og bætir við að það
virðist sem fyrirbærið uppistand
komist í tísku annað veifið.
„Uppistand var til að mynda
mjög heitt á því tímabili sem Jón
Gnarr var með sýninguna Ég var
einu sinni nörd í Loftkastalanum,
en svo datt það alveg niður. Mörg-
um fannst alveg sérlega skrítið að
ég nennti að standa í þessu. Ég man
eftir að hafa lesið greinar í blöð-
um sem sögðu að uppistandið væri
dautt og grafið. Í einni greininni
stóð meira að segja að það eina
sem gæti bjargað uppistandinu
væri að vera með einhvers konar
leikmunagrín, sem ég skildi nú
ekki alveg,“ segir Þorsteinn og
skellir upp úr.
„En svo skyndilega upp úr
kreppunni kom alveg ný kynslóð
fram á sjónarsviðið og allt í einu
er þetta orðið eftirsóknarvert
aftur. „Þessi hefð er auðvitað alda-
gömul hér á Íslandi. Að standa upp
á þorrablóti og fara með gaman-
mál, það er uppistand. Okkar bestu
uppistandarar hafa kannski aldrei
verið kallaðir uppistandarar, eins
og Flosi Ólafsson.“
Þorsteinn segist hafa fylgst
nokkuð vel með íslenskri kvik-
FRAMHALD AF SÍÐU 20
Merkilegustu sögurnar eru ekkert endilega þær sem
áttu að verða stórkostlegar. Don Kíkóti, besta skáldsaga
sögunnar að mínu mati, er skrifuð sem gamansaga.
Spurður hvers vegna höfuðborg Noregs varð fyrir valinu sem nokk-uð veigamikill hluti handritsins að nýju myndinni segir Þorstein þá
hugmynd hafa kviknað fyrir löngu, enda hafi vinnsla handritsins hafist
fyrir mörgum árum.
„Ég held ég hafi bara komið einu sinni til Osló áður en við fórum
þangað í haust til að taka upp, og það fyrir löngu síðan. Norðmenn hafa
alltaf slegið mig sem afskaplega lítið rómantísk þjóð, svo mér fannst
þetta eiginlega bara fyndið. Osló sem París norðursins, þar sem allir eru í
jogging göllum,“ segir hann og glottir.
„Annars er dálítið skemmtilegt við Íslendinga, og kannski flestar aðrar
þjóðir líka, að við tökum okkur bessaleyfi til að vera allt öðruvísi mann-
eskjur í útlöndum. Þá er allt svo spennandi, allt má og engar áhyggjur.
Þetta leikur nokkuð stórt hlutverk í myndinni. Svo uppgötvaði ég
reyndar að Osló er mjög flott borg, en í rauninni hefði þetta getað
verið hvaða borg sem er. Mér finnst oft eins og Íslendingar vilji alls
ekki láta líkja sér við Norðmenn, þótt eflaust séum við dálítið
norsk í eðli okkar, svona í grunninn.“
ÍSLENDINGAR Brynhildur Guðjónsdóttir, Þorsteinn
Guðmundsson og leikstjórinn Reynir Lyngdal við
upptökur á Okkar eigin Osló síðastliðið haust.
MYNDIR/VERA PÁLS
AÐRAR MANNESKJUR Í ÚTLÖNDUM
myndagerð í gegnum árin og telur
margt gott hafa komið úr þeim
ranni.
„Þó finnst mér að íslenskir leik-
stjórar, sem ráða yfirleitt verk-
efnavali, mættu kannski hugsa
örlítið meira um að segja sögur úr
samtímanum. Auðvitað hefur fólk
mismunandi smekk, en ég held að
margir hefðu gaman af því að fá
fleiri sögur af venjulegum hlutum,
en ekki endilega skrítnum, stór-
kallalegum eða áreynslukenndum.
Merkilegustu sögurnar eru ekk-
ert endilega þær sem áttu að verða
stórkostlegar. Don Kíkóti, besta
skáldsaga sögunnar að mínu mati,
er skrifuð sem gamansaga. Og fólk
ímyndar sér að Shakespeare hafi
nú aldeilis legið yfir Hamlet, þegar
kannski vantaði bara leikrit fyrir
næsta leikár og höfundurinn heyrði
sögu um einhvern danskan prins
sem hann stal og notaði. Svona
gerast hlutirnir, en ekki endilega
þannig að fólk setji sig í einhverjar
ægilegar stellingar.“
Margt til fyrirmyndar í auglýsinga-
bransanum
Vart hefur farið framhjá mörgum
sem á annað borð eiga sjónvarps-
tæki að Þorsteinn hefur verið áber-
andi í auglýsingum síðustu ár. Hann
hefur enda verið viðloðandi aug-
lýsingabransann lengi, hóf störf á
auglýsingastofunni Hvíta húsinu
um tveimur árum eftir útskrift úr
Leiklistarskólanum og segist þar
hafa lært inn á bransann, kynnt
sér textagerð og grundvallarvinnu-
brögð.
„Það er mjög margt til fyrirmynd-
ar í auglýsingabransanum, þótt það
hljómi kannski einkennilega,“ segir
Þorsteinn. „Fyrsta herferðin sem ég
tók þátt í var fyrir Tal. Hún gekk
mjög vel, við fengum verðlaun fyrir
hana og ég hafði virkilega gaman af
þessu. Svo hef ég tekið svona tarnir,
fundið upp á nýjum karakterum og
slíkt, reglulega og á tímabili gat ég
kostað rithöfundaferilinn með aug-
lýsingarnar sem hliðargrein, því það
lifir enginn á því að vera rithöfund-
ur til að byrja með nema að vinna
aðra vinnu eða eiga ríkan maka.“
Aðspurður segist hann vel geta
trúað því að aðkoma hans að auglýs-
ingum geri það að verkum að ákveð-
inn hópur alvarlegra listamanna,
eins og hann orðar það, taki honum
með fyrirvara.
„En það er heldur ekki hópur sem
ég hef sótt í og skiptir mig engu
máli. Eins finnst mér líkt og margir
þeir sem eru andsnúnir auglýsing-
um, markaðsmálum og kynning-
arstarfsemi gleymi því gjarnan að
slíkt er nauðsynlegt ef hér á að ríkja
frjáls samkeppni. Þetta er annað-
hvort eða. Ef ekki ríkir frjáls sam-
keppni er engin þörf fyrir neitt af
þessu. En ef hún ríkir þá er nauðsyn-
legt að leggja fram upplýsingar svo
að fólk geti valið. Ef við viljum búa
við þetta kerfi verðum við einfald-
lega að sætta okkur við að fá auglýs-
ingabæklinga inn um bréfa lúguna
hjá okkur. Fólk ætti frekar að hafa
áhyggjur af því að auglýsingar séu
trúverðugar og vel gerðar,“ segir
Þorsteinn.
HRAKFALLASAGA
Þorsteinn í hlut-
verki sínu í Okkar
eigin Osló.
Chevrolet Spark, 5 dyra - 5 sæta
L - beinskiptur Kr. 1.695 þús.
LS - beinskiptur Kr. 1.895 þús.
Chevrolet á enn betra verði !
Sérfræðingar í bílum
Bílabúð Benna - Chevrolet sýningarsalur - Tangarhöfða 8-12 - Reykjavík - sími 590 2000
Bílabúð Benna - Njarðarbraut 9 - Reykjanesbæ - sími 420 3300
Bílaríki - Glerárgötu 36 - Akureyri - sími 461 3636
www.benni.is
Vegna nýrra laga um vörugjöld sem tóku gildi um áramótin eru umhverfisvænir
bílar á betra verði. Allir bílar frá Chevrolet hafa lækkað í verði.
Gæði í 100 ár
Ár slaufunnar
B
íll
á
m
yn
d:
S
pa
rk
L
T
m
eð
á
lf
el
gu
m
.