19. júní


19. júní - 19.06.1973, Page 15

19. júní - 19.06.1973, Page 15
oft látnir gerast í fortíðinni, til dæmis i æsku höfundanna, og gefi baminu því ekki rétta mynd af samtímanum. Alltof mikið sé um Indíána-, glæpa- og stríðsmyndir, þar sem ofbeldi, ruddaskapur og manndráp mynda aðal-uppistöð- una. Einnig er gagnrýnd sú mikla het]udýrkun, sem setur svip á fjöl- margar bækur og kvikmyndir, og getur haft slæm áhrif á sjálfsí- mynd bamsins. Mikið af þessari gagnrýni á fyllilega rétt á sér, og spyrja má, hvers vegna gerðar em allt aðrar og minni gæðakröfur, þegar um er að ræða efni, sem ætlað er böm- um, en þegar um annað efni er að ræða. Niðurstaða mín er sú, að fjöl- miðlar geti alls ekki tekið við upp- eldishlutverki foreldranna, aðeins verið, þegar bezt lætur, góð viðbót við áhrif foreldranna, en haft al- varleg neikvæð áhrif, þegar verst lætur. Ilér eins og á fjölmörgum öðrum sviðum er þeim bömum hættast, sem fá minnstan stuðning úr foreldrahúsum. Gunnar Árnason sálfræðingur. // // // // // // // // // // // // // Þetta efni — böm og fjölmiðlar — væri verðugt fyrir heila ráð- stefnu uppalenda og heillandi við- fangsefni fyrir skoðanakannanir og athuganir félagsfræðinga. En takmarkað rúm krefst takmark- aðra orða. Þess vegna drep ég á fátt. eitt, sein í hugann kemur. Ég vik fvrst að barnabókum, sem koma hvert ár á markaðinn í tugatali, einkum þó þegar líður að jólum. Flestar em þær þýddar úr erlendum málum á misjafnlega góða íslenzku, og efnið jafnmis- jafnt að gæðum. Aðeins eitt dag- blað birtir nokkuð reglulega gagn- rýni um barnabækur, a. m. k. á „bókavertíðinni11. Aldrei minnist ég þess, að hafa lesið gagnrýni um slíkar bækur í fregnum bók- menntatímarita. Framtakssamar konur tóku sig til fyrir tveim ár- um, fylgdust um ákveðinn tíma með barnabókum, sem út komu, gagnrýndu þær og gáfu þeim ein- kunnir eftir sínu mati. Þetta var gott og þarft verk og hefði mátt halda því áfram og styrkja það á allan hált. Fáir íslenzkir rithöf- undar fást við að skrifa barna- bækur, e:ida er það fremur van- þakklátt og lítils metið starf. Þarf ekki annað en að Kta á árlegan lista yfir viðurkenningu lista- manna og fjárstyrk til þeirra, til þess að sannfærast um þetta, þó með örfáum undantekningum í seinni tíð. Oft hafa komið fram áskoranir, m. a. frá kvennasam- tökum, til menntamálaráðs og fleiri aðila um að efna til sam- keppni um beztu bamabók ársins, frumsamda á íslenzku. Slikt mundi ýta undir samningu góðra barnabóka, því að ætla mætti, að þar væm í dómarasæti fæmstu menn. Viðurkenningu mætti líka veita fyrir góðar þýðingar. Á sama hátt mætti efna til samkeppni um bamaleikrit og kvikmyndahandrit. Þar er heldur ekki um auðugan garð að gresja, enda lítil hvatning fyrir hendi. Dagblöðin hafa öll eitthvað á boðstólum fyrir yngstu lesend- urna; mest eru það myndasögur af ýmsu tagi og framhaldssögur. Myndasögumar njóta mikillar hylli, enda færist það í vöxt að neytendur fjölmiðla, ungir og aldnir séu mataðir gegnum augun. Væri ekki hægt að fá meira af myndasögum, sem em í senn skemmtilegar og fræðandi, ekki einungis ævintýri ofurmenna eða skrípafólks? Eitt dagblaðanna birti um alllangt skeið myndasögur byggðar á atriðum úr Islendinga- sögum og Snorra-Eddu; annað hef- ur lengi birt mvndaflokka úr riki náttúrunnar í sunnudagsblaði sinu. Meira mætti vera af sliku, þvi það vekur áhuga á því, að kynna sér nánar, það sem um er f jallað. En sá er einmitt tilgangur- inn með góðum fræðslumyndum, hvort sem þær ber fyrir auga í blöðum eða sjónvarpi, það er að vekja áhuga á því að vita meira um efnið. I góðu heimilisbókasafni eiga að vera góðar handbækur, orðabækur og aðgengilegar fræði- bækur um aðskiljanleg efni ásamt vænu safni af sigildum bókmennt- um. Bækur eiera aldrei að vera stofustáss eingöngu, þær eiga að vera til taks fyrir heimilisfólkið. Það á að kenna bömum frá unga aldri að notfæra sér bækur, læra að leita til að vita meira, læra að fara vel með bækur og umgangast þær eins og vini. Er ekki bók, sem sýnilega hefur oft verið handleik- in, ólikt heimilislegri en sú, sem 19. JÚNÍ 13

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.