19. júní - 19.06.1973, Blaðsíða 36
Valborg Hermannsdóttir fæddist að Glitstöðum í Norðnrárdal í Mýrarsýslu, dóttir
Hermanns Þórðarsonar, kennara, og konu hans, Ragnheiðar Gísladóttur. Valborg varð
stúdent frá máladeild Menntaskólans í Reykjavík 1944 og tók stærðfræðideildarstúdents-
próf frá sama skóla árið eftir 1945. Eftir stúdentspróf frá stærðfræðideild varð hún lærlingur í
lyfjabúðinni Iðunni og tók exam. pharm. við Háskóla Islands 1948. Að því loknu starfaði Val-
borg eitt ár i Ingólfs Apóteki, hélt síðan utan til Danmerkur til frekara náms í lyfjafræði, hóf
nám við Danmarks Phaimacevtiske Höjskole árið 1949 og útskrifaðist þaðan vorið 1952. Að námi
loknu hvarf Valborg heim og starfaði í Laugavegs Apóteki á árunum 1952 til 1955. Á því
tímabili var Valborg formaður Iiyfjafræðingafélags Islands í eitt ár 1953—1954. 17. júní 1955
voru Valborg og Kurt Stenager Jakobsen, lyfjafræðingm-, gefin saman í hjónaband í mót-
mælendakirkju í borginni Penang á Malakkaskaga. Settust þau hjón að í Thailandi, þar sem
maður Valborgar var fyrir Lyfjaver/.lun Austur-Asíufélagsins í Bangkok, og bjuggu þau þar í
fimm ár 1955—1960. Fluttu þau þaðan til Indónesiu árið 1960 og áttu þar heima í þrjú ár
eða til ársins 1963, því að Kurt Stenager Jakobsen var þar fyrir útibúi Austur-Asíufélagsins.
Aftur héldu þau hjón til Bangkok, og nú til að starfa fyrir I.yfjaverksiniðju í eigu Thailendinga
og Austur-Asíufélagsins á árunuin 1963 til 1969. Þau hjón eiga tvo syni, Pétur 8 ára og
Jón Blöndal 5 ára.
Þegar samþykkt var í ritnefnd „19. júní“, að ég
reyndi að kanna, hvaða konur hefðu tekið að sér
formennsku í félögum háskólamenntaðra manna,
komst ég að raun um, að kona sú, sem eftir þvi, sem
ég komst næst, hafði fyrst kvcnna tekið að sér for-
mennsku í slíku félagi, það er að segja aðalfélagi,
var búsett erlendis, og hafði þó nokkuð lengi verið
búsett í Austurlöndum. Fannst mér leitt, gæti „19.
júní“ ekkert frætt lesendur sina um þessa konu frá
fyrstu hendi. Þess vegna skal engan undra, þótt mig
ræki í rogaslanz, jiegar ég var að tjá Áslaugu Cassata
vandrazði mín og hún sagði mér, að kona þessi væri
stödd hér á landi!
Og núna er Valborg Hermannsdóttir, sem var for-
maður i Lyfjafræðingafélagi íslands í eitt ár 1953—
1954, stödd hér í stofunni hjá mér.
Upphaflegur tilgangur minn var að rekja úr Val-
borgu garnirnar um formennskuferil hennar, en Val-
borg er kona hæversk og lætur lítið yfir sínum for-
mannsstörfum. Telur hún sig fátt muna annað en
t
i
34
19. JÚNÍ