Fréttablaðið - 22.01.2011, Page 71
LAUGARDAGUR 22. janúar 2011 43
ÁFRAM STELPUR 2011 Flytja lög af plöt-
unni Áfram stelpur frá 1975 í Samkomu-
húsinu á Akureyri í kvöld.
Steinunn Helgadóttir, myndlistar-
maður og ljóðskáld, hlaut í gær
Ljóðstaf Jóns úr Vör fyrir ljóð
sitt Kaf í ljóðasamkeppni lista-
og menningarráðs Kópavogs.
Steinunn er tíundi handhafi
verðlaunanna sem voru veitt við
hátíðlega athöfn í Salnum í gær,
að kvöldi fæðingardags Jóns úr
Vör.
Steinunn kveðst stolt af því að
hafa hlotið verðlaunin; hún hafi
skrifað lengi og myndlist hennar
oft tengst orðum og ljóðum. Hún
segist munu fylgja verðlaunun-
um eftir með útgáfu ljóðabókar
á næstunni.
Alls 342 ljóð bárust í sam-
keppnina undir dulnefni og vissi
dómnefnd ekki hver var höfund-
ur fyrr en sigurljóðið hafði verið
valið. Í rökstuðningi dómnefnd-
ar segir meðal annars að ljóðið
bregði upp áhrifamiklum mynd-
um af síðustu ferð rússneska kaf-
bátsins Kúrsk sem fórst með allri
áhöfn í Barentshafi árið 2000 og
að höfundurinn kunni þá list að
ljúka ljóði. Dómnefnd skipuðu
Gerður Kristný, ljóðskáld og rit-
höfundur, Jón Yngvi Jóhannsson
bókmenntafræðingur og Sigurð-
ur Pálsson, ljóðskáld og rithöf-
undur.
Steinunn Helgadóttir hlaut ljóðstaf Jóns úr Vör
STEINUNN HELGADÓTTIR Kaf var sagt
bregða upp áhrifamiklum myndum.
KAF
Sólin lýsti bara upp
yfirborðið
þegar Kursk hvarf
í djúpið.
Hjátrúarfullar eiginkonur
sátu heima.
Þorðu ekki að kveðja.
Sjónpípan er
hettuklædd slanga
og gleraugað skoðar
hafflötinn það er
íshröngl úti.
Inni er móða sólbekkir
sex metra sundlaug
sána tafl fiskabúr
kvikmyndir pottaplöntur
köttur ruggustólar.
Strendur og furuskógar
í myndvarpanum.
Eldkúla
og að lokum
tíminn.
Hin sígilda hljómplata Áfram
stelpur frá 1975 verður flutt í
heild sinni á tónleikum í Sam-
komuhúsinu á Akureyri í sam-
starfi við Leikfélag Akureyrar í
kvöld klukkan 20.
Á þrjátíu og fimm ára afmæli
Kvennafrísins í haust fluttu
fimm leik- og söngstelpur plöt-
una Áfram stelpur í heild sinni
á tónleikum í Slippsalnum við
góðar undirtektir. Fyrr um dag-
inn stjórnuðu þær fimmtíu þús-
und kvenna fjöldasöng á Arnar-
hóli. Vegna fjölda áskorana verða
þessir tónleikar endurteknir og
nú norðan heiða.
Áfram stelpur 2011 eru Aðal-
heiður Þorsteinsdóttir, Brynhild-
ur Björnsdóttir, Esther Jökuls-
dóttir, Margrét Pétursdóttir og
Sigríður Eyrún Friðriksdóttir.
Áfram stelp-
ur á Akureyri
Kristjana Stefánsdóttir flytur
tregafulla dagskrá í Slippsalnum
klukkan 21 í kvöld. Á dagskránni
verða blúsar, fönk og soul í bland
við frumsamið efni úr fórum
dívunnar. Hljómsveitina skipa
þeir Agnar Már Magnússon á
píanó og Hammond, Ómar Guð-
jónsson á gítar, Róbert Þórhalls á
bassa og Halldór G. Hauksson á
trommur.
Kristjana í
Slippsalnum