19. júní - 19.06.1973, Page 29
kallaÖ að vera „lánaráðgjafi“. Af þeim 24 konum,
sem vinna meðmér, eru 6 gjaldkerar, 8 lánaráðgjafar,
2 lánaút.borgunarstúlkur, og vinna hinar við ýmis
bókhalds- og skrifstofustörf. Við veitrnn samtals um
45 lán að meðaltali á dag. Á sumum mánudögum
fáum við vfir 100 lánaumsóknir.
Sá eini maður, sem vinnur með okkur, er kallaður
skrifstofustjóri, en hann er næstur stjómarkonunni
að lign. Þegar ég spurði yfirkonuna, af hverju hún
réði bara konur i þessi störf, en það þykir óvenjulegt,
því að í bönkum eru það til dæmis mest karlmenn,
sem eru lánaráðgjafar, þá sagði liún, að konur væru
miklu aflvastameiri en karlmenn og fólk ætti léttara
með að tala við konur mn vandamál sín, þar sem
þær virust skilningsrikari á þeirra vandamál. Hún
reynir yfirleitt að ráða konur, sem hafa reynslu í
fjármálum og eiga létt með að koma fram. Hún
sagðist hafa haft marga karlmenn í vinnu áður, en
orðið að láta flesta þeirra fara, þvi að þeir gátu ekki
unnið störf sin af eins mikilli samvizkusemi og þær
konur, sem vinna hjá henni. Þessi karlmaður væri sá
eini, sem hún treysti til að leysa starf sitt rétt af
hendi. Hún þyrfti að hafa einhvem karlmann vinn-
andi þarna til að tala við karlmenn, sem væru æstir,
þegar þeim væri neitað um lán, og verð ég nú að
segja, að hann hefur komið sér vel nokkrum sinnum,
þó að ég sé á sama máli og hún um afköst kvennanna,
að minnsta kosti þeirra kvenna, sem hún ræður, og
er ég ánægð með að vera ein þeirra.
Sesselja Pálsdóttir.
Inngangur.
Dagvistunarstofnanir eru tiltölulega nýjar stofnan-
ir á íslandi, eins og kunnugt er. Var þeim komið á fót
mun seinna á fslandi en hjá nágrannaþjóðum okk-
ar. Á það m. a. rót sína að rekja til þess, að við
íslendingar lifðum lengur í bændasamfélagi en ná-
grannaþjóðir okkar, iðnvæðing hófst hér seint, og
borgarlíf á sér skamma sögu í okkar þjóðfélagi.
Barnavinafélagið Sumargjöf átti frumkvæði að
því að stofna dagheimili og leikskóla hér á landi. Árið
1930 lét félagið reisa fyrsta dagheimilið í Reykjavík,
mamótum
19. JÚNÍ
27