Fréttablaðið - 22.01.2011, Side 62
22. janúar 2011 LAUGARDAGUR34
timamot@frettabladid.is
Elsku pabbi okkar, tengdapabbi, afi og
langafi
Ralph Thomas Hannam
lést laugardaginn 15. janúar. Útförin fer fram frá
Dómkirkjunni þriðjudaginn 25. janúar kl. 15.00.
Vilhjálmur Leifur Tómasson
Sólveig Hannam Árni Ólafur Lárusson
Júlía Hannam Ragnar Þ. Ragnarsson
Elísabet Hannam Örn Helgason
barnabörn og barnabarnabörn
erf idr yk kjur
G R A N D
Hlýlegt og gott viðmót
á Grand hótel.
Fjölbreyttar veitingar
lagaðar á staðnum.
Næg bílastæði
og gott aðgengi.
Grand Hótel Reykjavík
Sigtún 38, 105 Rvk.
Sími: 514 8000
www. grand.is
erfidrykkjur@grand.is
Verið velkomin
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Guðbjörg Salóme
Þorsteinsdóttir
lést á heimili sínu á Ísafirði, miðvikudaginn 19. janúar.
Útför hennar fer fram frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn
29. janúar kl. 14.00.
Sigríður H. Sigfúsdóttir Björn Gíslason
Ingibjörg E. Sigfúsdóttir Jón Víðir Njálsson
Þorsteinn Sigfússon Rósa Kjartansdóttir
Jóhann G. Sigfússon Margrét Eyjólfsdóttir
Ósk Óskarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma
Helga Vigfúsdóttir
áður til heimils að Sæviðarsundi 20,
Reykjavík,
lést á Hrafnistu Hafnarfirði sunnudaginn 9. janúar sl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Friðgeir Ingimundarson
Sigrún Friðgeirsdóttir Logi Úlfljótsson
Guðmundur Friðgeirsson Barbara Glod
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför
Ólafs Bergmanns
Ásmundssonar
Geislalind 4, Kópavogi.
Sérstakar þakkir fá Stella, Sóley og annað starfsfólk
Lungnadeildar Landspítalans Fossvogi fyrir einstaka
umönnun og hlýtt viðmót.
Málfríður Ólína Viggósdóttir
Aðalbjörg Ólafsdóttir Halldóra Ólafsdóttir
Heiðrún Ólafsdóttir Ragnheiður Ólafsdóttir
Ólafur Már Ólafsson
barnabörn og barnabarnabörn
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför
Önnu Baldvinsdóttur
Stóru-Hámundarstöðum.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Dalbæjar fyrir
kærleiksríka umönnun.
Davíð Hjálmar Haraldsson Sigrún Lárusdóttir
Baldvin Haraldsson Elín Lárusdóttir
Hjördís Guðrún Haraldsdóttir Þorlákur Aðalsteinsson
barnabörn og fjölskyldur.
Tilkynningar um merkis-
atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma
512 5000.
HERMANN JÓNASSON (1896-1976), fyrrverandi forsætisráðherra, andaðist þennan dag.
„Við hugleiðum ekki eins oft og við ættum að gjöra hve mjög framtíðin
veltur á hverju augnabliki nútímans.“
Gaman er að minnast þess að fyrir nákvæm-
lega fjórum árum sigruðu „strákarnir okkar“
Frakka með yfirburðum á HM í Magdeburg í
Þýskalandi, 32/24. Þar með komust Íslend-
ingar áfram í milliriðil með tvö stig.
Íslenska handboltalandsliðið sýndi allar
sínar bestu hliðar í leiknum móti Frökkum
og hreinlega pakkaði þeirra öfluga liði
saman. Áður en Frakkar uggðu að sér höfðu
Íslendingar skorað fimm mörk og stækkuðu
forskotið eftir því sem leið á fyrri hálfleik.
Skömmu fyrir leikhlé kom Ólafur Stefánsson
Íslandi í tíu marka forystu 18-8.
Ólafur var markahæstur íslensku leik-
mannanna með sex mörk, Næstir komu
Guðjón Valur og Logi Geirsson með fimm
hvor, Snorri Steinn skoraði fjögur, Alexander
Petersson þrjú, Sigfús Sigurðsson og Ásgeir
Örn tvö hvor og Ragnar Óskarsson og Vignir
Svavarsson eitt hvor.
ÞETTA GERÐIST: 22. JANÚAR 2007
Íslendingar sigruðu Frakka á HM
Jarðvísindadeild á Verkfræði- og nátt-
úruvísindasviði sæmir í dag, Dr. Har-
ald Sigurðsson, jarðfræðing og próf-
essor emeritus við háskólann á Rhode
Island, doktorsnafnbót í heiðursskyni.
„Ég hef hlotið mörg verðlaun fyrir
störf mín í gegnum tíðina en þetta er
fyrsta heiðursdoktorsnafnbótin sem
ég hlýt og ég er mjög glaður að það
skuli vera hér á Íslandi því það skiptir
mestu að fá viðurkenningu hjá Íslend-
ingum,“ segir Haraldur sem hefur
starfað erlendis í fjörutíu ár en flutti
til Íslands aftur fyrir örfáum árum.
Haraldur nam jarðfræði við Háskól-
ann í Belfast og lauk doktorsprófi við
Háskólann í Durham 1970. Hann starf-
aði lengst af sem prófessor við Háskól-
ann á Rhode Island í Bandaríkjunum.
Í samstarfi við fjölmarga kollega
sína hefur hann birt mikilvægar grein-
ar um niðurstöður rannsókna á stórum
eldgosum.
Hér á landi vann hann einnig að
rannsóknum á gosinu í Lakagígum,
setmyndun jökulhlaupsins 1996 í haf-
inu undan suðurströndinni, bergfræði
gosbeltanna sem og úthafshryggja.
Haraldur var aðalritstjóri bókarinn-
ar Encyclopedia of Volcanoes en hún er
grundvallarrit í eldfjallafræði. Fyrir
hana hefur hann hlotið margar viður-
kenningar. Þá hefur Haraldur fengið
ýmis alþjóðleg verðlaun fyrir vísinda-
störf og riddarakross hinnar íslensku
fálkaorðu hlaut hann 2005.
Þegar Haraldur lét af störfum sem
prófessor við Rhode Island háskólann
flutti hann til Íslands. „Ég hafði alltaf
verið heima öðru hvoru og vildi bæta
og auka tengsl mín við Ísland. Svo
ákvað ég að ég vildi eignast heimili á
Stykkishólmi þar sem ég er fæddur og
uppalinn. Því má segja að hringnum sé
lokað,“ segir Haraldur glaðlega, sem
er þó hvergi hættur afskiptum sínum
af eldfjallafræðum. „Vorið 2009 opn-
aði ég eldfjallasafn í samstarfi við
Stykkishólmsbæ en sú hugmynd hafði
þróast með mér í tuttugu ár,“ upplýsir
Haraldur en safnið er einstætt í ver-
öldinni því það sýnir listaverk víða að
úr heiminum sem Haraldur hefur safn-
að og tengjast eldgosum og eldvirkni.
„Við höfum fengið mjög góð viðbrögð
og gestum fjölgaði um 25 prósent milli
ára,“ segir Haraldur og vill meina að
mikill áhugi sé meðal ferðamanna og
Íslendinga á eldvirkni og jörðinni.
Síðasta ár var mikil gósentíð fyrir
eldfjallafræðinga, þá hlýtur Haraldur
að hafa notið lífsins? „Ég var nú erlend-
is en fylgdist vel með þróuninni til 15.
mars, þá sá ég að það væri eitthvað að
gerast og flýtti mér heim og var kom-
inn hingað fimm dögum fyrir gosið í
Fimmvörðuhálsi,“ segir Haraldur, sem
fylgdist náið með framgangi gossins
og er enn að vinna úr því efni. „Ég hef
verið að vinna rannsóknir tengdar því
að ákvarða hve mikið gas er í kvikunni,
því sprengigosi er að nokkru leyti
stýrt af gasi innan í kvikunni djúpt í
jörðunni,“ segir Haraldur, en margt
skemmtilegt hefur komið fram í rann-
sókninni. Hann mun fjalla um hana
í erindi sem hann flytur að lokinni
athöfnin sem haldin verður í hátíðarsal
Háskóla Íslands, í Aðalbyggingu í dag
klukkan 13. Dagskráin er öllum opin.
solveig@frettabladid.is
HARALDUR SIGURÐSSON: SÆMDUR HEIÐURSDOKTORSNAFNBÓT HÍ
Gósentíð eldfjallafræðinga
ELDGOS Á FIMMVÖRÐUHÁLSI Haraldur fyldist vel með eldgosunum á síðasta ári og heldur erindi um rannsóknir sínar að lokinni athöfn í hátíða-
sal Háskóla Íslands í dag klukkan 13. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON