19. júní


19. júní - 19.06.1973, Síða 5

19. júní - 19.06.1973, Síða 5
Kvenréttindahreyfingin og áhrif feðra grein úr Psychology Today, amerísku sálfræSitimariti. Eflir f]ölmiðlum að dæma má ætla, að kvenrétt- indahreyfingin hafi lýst því yfir, að sjálfsagt sé að telja alla karlmenn mótstöðumenn hennar. Judith og Leonard Worrell telja, að hinir sönnu óvinir séu þeir, sem eru þannig gerðir, að þeir berjast á móti hreyfingunni, hvort sem það eru karlar eða konur. Þau sömdu fjögur próf til að kanna persónuleika og hegðun fólks í sambandi við kvenréttindi og lögðu fyrir stúdenta við Háskóla Kentucky (University of Kentucky). Niðurstaða þessarar könnunar var sú, að finna mætti ýmis sameiginleg innbvrðis einkenni í fari stuðningsmanna kvenréttindahreyfingarinnar, og það sama mátti segja um andstæðinga hennar. Worrel hjónin segja, að karlmenn í flokki and- stæðinga láti sig miklu skipta stöðu sína í þjóðfélag- inu, vilji hegða sér á viðurkenndan hátt og séu vandir að virðingu sinni, þeir láti stjómast af skoðunum annarra og hafi lítið traust á getu sinni til að hafa áhrif á eigin örlög. 1 samskiptum sínum við aðra eru þeir strangir í skoðunum, víkja ekki frá viðurkennd- um venjum og eru ósveigjanlegir. En gagnvart yfir- völdum sýna þeir undirgefni. Hins vegar eru karlmenn, sem styðja kvenréttinda- hreyfinguna, sjálfstæðir, duglegir og einbeittir. Einn- ig hugsa þeir urn heiminn á rökrænan hátt. Konum, sem eru á móti kvenréttindum, svipar til karlmanna í þeim hópi á þann hátt, að þær em í ríkum mæli háðar yfirvöldum og ytra aðhaldi. Einn- ig fvlgja þær settum reglum. Konur þessar þjást af ótta, em fram úr hófi snyrtilegar með sig og ó- sveigjanlegar. Worrell hjónin skýra frá því, að neikvæðar skoð- anir á þeim konum, sem styðja kvenréttindahreyf- inguna, birtist víða og séu útbreiddar. Þessar skoð- anir lýsa kvenréttindakonum, sem skrítnum, afbrigði- legum og jafnvel ókvenlegum konum. Þess vegna fannst Worrell hjónunum bæði uppörvandi og hress- andi að komast að raun um, að kvenréttindakonur líkjast næstum því að öllu leyti venjulegum amerísk- um kvenstúdentum. Samkvænxt rannsóknunx Worrell hjónanna er eitt stei'kt og áberandi einkenni sameiginlegt með kven- réttindakonum, og það er löngunin eftir sjálfsstjóm, — það er að segja að vera sjálfstæðar, sjálfum sér nógar og óháðar eftirliti. Andstaiðingar kveixrétt.indahreyfingarinnar, bæði karlar og konur, virðast verða fyrir talsverðum á- hrifum frá feðrum sínum, persónum, sem voru fyirr löngu gleymdar i sálfræðilegum rannsóknum. Um leið og í Ijós kom, að enginn vei'ulegur munur var á hegðun xnæðra hvors hópsins um sig, virtust það vera fyrst og fremst feðumir, sem mótuðu viðhorf and- stæðinga kvenréttindahreyfingarinnar, bæði karla og kvenna, og höfðu þau áhrif, að það fólk varð til- finningalega ósjálfstætt. Svo að vitnað sé í Worrell hjónin: „Þeir birtast óafvitandi eins og sökudólgar. Að því er virðist em það þeir, sem bera ábyrgð á þi'oska skaphafnar manna. En í skaphöfn manna má leita orsakanna fyrir neikvæðri afstöðu til kveixrétt- inda. Jafnframt ræður skaphöfn manna viðhorfi þeiira til annarra mála“. Þess vegna álykta Worrell hjónin: „Reynist þetta rétt vera, þá geta feður átt nxikilvægan þátt í að móta þá þætti persónuleikans, sem em þess valdandi, að merm veita viðnám gegn hreyfingum, sem stefna að þjóðfélagslegum um- bótum“. 19. JÓNÍ 3

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.